Bloggfærslur mánaðarins, september 2008
18.9.2008 | 08:49
Gamansögur
Englendingar, Skotar og Írar hafa gaman af því að segja sögur um hvern annan og hér kemur ein;
Það var á þeim tíma sem fallöxin var notuð í Frakklandi til að taka af lífi þá sem höfðu gerst brotlegir við lög Frakklands. Ef fallöxin stóð eitthvað á sér þá voru mönnum gefnar upp sakir. Í þessu lentu þrír menn frá áðurnefndum þjóðfélagshópum. Sá sem átti að fara fyrstur undir fallöxina var Englendingurinn og þegar hann var spurður hvort að hann vildi liggja á grúfu eða á bakinu og horfa þar með á hnífsblaðið. Sá enski sagðist ekkert óttast og vildi liggja á bakinu og horfa á hnífsblaðið en á miðri leið stoppaði blaðið og samkvæmt venju voru honum þá gefnar upp sakir. Þá var komið að Íranum og hann vildi nú ekki vera minni maður en sá enski og lagðist á bakið og það sama skeði, blaðið stoppaði á miðri leið og honum þá gefnar upp sakir. Þá var komið að Skotanum og ekki vildi hann verða minni maður en félagar hans og lagðist á bakið og horfði á hnífsblaðið. Þegar hann var búinn að koma sér fyrir og leit upp þá kallaði hann;
"Bíðið aðeins ég sé núna hvað er að."
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 08:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.9.2008 | 08:31
Kauphöllin
Kauphöll Íslands hefur ákveðið að áminna Nýsi hf. opinberlega og beita félagið févíti að fjárhæð kr. 1.500.000 vegna atvika þar sem útgefandi er talinn hafa gerst brotlegur við ákvæði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga í Kauphöllinni. Segir í ákvörðun Kauphallarinnar að Nýsi hafi borið að tilkynna um slæma fjárhagsstöðu félagsins og eins sé ámælisvert að upplýsingar um félagið hafi birst í fjölmiðlum áður en kauphöllin var upplýst um málið.
Nýsir hf. er í raun gjaldþrota og mun þar af leiðandi aldrei borga þessa sekt frekar en aðrar skuldir. Allar tilraunir til að bjarga þessu félagi hafa ekki tekist og er því ekkert nema gjaldþrot framundan.
![]() |
Kauphöllin áminnir og beitir Nýsi févíti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2008 | 08:24
Frjálslyndi flokkurinn
Í fljótu bragði lít ég svo á að vegið sé að formanni flokksins með þessari samþykkt, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis og formaður þingflokks Frjálslynda flokksins, um áskorun miðstjórnar þess efnis að Jón Magnússon verði formaður þingflokksins.
Ég er stuðningsmaður Kristins í þessu máli og strigakjafturinn Eiríkur Stefánsson sem kom með þessa tillögu hlýtur að vita að það er þingflokkurinn sem skiptir með sér verkum en ekki miðstjórn flokksins. Ég veit ekki hvaða rök ættu að vera fyrir því að skipta um þingflokksformann og það eitt að Jón Magnússon sé þingmaður í Reykjavík dugir ekki. Það vita það allir sem vilja vita að rætur flokksins hafa alla tíð verið sterkastar á Vestfjörðum og byggjast að mestu á miklu persónufylgi formannsins, Guðjóns Arnars Kristjánssonar. Svona samþykktir er bara til þess fallnar að koma af stað óróa innan flokksins.
![]() |
Kristinn segir vegið að formanninum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2008 | 08:12
Afmæli
Elsti karlmaður heims, Tomoji Tanabe, fagnar í dag 113 ára sínu í Japan. Inntur eftir leyndarmálinu að baki langlífi sínu þakkar Tanabe það góðri matarlyst í samspili við aðhald hans í neyslu. Þannig forðist hann alfarið áfengi, sígarettur og snakk.
Aumingja maðurinn að verða svona gamall, ekki vildi ég verða svona gamall.. Svo er auðvitað stór spurning hvort hann man nokkuð hvenær hann fæddist.
Mér hefur alltaf þótt broslegt hér á Íslandi ef einhver einstakur atburður skeður, þá er oft sagt að þetta eða hitt hafi ekki skeð svo lengi sem elstu menn muna. En staðreyndin er nú sú að elstu menn muna oft mjög lítið eða jafnvel ekki neitt.
![]() |
Fagnar 113 ára afmæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2008 | 07:53
Tónlist
Áhugi á ráðstefnu sem Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) skipuleggur tók mikinn kipp eftir að tónlistartímaritið Musicweek birti heilsíðugrein með fyrirsögninni Making Iceland Even Cooler eða Ísland verður ennþá svalara.
Það er ánægjulegt til þess að vita ef tekst að gera íslenska tónlist að útflutningsvöru og afla tekna í þjóðarbúið, ekki veitir af til að laga viðskiptahallann.
![]() |
Svöl útflutningsvara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2008 | 07:48
Eimskip
Markaðsvirði Hf. Eimskipafélagsins hefur fallið um 53% á einni viku eftir að ljóst varð að 27,7 milljarða króna (207 milljónir evra) lánsábyrgð vegna XL Leisure myndi lenda á félaginu. Bréf Eimskips lækkuðu um 21,6% í dag og er það í þriðja skiptið á síðustu fjórum viðskiptadögum sem gengið lækkar um fimmtung eða meira innan dags.
Hvar endar þetta eiginlega með Eimskip, er það að verða gjaldþrota.? Þá er ég hræddur um að hrikti verulega í stoðum Landsbankans. Verður hann kannski gjaldþrota líka.?
![]() |
Markaðsvirði Eimskips dregst saman um 53% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2008 | 07:41
Gjaldþrot
Kæra skiptastjóra þrotabús flugfélagsins City Star Airlines, sem var í eigu Íslendinga, á hendur fyrrverandi fyrirsvarsmönnum flugfélagsins, er meðal þeirra verkefna sem eru nú til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra. Efnahagsbrotadeildin hefur nú 66 mál til meðferðar og er stór hluti þeirra skattalagabrot.
Eitt dæmið enn um misheppnaða útrás íslendinga, þegar þeir töldu að þeir gætu keypt hvað sem er erlendis og grætt á öllu. Enginn kynni að reka fyrirtæki með hagnaði nema að viðkomandi væri íslenskur.
![]() |
Brotin ná til fleiri landa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2008 | 07:37
Almannatryggingakerfið
Það er ekki verið að stoppa í götin, heldur er verið að smíða alveg nýtt almannatryggingakerfi, segir Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra um vinnu nefndar sem endurskoðar nú almannatryggingakerfið. Meginviðfangsefnið er einföldun reglna og jafnframt að finna leiðir til að koma í veg fyrir víxlverkanir bóta, þannig að einar bætur skerði ekki aðrar, segir ráðherrann.
Kominn tími til að lagfæra þetta kerfi. Því eins og það er í dag er varla nokkur leið að skilja það og jafnvel fólk sem vinnur hjá Tryggingastofnun gefur misvísandi upplýsingar. Þegar ég varð öryrki og fór að reyna að lesa og kynna mér allt þetta torf sem kerfið er, þá komst ég ekkert áfram. Ég var kannski búinn að lesa einn kafla í lögunum þegar kom innskot um breytingu með tilvísan í ár og númer laga og við lestur þess ógilti það nánast allt sem ég var búinn að lesa áður. Er ég því löngu hættur að reyna að skilja þetta kerfi og þigg bara það sem að mér er rétt og treysti því að ég eigi það sem ég fæ greitt hverju sinni. Ég lenti strax í stórskuld við þetta kerfi, því mér datt ekki í hug að bætur frá lífeyrissjóði ætti að koma til skerðingar eða sjúkradagpeningar sem ég fékk frá mínu stéttarfélagi. En allt þetta reiknast sem laun og skerðir bætur. Ég taldi að minn lífeyrissjóður væri mitt sparifé og ég ætti þann sparnað en ekki Tryggingastofnun og það sama taldi ég sjúkradagpeningana vera, því í sjúkrasjóðinn hjá mínu stéttarfélagi var greitt hluti af mínum launum. En svo kom í ljós að ég átti ekkert af þessum peningum heldur hafði Tryggingastofnun heimild til að eigna sér þá.
Er þetta því gott verk hjá Jóhönnu Sigurðardóttur að láta búa til nýtt kerfi, því það gamla var algerlega óskiljanlegt og ónýtt.
![]() |
Gömlu og stagbættu kerfi hent |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2008 | 07:14
Vottun á fiskafurðum
Enn heldur LÍÚ áfram að berjast gegn hinni alþjóðlegu MMC-vottun á sjávarafurðum. Lengi vel stóðu Norðmenn með okkur í þessari baráttu en nú hafa þeir tekið upp MMC-vottun á sínum fiskafurðum. Rök LÍÚ eru þau að þessi samtök sem standa að MMC-vottun séu umhverfissinnar og þá á það að vera eitthvað svo neikvætt. LÍÚ hefur tekist að fá sjávarútvegsráðuneytið í lið með sér og nú á að búa til sér íslenska vottun á fiski. Eins og ég sagði áður er MMC-vottun alþjóðleg og harkan í LÍÚ hefur nú þegar kostað íslendinga nokkra sölusamninga. Þótt LÍÚ sé á móti umhverfissinnum eiga þeir ekki að ráða. Ekki trúi ég því að einstaklingur sem kemur í verslun erlendis til að kaupa fisk og sér fisk bæði með MMC-vottun og einhverri óþekktri íslenskri vottun, velji frekar íslenska fiskinn, nei hann velur auðvitað fisk sem er merktur því merki sem hann kannast við. Svo langt er LÍÚ farið að ganga í sínum áróðri að eigna Mafíunni MMC-vottunina. Ekki trúi ég því heldur að Mafían sé að hugsa um hvernig íslenskur fiskur er vottaður.
Það er ekkert leyndarmál af hverju LÍÚ stendur í þessari baráttu. En það er vegna þess að MMC-vottun táknar að fiskurinn sé veiddur úr sjálfbærum stofni og notuð umhverfisvæn veiðarfæri. Samtökin sem að þessu standa eru líka í baráttu fyrir að botnvörpuveiðar verði bannaðar vegna þess skaða sem þau telja að botnvarpann valdi á hafsbotninum og er það í samræmi við ályktun frá Sameinuðu Þjóðunum. Einnig myndi smábátaflotinn fá mikið forskot á stórútgerðir landsins, því sá floti veiðir bara með línu og handfærum. Fiskur sem veiddur er í botnvörpu er alls ekki útilokaður frá því að fá MMC-vottun en þá þarf hvert tog að vera í ákveðinn hámarkstíma.
Ætlar sjávarútvegsráðherra að láta LÍÚ eyðileggja fyrir okkur mikilvæga markaði fyrir íslenskan fisk án þess að ger a neitt. Því að á meðan við tökum ekki upp MMC-vottun á íslenskum fiski, þá lokast hver markaðurinn eftir öðrum. Ég get ekki skilið þessa afstöðu LÍÚ öðruvísi en svo að þeir telji kvótakerfið ónothæft og allar okkar veiðar séu ekki veiddar úr sjálfbærum fiskistofnum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2008 | 06:27
Jarðaför í vinning
Verðlaun geta verið af ýmsum toga en aðalvinningurinn í happdrætti sem fór fram í smábænum San Marco í suðurhluta Ítalíu nýverið var ókeypis jarðarför. Vinningshafinn er ekki búinn að sækja verðlaunin.
Væri nú ekki betra að deyja áður en svona vinningur er nýttur, en kannski er hæht að selja þetta einhverjum sem þarf á þessu að halda.
![]() |
Vann ókeypis jarðarför í happdrætti - vinningurinn er ósóttur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Arnfirðingur
- Bíldudalur
- Bolungarvík
- Bæjarins besta á Ísafirði
- Guðrún Rebekka Jakobsdóttir Edinborg
- Falið vald
- Flateyri
- Frjálslyndi flokkurinn
- Ísafjörður
- Júdit Krista Jakobsdóttir, Bíldudal
- Kristinn Ásgeirsson, Danmörku
- Kristinn H. Gunnarsson
- KVÓTASVINDLIÐ MITT
- Mats Wibe Lund
- Óvinir Ísland
- Skipamyndir Þorgeir Baldursson ljósmyndari
- Suðureyri
- Strandabyggð
- Súðavík
- Tálknafjörður
- Tíðis-fréttavefur
- Vesturbyggð
- VÍSIR.IS
SKIPAMYNDIR
- Fiskistofa Ýmsar upplýsingar
- Gísli Reyisson Aflafréttir
- Hafþór Hreiðarsson Skipamyndir
- Ragnar í Grindavík Skipamyndir
- Skip.is Ýmsar upplýsingar
- Þorgeir Baldursson SKIPAMYNDIR
- http://
Bloggvinir
-
Adda bloggar
-
Ágúst H Bjarnason
-
Albertína Friðbjörg
-
Alma Jenny Guðmundsdóttir
-
Anna
-
Anna Guðný
-
Anna Heiða Stefánsdóttir
-
Anna Pálsdóttir! :)
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Apamaðurinn
-
Arinbjörn Kúld
-
Ásgerður Jóna Flosadóttir
-
Arnlaugur Helgason
-
Arnþór Helgason
-
Ársæll Níelsson
-
Ásdís Rán
-
Ásgeir Jóhann Bragason
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásgeir Sveinsson
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Baldur Smári Einarsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Birna M
-
Bjarney Bjarnadóttir
-
Bjarni Baukur
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bjarni Kjartansson
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Bjarki Þór Guðmundsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Björgvin S. Ármannsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Björn Leví Gunnarsson
-
Björn Finnbogason
-
Bragi Sigurður Guðmundsson
-
Bragi Sigurðsson
-
Hommalega Kvennagullið
-
Bwahahaha...
-
Davíð Pálsson
-
Davíð S. Sigurðsson
-
Didda
-
Dunni
-
Edda Agnarsdóttir
-
Edda Sveinsdóttir
-
Eggert Þór Aðalsteinsson
-
Egill Jón Kristjánsson
-
egvania
-
Einar B Bragason
-
Einar Kristinn Guðfinnsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eiríkur Sjóberg
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Emil Örn Kristjánsson
-
J. Einar Valur Bjarnason Maack
-
Elín Margrét Guðmundsdóttir
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
-
FF
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Faktor
-
Fannar frá Rifi
-
Finnur Bárðarson
-
Fjarki
-
Friðrik Höskuldsson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Georg Birgisson
-
Gestur Guðjónsson
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnar Þór Ólafsson
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðjón Ó.
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Guðmundur Zebitz
-
Guðni Gíslason
-
gudni.is
-
Guðrún Hafdís Bjarnadóttir
-
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðrún Helgadóttir
-
Guðrún S Hilmisdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Sigurðsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Haffi
-
Hafrún Kristjánsdóttir
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
-
Halla Rut
-
Halldór Sigurðsson
-
Halldór Örn Egilson
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Heiður Helgadóttir
-
Helga Dóra
-
Helga Sigrún Harðardóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Himmalingur
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
hilmar jónsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjalti Sigurðarson
-
Hjartagullin mín
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Hlekkur
-
Huld S. Ringsted
-
Hólmdís Hjartardóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
hreinsamviska
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Hörður Halldórsson
-
Hörður Hilmarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Kristinsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Jens Sigurjónsson
-
Jóhannes Jónsson
-
Jóhanna Fríða Dalkvist
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jón Baldur Lorange
-
Jón Halldór Eiríksson
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Finnbogason
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Kama Sutra
-
Karl Tómasson
-
Karl V. Matthíasson
-
Katrín
-
Kjarri thaiiceland
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristinn Sigurjónsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Kristján Pétursson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Lilja Skaftadóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Lýður Árnason
-
Maddý
-
Magnús Þór Friðriksson
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Marinó Hafnfjörð Þórisson
-
Magnús H Traustason
-
Marinó Már Marinósson
-
Marzellíus Sveinbjörnsson
-
Morgunblaðið
-
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Natan Kolbeinsson
-
Níels A. Ársælsson.
-
Ólafía Margrét Guðmundsdóttir
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Tryggvason Þorsteinsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólafur Tryggvason
-
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
-
Ólöf de Bont
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Paul Nikolov
-
Páll Höskuldsson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
percy B. Stefánsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Borgþórs
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Ragnhildur Jónsdóttir
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Regína R
-
Ruth
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Rögnvaldur Þór Óskarsson
-
Samtök Fullveldissinna
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigríður Hafdís Þórðardóttir
-
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir
-
Sigurður Haukur Gíslason
-
Sigurður Jón Hreinsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Snorri Bergz
-
Sigurjón Sveinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinþór Ásgeirsson
-
Svartagall
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sólveig Aradóttir
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
TARA
-
Tiger
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valbjörn Júlíus Þorláksson
-
Valdimar Leó Friðriksson
-
Valan
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Viggó H. Viggósson
-
Vilborg Auðuns
-
Þórbergur Torfason
-
ÞJÓÐARSÁLIN
-
Þórhallur Heimisson
-
Þórhallur Pálsson
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Þórir Kjartansson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Jóhannesson
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Jón V. Þorsteinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 24.1.2010 Jakob Kristinsson er látinn.
- 21.1.2010 Spakmæli dagsins
- 21.1.2010 Obama
- 21.1.2010 Icesave
- 21.1.2010 Mótmælendur ákærðir
- 21.1.2010 Norwegian
- 21.1.2010 Kaninn og RÚV
- 21.1.2010 Látinn laus
- 21.1.2010 Kína
- 21.1.2010 Hvað vill félagsmálaráðherra?
199 dagar til jóla
Nýjustu færslurnar
- Hversvegna er ekki hægt að treysta áróðurfréttaflutningi frá Gaza ?
- Í tilefni af HVÍTASUNNUDEGINUM sem að er í dag: Gæti HEILAGUR ANDI birst fólki í nútímanum með einhverjum hætti?
- Gervigreindur guð á Hvítasunnu
- Velkominn sannleikur um bókun 35
- Pawel og eðli ESB
- Perlur sem finnast uppteknar frá 2003 eftir mig, um inngönguna í ESB, þar sem ljóðmælandinn er hlynntur henni
- Ísrael - Sæmdarheiti - Þjóðar og Lands
- ,,Að frægja land og þjóð ?
- Lokafærslan - 20250607
- Ert þú til í að lána ókunnugum VISA-kortið þitt?