Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Fjárlög

Fjárlagagerð er vandasamt verkefni þetta árið vegna óvissu um tekjur og þrenginga í efnahagslífi. Kröfur á fjárlaganefnd Alþingis eru mótsagnakenndar, því krafist er aðhalds- sparnaðarfjárlaga á sama tíma og ríkið er hvatt til framkvæmda svo að hjól atvinnulífsins stöðvist ekki.

Það er ekki öfundsvert að hnoða þessu saman þegar ríkisstjórnin veit ekkert hvað hún vill hafa í fjárlögum.  Það á bæði að spara og auka útgjöld, þetta er enn eitt dæmið um hvað ríkisstjórnin er ráðvilt.


mbl.is Þyngri róður í ríkisrekstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt afl

„Þetta kemur mér ekkert á óvart. Ég var að reyna að segja þetta, “ segir Margrét Sverrisdóttir sem gekk úr Frjálslynda flokknum eftir varaformannsslag við Magnús Þór Hafsteinsson fyrir tveimur árum.

Þarna er ég samála Margréti Sverrisdóttur, eins og kemur fram í greininni sem ég var að skrifa áðan.  Við hefðum betur hlustað á Margréti á sínum tíma og ég er þeirra skoðunar að það var ekki tapið í varaformannskjörinu sem varð til þess að hún gekk úr flokknum.  Ég tel að ástæðan hafi verið Jón Magnússon og hans lið.


mbl.is Margrét: Nýtt afl meðal Frjálslynda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boða aðgerðir

Henry Paulson, fjármálaráðherra, Ben Bernanke,...Bandarísk stjórnvöld hafa boðað aðgerðir sem vonast er til að bindi enda á kreppuna á fjármálamörkuðum. Henry Paulson, fjármálaráðherra, og Ben Bernanke, seðlabankastjóri sátu í gær fund með leiðtogum Bandaríkjaþings.

Hvað ætla íslensk stjórn völd að gera nú, verður vara beðið aðgerðarlaust áfram og vonað að úr þessu rætist einhvern tímann.


mbl.is Boða aðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálslyndi flokkurinn

Nú hef ég verulegar áhyggjur af mínum ágæta flokki og slæmt þegar þingmenn eru farnir að deila í fjölmiðlum.  Ég er núna farinn að trúa orðum Margrétar Sverrisdóttur sem hún sagði um inngöngu hópsins frá Nýju afli undir forustu Jóns Magnússonar.  Margrét sagði á sínum tíma að þessi hópur ætlaði sér að yfirtaka flokkinn.  Það virðist vera að koma á daginn núna þegar flokksmenn í Reykjavík eru farnir að krefjast að Jón Magnússon fái meiri völd innan flokksins og sumir vilja jafnvel gera hann að formanni.  Ég er daglega í sambandi við fjölda fólks og allir tala um að hætta að styðja flokkinn vegna þessara átaka.  Ég hef verið í þessum flokki frá stofnun hans og tel að við hefðum betur hlustað á varnaðarorð Margrétar Sverrisdóttur varðandi inngöngu hópsins úr Nýju afli, sem virðast vera að rætast núna.  Ég er ákveðinn í því að ef gerð verður atlaga að þeim Guðjóni Arnari Kristjánssyni og Kristni Gunnarssyni til að auka völd Jóns Magnússonar, þá ætla ég ekki að starfa meira fyrir þennan flokk.  Jón Magnússon er bara óbreyttur þingmaður fyrir flokkinn og á ekki að vera neitt annað.  Rætur flokksins hafa alltaf verið sterkastar á Vestfjörðum og ef fara á að berja á þeim tveimur þingmönnum sem þaðan koma þá verða það endalok þessa ágæta flokks.  Það liggur við að ég sé farinn að trúa því að Jón Magnússon og hans liðsmenn hafi gengið í flokkinn til að eyðileggja hann.

Skólar

Menntamálaráðuneyti hefur gert athugasemdir við starfstíma fimmtán framhaldsskóla sem uppfylltu ekki ákvæði reglugerðar um samanlagðan fjölda kennslu- og prófadaga nemenda.

Er nú skólatíminn talin vera of stuttur, ég tel hann vera of langan, því með löngu sumarfríi gefst nemendum kostur á að fá sér vinnu.  Það er öllum hollt að kynnast aðeins hvernig atvinnulífið er og taka þátt í því.  Ef nemendur eiga að vera í skóla án þess að kynnast atvinnulífinu og útskrifast jafnvel úr háskóla án þess að hafa nokkurn tíman stundað neina vinnu á námsárunum, þá er menntun þeirra ekki lokið.  Það er ekki hægt að kenna allt í skólum.
mbl.is Starfstími skóla of stuttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýr leiga

Rúmlega 400 starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa komið sér fyrir í nýju húsnæði í Borgartúni 10-12. Borgin leigir húsnæðið af Höfðatorgi hf. sem er í eigu byggingafélagsins Eyktar og eru leigugreiðslur á mánuði tæplega 34,5 milljónir króna. Leigugreiðslur á einu ári nema 413,6 milljónum.

Af hverju byggir borgin ekki yfir sína starfsemi í stað þess að vera að leigja húsnæði fyrir stórfé.  Aðeins nokkurra ára leiga dygði til að byggja álíka hús og nú er verið að taka á leigu.  Eða er verið að bjarga einhverjum gæðingum hjá Sjálfstæðisflokknum.?


mbl.is Ársleiga í Borgartúni 414 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar spara

Íslendingar hafa undanfarið ár dregið úr akstri, minnkað notkun debetkorta og eru í auknum mæli farnir að versla í lágvöruverðsverslunum.

Það var kominn tími til að íslendingar áttuðu sig á því að það er ekki hægt að eyða bara og eyða og ætla síðan að greiða allt með lánum.  Sá tími er liðinn og kemur ekki aftur.


mbl.is Halda að sér höndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tryggingasjóður

EF allt fer á versta veg í íslensku efnahagslífi kann að koma til kasta Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta. Tilgangur sjóðsins er að tryggja innstæðueigendum í íslenskum bönkum og sparisjóðum tryggingavernd.

Í mínum huga er ekkert ef heldur er allt komið á versta veg.  En það er gott að vita af þessum Tryggingasjóði.  Því spurningin er ekki hvort heldur hvenær einhver banki fer á hausinn.


mbl.is Tryggingarsjóður kemur til bjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjarasamningar

Ósamið er við fjölda starfsstétta sem eru með lausa kjarasamninga á þessu ári. Alls eru um 170 samningar lausir á árinu og þar af er búið að gera samning í um 80 tilvikum.

Er nokkuð skrýtið að Ásmundur Stefánsson hafi sagt starfi sínu lausu.


mbl.is Ósamið við fjölda starfsstétta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðtal

Davíð Oddsson seðlabankastjóri. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, sagði í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld, að krónan muni ná sér á strik á nýjan leik og styrkjast, „því hún er komin langt handan við allt sem við myndum kalla jafnvægisgengi," sagði Davíð.

Ég horfði á þetta viðtal við Davíð Oddson og fannst ekki mikið til koma, eintómt bull og kjaftæði, en mest var ég hissa á þeim sem viðtalið tók.  Sá aðili talaði við Davíð með svo mikilli lotningu að það var eins og verið væri að tala við konungborinn mann.  Ef það er rétt hjá Davíð að þetta mikla fall krónunnar er vegna erlendra áhrifa, þá vaknar sú spurning af hverju fellur bara íslenska krónan en ekki gjaldmiðlar annarra landa?  Einnig fannst mér lítilmannlegt af Davíð að vera með ásakanir á talamenn greiningardeilda bankanna, sem ekki voru í þættinum til að svara fyrir sig.  Ekki nefndi Davíð að Seðlabanki Íslands hefði brugðist skyldum sínum.  Nei núverandi ástand er öllum öðrum að kenna.  Ekki tel ég að svona drottningaviðtöl geri mönnum fært að greina vandann. nema síður sé.


mbl.is Davíð segir að krónan muni ná sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband