Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Áreiti í Laugardalnum

 Grasagarður Reykjavíkur í Laugardal. „Það er ákveðin vísbending um að við þurfum að auka eftirlit ef við fáum tilkynningar frá fólki, en því er ekki fyrir að fara í Laugardalnum,“ segir Árni Þór Sigmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta er eitthvað skrýtið þegar maður sem gengur þarna um á hverjum degi hefur aldrei orðið var við neitt óeðlilegt og lögreglan hefur ekki fengið neina tilkynningu um neitt slíkt.


mbl.is Kannast ekki við áreiti og ofbeldi í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Simbabve

Morgan Tsvangirai og Robert Mugabe eiga enn í samningaviðræðum. Samningamönnum tókst ekki að komast að samkomulagi um skiptingu ráðherraembætta í Simbabve í dag. Talsmenn stjórnarandstöðunnar MDC neituðu tillögum og sögðust ekki vera hækja ZANU-PF flokksins, flokks Roberts Mugabe.

Það var eftir öðru að Mugabe vildi ráða öllu og þá halda deilurnar og öll drápin á fólki áfram.  Það er grátlegt til þess að hugsa hvernig komið er fyrir þessu landi vegna einræðisáráttu Mugabe.  Þetta land gæti verið eitt það auðugasta í Afríku ef rétt væri á málum haldið.  En Mugabe hrakti alla hvíta bændur af jörðum sínum og afhenti þær sínum stuðningsmönnum, sem kunnu svo ekkert til verka og allur landbúnaður er í rúst og þjóðin sveltur.


mbl.is Ekki nást samningar í Simbabve
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt fjall

Hæð í Wales hefur verið skilgreind sem fjall eftir að þrír göngumenn sem fóru upp á hana komust að því að opinber mæling á henni var aðeins of lág.

Þarna munaði víst 0,75 úr tommu, en dugði samt til að breyta hæðinni í fjall.  Hverju það svo aftur á móti breytir veit ég ekki.  Nú held ég að nýríki útgerðarmaðurinn sem á sumarbústað í Borgarfirði verði að mæla sitt fjall til að fá það staðfest að það sé ekki bara einhver hæð.  En þetta fjall keypti útgerðarmaðurinn á sínum tíma vegna þess að það blasti við úr stofuglugganum á sumarhúsinu.  Sá sem seldi var auðvitað mjög ánægður að fá peningana fyrir fjallið og getur horft á það jafnoft og útgerðarmaðurinn.  Því ekki stendur til að fjallið verði flutt í burtu.


mbl.is Hæðin sem varð að fjalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr lögreglustjóri?

Jóhann Benediktsson. Til stendur að auglýsa stöðu lögreglustjórans á Suðurnesjum í apríl næstkomandi. Þá lýkur fimm ára skipunartíma Jóhanns R. Benediktssonar sem gegnt hefur embætti lögreglustjóra.

Þetta mun ver eindæmi að verið sé að auglýsa stöðu hjá ríkinu þegar sá sem stöðunni gegnir hefur ekki sagt starfi sínu lausu.  Þetta er nú bara eitt ruglið í viðbót hjá Birni Bjarnasyni og sem ástæðu nefnir hann að þetta embætti hafi farið fram úr sínum fjárheimildum.  Jóhann R. Benediktsson hefur staðið sig vel í sínu starfi og hefur náð ótrúlegum árangri við fíkniefnaleit á Keflavíkurflugvelli, sem að sjálfsögðu hefur kostað mikla peninga og jafnvel verið orsök þess að embættið fór fram úr fjárheimildum.

Það eru margir, bæði stofnanir og ráðuneyti sem fara fram úr sínum fjárheimildum og ef þessi regla ætti að gilda um þá alla, þá væru margir sem yrðu að hætta bæði forstöðumenn ríkisstofnanna og einstakir ráðherrar.


mbl.is Skipt um lögreglustjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferðamenn

 Veiking krónunnar hefur ekki farið fram hjá erlendu ferðamönnunum frekar en okkur Íslendingunum. Meðan margir kvarta yfir því hversu dýrt er að fara til útlanda, gista þar á hóteli, borða úti og versla, gleðjast ferðamennirnir yfir því hve hagstætt er að dvelja hér – a.m.k. hagstæðara en áður.

Ég sá í fréttum að þegar borið var saman verð á bjór á pöbb og tekin nokkur lönd til samanburðar og verðið reiknað í gjaldmiðli hvers lands, þá reyndist bjórinn ódýrastur á Íslandi.  Aftur á móti er þetta mikla fall krónunnar ekki eins ánægjulegt fyrir okkur íslendinga, því við höfum í raun fengið kjaraskerðingu sem nemur falli krónunnar.


mbl.is Krónan glæðir áhuga ferðamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íþróttahús

Bygging Mest á Norðlingaholti. Hugmyndir eru uppi um að flytja fimleikadeild og karatedeild Fylkis í Árbæ í fyrrverandi húsnæði Mest á Norðlingabraut 12. Kjartan Magnússon, formaður stjórnar íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar, segir ýmsa kosti til skoðunar og þetta sé einn þeirra.

Um að gera að nýta þetta hús sem stendur autt og engum til gagns eða ánægju.


mbl.is Breytist byggingavöruverslun í fimleikahús?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Berlínarmúrinn

Kíkt yfir Berlínarmúrinn á minningarreit í Bernauer Strasse. Að sögn talsmanna uppboðshúss í Berlín hefur eitt af síðustu múrbrotum Berlínarmúrsins verið selt fyrir sem nemur rúmri einni milljón króna.

Eitthvað hefur þá fengist fyrir múrinn allan.  Hins vegar skil ég ekki hvað fólk hefur svona mikinn áhuga á að eiga einhver múrbrot til minja um Berlínarmúrinn.  Því hann var í raun tákn um kúgun og valdníðslu.  Ég var svo heppinn að vera staddur í Þýskalandi þegar þýsku ríkin tvö sameinuðust og annað eins fjör og ánægju hef ég aldrei upplifað, hvorki fyrr né síðar.


mbl.is Berlínarmúrinn seldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næ atvinna

 „Vinnumarkaðurinn er ótrúlega sprækur miðað við það sem búast mætti við. Það má segja að fyrirtæki hafi nú tækifæri til að vanda sig meira. Á svona tímum er meira úrval af fólki. Nú geta fyrirtæki leyft sér að spá og spekúlera og vanda valið. Það er kannski það sem við finnum einna mest fyrir.“ Katrín S. Óladóttir er framkvæmdastjóri Hagvangs.

Vonandi verður þetta svona áfram og ekki komi til fjöldaatvinnuleysis, eins og margir voru búnir að spá og sumir aðilar óskuðu eftir.


mbl.is Enn nóg af störfum í boði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskt efni

Svartir englar munu ekki skyggja á þessa félaga. Samkomulag náðist í dag á milli Sjónvarpsins og Stöðvar 2 um tilfærslur á dagskrá stöðvanna til að koma í veg fyrir skörun nýrra íslenskra sjónvarpsþátta sem báðir eru vænlegir til vinsælda.

Þetta er gott mál hjá þessum sjónvarpsstöðvum.  Það er ekki boðið upp á svo mikið af íslensku efni á þessum stöðvum að óþarfi var að sýna þetta á sama tíma.  Svona eiga menn að vinna saman, það er að hugsa um neytandann frekar en sjálfa sig.


mbl.is Báðir þættir fá að njóta sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landhelgisgæslan

 Ægir og Týr í Reykjavíkurhöfn í sumar. Skipum Landhelgisgæslu Íslands hefur verið lagt við Reykjavíkurhöfn í sparnaðarskyni. Þetta staðfesti Sólmundur Már Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landhelgisgæslunnar, við 24 stundir í gær. Hár olíukostnaður hefur verið íþyngjandi fyrir rekstur Gæslunnar það sem af er ári.

Hvers konar andskotans vitleysa er þetta að verða.  Er ekki nýbúið að stofna einhverja Öryggisstofnun með miklum kostnaði og svo eru ekki til peningar til að kaupa olíu á varðskipin.  Til hvers vorum við að færa okkar landhelgi í 200 sjómílur en við getum síðan ekki haft eftirlit með okkar hafssvæði.  Hver er svo raunverulegur sparnaður með því að láta skipin liggja í höfn?  Það eru allar áhafnir á fullum launum svo bætast við hafnargjöld ofl.  Verður þetta kannski næsta einkavæðing?  Það er oft skrýtinn sparnaður hjá ríkisstofnunum t.d. þegar Hafró fór að hagræða hjá sinni útgerð og seldi skipið Dröfn RE-35 fyrir 15 milljónir til einkaaðila.  Sá sem keypti hefur verið með skipið í fullum rekstri allt árið í verkefnum fyrir Hafró og hagnast vel.  Ætli Landhelgisgæslan geri ekki eitthvað svipað.  Nú er verið að smíða stórt og mikið varðskip fyrir Ísland í Chile og eitthvað kostar nú að fylla það af olíu.  Til hvers er verið að smíða þetta nýja skip ef hlutverk þess verður bara að liggja bundið í Reykjavíkurhöfn, ef hægt verður að kaupa olíu til að sigla því heim.


mbl.is Skipum Landhelgisgæslu lagt til að spara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband