Bloggfærslur mánaðarins, september 2008
21.9.2008 | 07:46
Flugfélög
Finnska flugfélagið Finnair hefur áhuga á að kaupa áætlun skandinavíska flugfélagsins SAS á lengri leiðum ef þær eru til sölu, sagði Jukka Heinonen, forstjóri Finnair. Í síðustu viku var tilkynnt að þýska félagið Lufthansa væri að kanna möguleika á að yfirtaka SAS, sem átt hefur í fjárhagsvandræðum.
Flest flugfélög í heiminum eiga í erfiðleikum í dag, bæði vegna hins há eldsneytisverðs og fækkun farþega. Því er spáð að miklar sameiningar flugfélaga muni eiga sér stað á næstunni og sum verði jafnvel gjaldþrota.
![]() |
Vilja kaupa lengri áætlunarleiðirnar af SAS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2008 | 07:41
Tjaldbúar
Heimilislausum í Bandaríkjunum hefur farið fjölgandi frá því að merki sáust um samdráttinn í bandarísku efnahagslífi á síðasta ári, að því er samtök er hjálpa heimilislausum þar í landi segja. Mun fleira fólk býr nú í tjöldum vegna þess að það hefur misst heimili sín vegna kreppunnar.
Ekki var Bush að hugsa um þetta fólk þegar stjórn hans ákvað að ausa nokkur hundruð milljónum í bandarísk fjármálafyrirtæki.
Þetta er líka til á Íslandi, því miður og fer vaxandi.
![]() |
Tjaldbúum fjölgar í kreppunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2008 | 07:36
Mótmæli
Þúsundir vinstrisinnaðra mótmælenda lentu í átökum við lögreglu í Köln í Þýskalandi í dag, eftir að þeir höfðu reynt að stöðva samkomu hægri-öfgasinna, sem lögreglan síðan bannaði. Vildu hægrimennirnir mótmæla svonefndri íslamsvæðingu og fyrirhugaðri byggingu einnar stærstu mosku í Evrópu.
Er þetta sem á eftir að koma upp hér á landi. Sá aðili sem flytur til annars lands hlýtur að gera sér grein fyrir því að viðkomandi þarf að aðlaga sig að lífsháttum sem eru í nýja landinu. Það er bara frekja og yfirgangur að ætlast til þess að hver sem er geti flutt í annað land og búið það eins og hann gerði í gamla landinu. Ég get heldur ekki skilið þessa áráttu þeirra sem eru Íslamstrúar að vilja endilega byggja mosku í því landi sem þeir fluttu til. Ef þeir geta ekki verið án mosku áttu þeir aldrei að flytja. Það er ekki bæði sleppt og haldið í þessum málum.
![]() |
Mótmæltu innrás innflytjenda í Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2008 | 07:25
Blökkumenn
Djúpstæðir kynþáttafordómar hvítra kjósenda demókrataflokksins gætu kostað Barack Obama, forsetaframbjóðanda flokksins, sigurinn ef jafnt verður á mununum í kosningunum, samkvæmt nýrri könnun. Þriðjungur þessara kjósenda hefur neikvæðar hugmyndir um blökkumenn.
Ég hélt nú að bandarískir kjósendur væru fyrir löngu hættir að flokka fólk eftir litarhætti, en svo virðist ekki vera og mikið getur það verið lífseigt í þessu landi að hvítir séu eitthvað betri en dökkir. Báðir stóru flokkarnir sækjast eftir atkvæðum þessa fólks en virðast líta niður til þess um leið.
![]() |
Kynþáttafordómar gætu kostað Obama sigurinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2008 | 07:18
Húsnæðisbréf
Ríkisstjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta hefur farið fram á það við þingið að það veiti stjórninni heimild til að kaupa húsnæðisskuldabréf, sem ekki fást greidd, fyrir alls um sjö hundruð milljarða dollara. Er þetta liður í umsvifamestu björgunaraðgerðum stjórnvalda í fjármálageiranum í marga áratugi.
Eru ekki að verða vatnaskil í alheimssögunni. Fall Berlínarmúrsins var tákn um hrun kommúnismans og nú gera Bandaríkin upp við kapíltalismann og frjálsa hagkerfið og er sá þáttur liðin undir lok. Hvað stendur þá eftir? Er það bara Guðni Ágústsson og Framsókn.?
![]() |
Biðja um 700 milljarða dollara fjárveitingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2008 | 07:07
Fjármál
Undanfarnar vikur hafa bandarísk stjórnvöld hlaupið undir bagga með illa stöddum fjármálafyrirtækjum með einum eða öðrum hætti og hleypur kostnaðurinn á hundruðum milljarða dala. Það er undarlegt að í landi kapítalismans skuli ríkið þurfa að eyða mörg hundruð milljón dollurum í aðstoð við illa stödd fyrirtæki. Er ekki eitt af boðorðum kapítalismans einmitt það, að ríkisafskipti af fyrirtækjum séu af hinu illa og fyrirtækin eigi að sjá um sig sjálf á hinum frjálsa markaði.
Hver ætli verði síðan látin borga reikninginn að lokum? Auðvitað bandarískir skattgreiðendur.
![]() |
Skattgreiðendur munu þurfa að borga brúsann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2008 | 06:55
Lottó
Enginn mun hafa verið með allar tölur réttar í Lottódrætti kvöldsins, en fyrsti vinningur var tæplega 8,6 milljónir. Einn var með fjórar tölur réttar að viðbættri bónustölu og fær 376 þúsund krónur í vinning. Þrjátíu og tveir voru með fjórar tölur réttar og fær hver um sig rúmlega 35 þúsund krónur í vinning.
Þetta eru góðar fréttir fyrir mig, því ég gleymdi að kaupa miða og þá verður potturinn þrefaldur næst og þá vinn ég, það er öruggt.
![]() |
Enginn með allar tölur réttar í Lottó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2008 | 06:52
Lögreglan
Með endurskipulagningu má fjölga lögreglumönnum á götum höfuðborgarsvæðisins um tugi, að sögn Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins. Í tillögum hans felst að LRH fái sérsveitina og fjarskiptamiðstöðina til sín.
Þetta held ég að verði þungur róður hjá Stefáni Eiríkssyni þótt tillögurnar séu góðar. Hann er þarna að leggja til að LRH fái til sín ákveðna hluta sem í dag tilheyra ríkislögreglustjóranum Haraldi Johannessen og sleppir ekki auðveldlega neinu frá sér. Ætli við fáum ekki fljótleg að heyra frá Birni Bjarnasyni að það verði að stokka upp hjá þessu embætti og staðan auglýst og Stefán þá kominn á sama bekk og Jóhann R, Benediktsson.
Það vekur furðu að þeir sem standa sig vel hjá lögreglunni skuli ekki vera í náðinni hjá þeim fóstbræðrum Haraldi og Birni.
![]() |
Tugir lögreglumanna á göturnar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2008 | 06:41
Læknar
Fundi samninganefnda lækna og ríkisins lauk rétt fyrir klukkan sex án árangurs. Hefur nýr fundur verið boðaður 1. október, að því er fram kom í kvöldfréttum RÚV.
það var vitað mál að eftir samninginn við ljósmæður kæmu fleiri stéttir í kjarabaráttuna og nú er komið að læknum. Ég studdi ljósmæður í þeirra kjarabaráttu og fannst hún sanngjörn og eins mun ég styðja lækna og fleiri stéttir sem eiga eftir að koma. Ríkisvaldið er búið að sýna fordæmi í að allir eigi að fá kjarabætur og það skeði þegar Kjararáð úrskurðaði launahækkun til þingmanna, ráherra og allra æðstu menn þjóðarinnar og það sem meira var að hækkunin var afturvirk frá 1. maí 2008. Ef ríkisvaldið telur að öll laun eigi að vera óbreytt ættu allir þeir sem að fengu hækkun hjá Kjararáði að afþakka þær og sýna í verki hver þeirra stefna er í kjaramálum. En ekki á ég von á að þeir afþakki sínar hækkanir og senda þá um leið þau skilaboð til allra stétta að kjarahækkun sé réttlætanleg. Því munu næstu mánuðir fara í kjaradeilur, sem eðlilegt er. Nú þarf Kjararáð að koma saman aftur og meta hækkun til ljósmæðra og finna út aðra hækkun til sinna manna. Þetta Kjararáð er réttlætt með því að þær stéttir sem hún ákveður laun fyrir geti ekki samið við ríkið og hafi ekki verkfallsrétt. Þessu má auðveldlega breyta og allt í lagi að þessir hópar fái verkfallsrétt og Kjararáð verði samningsaðili fyrir hönd ríkisins.
![]() |
Samningafundur árangurslaus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2008 | 06:09
Lögregluembætti
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að frá því Jóhann Benediktsson var skipaður sýslumaður á Keflavíkurflugvelli fyrir fimm árum hafi embættið tekið stakkaskiptum. Hann hafi auk þess ákveðið að breyta embættinu á næstunni. Skýr efnisleg rök séu fyrir því að auglýsa embættið laust til umsóknar.
Það er sama hvernig Björn Bjarnason reynir að kjafta sig út úr þessu máli, þá skín í gegn að þetta er einungis gert til að hrekja Jóhann R, Benediktsson úr embætti og þær breytingar sem Björn segist ætla að gera á embættinu eru ekkert að ske á næstunni. Því frumvarp Björns um þær breytingar situr fast í þingflokki Samfylkingar og engar breytingar verða gerðar fyrr en það frumvarp verður að lögum. Þetta mun allt gert að undirlægi Haraldar Johannessen, ríkislögreglustjóra sem öllu vill ráða. Mér finnst Björn tala eins og hann sé einræðisherra, en það er hann sem betur fer ekki.
![]() |
Embætti lögreglustjóra breytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Arnfirðingur
- Bíldudalur
- Bolungarvík
- Bæjarins besta á Ísafirði
- Guðrún Rebekka Jakobsdóttir Edinborg
- Falið vald
- Flateyri
- Frjálslyndi flokkurinn
- Ísafjörður
- Júdit Krista Jakobsdóttir, Bíldudal
- Kristinn Ásgeirsson, Danmörku
- Kristinn H. Gunnarsson
- KVÓTASVINDLIÐ MITT
- Mats Wibe Lund
- Óvinir Ísland
- Skipamyndir Þorgeir Baldursson ljósmyndari
- Suðureyri
- Strandabyggð
- Súðavík
- Tálknafjörður
- Tíðis-fréttavefur
- Vesturbyggð
- VÍSIR.IS
SKIPAMYNDIR
- Fiskistofa Ýmsar upplýsingar
- Gísli Reyisson Aflafréttir
- Hafþór Hreiðarsson Skipamyndir
- Ragnar í Grindavík Skipamyndir
- Skip.is Ýmsar upplýsingar
- Þorgeir Baldursson SKIPAMYNDIR
- http://
Bloggvinir
-
Adda bloggar
-
Ágúst H Bjarnason
-
Albertína Friðbjörg
-
Alma Jenny Guðmundsdóttir
-
Anna
-
Anna Guðný
-
Anna Heiða Stefánsdóttir
-
Anna Pálsdóttir! :)
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Apamaðurinn
-
Arinbjörn Kúld
-
Ásgerður Jóna Flosadóttir
-
Arnlaugur Helgason
-
Arnþór Helgason
-
Ársæll Níelsson
-
Ásdís Rán
-
Ásgeir Jóhann Bragason
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásgeir Sveinsson
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Baldur Smári Einarsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Birna M
-
Bjarney Bjarnadóttir
-
Bjarni Baukur
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bjarni Kjartansson
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Bjarki Þór Guðmundsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Björgvin S. Ármannsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Björn Leví Gunnarsson
-
Björn Finnbogason
-
Bragi Sigurður Guðmundsson
-
Bragi Sigurðsson
-
Hommalega Kvennagullið
-
Bwahahaha...
-
Davíð Pálsson
-
Davíð S. Sigurðsson
-
Didda
-
Dunni
-
Edda Agnarsdóttir
-
Edda Sveinsdóttir
-
Eggert Þór Aðalsteinsson
-
Egill Jón Kristjánsson
-
egvania
-
Einar B Bragason
-
Einar Kristinn Guðfinnsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eiríkur Sjóberg
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Emil Örn Kristjánsson
-
J. Einar Valur Bjarnason Maack
-
Elín Margrét Guðmundsdóttir
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
-
FF
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Faktor
-
Fannar frá Rifi
-
Finnur Bárðarson
-
Fjarki
-
Friðrik Höskuldsson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Georg Birgisson
-
Gestur Guðjónsson
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnar Þór Ólafsson
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðjón Ó.
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Guðmundur Zebitz
-
Guðni Gíslason
-
gudni.is
-
Guðrún Hafdís Bjarnadóttir
-
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðrún Helgadóttir
-
Guðrún S Hilmisdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Sigurðsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Haffi
-
Hafrún Kristjánsdóttir
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
-
Halla Rut
-
Halldór Sigurðsson
-
Halldór Örn Egilson
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Heiður Helgadóttir
-
Helga Dóra
-
Helga Sigrún Harðardóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Himmalingur
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
hilmar jónsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjalti Sigurðarson
-
Hjartagullin mín
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Hlekkur
-
Huld S. Ringsted
-
Hólmdís Hjartardóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
hreinsamviska
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Hörður Halldórsson
-
Hörður Hilmarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Kristinsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Jens Sigurjónsson
-
Jóhannes Jónsson
-
Jóhanna Fríða Dalkvist
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jón Baldur Lorange
-
Jón Halldór Eiríksson
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Finnbogason
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Kama Sutra
-
Karl Tómasson
-
Karl V. Matthíasson
-
Katrín
-
Kjarri thaiiceland
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristinn Sigurjónsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Kristján Pétursson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Lilja Skaftadóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Lýður Árnason
-
Maddý
-
Magnús Þór Friðriksson
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Marinó Hafnfjörð Þórisson
-
Magnús H Traustason
-
Marinó Már Marinósson
-
Marzellíus Sveinbjörnsson
-
Morgunblaðið
-
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Natan Kolbeinsson
-
Níels A. Ársælsson.
-
Ólafía Margrét Guðmundsdóttir
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Tryggvason Þorsteinsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólafur Tryggvason
-
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
-
Ólöf de Bont
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Paul Nikolov
-
Páll Höskuldsson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
percy B. Stefánsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Borgþórs
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Ragnhildur Jónsdóttir
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Regína R
-
Ruth
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Rögnvaldur Þór Óskarsson
-
Samtök Fullveldissinna
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigríður Hafdís Þórðardóttir
-
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir
-
Sigurður Haukur Gíslason
-
Sigurður Jón Hreinsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Snorri Bergz
-
Sigurjón Sveinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinþór Ásgeirsson
-
Svartagall
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sólveig Aradóttir
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
TARA
-
Tiger
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valbjörn Júlíus Þorláksson
-
Valdimar Leó Friðriksson
-
Valan
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Viggó H. Viggósson
-
Vilborg Auðuns
-
Þórbergur Torfason
-
ÞJÓÐARSÁLIN
-
Þórhallur Heimisson
-
Þórhallur Pálsson
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Þórir Kjartansson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Jóhannesson
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Jón V. Þorsteinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 24.1.2010 Jakob Kristinsson er látinn.
- 21.1.2010 Spakmæli dagsins
- 21.1.2010 Obama
- 21.1.2010 Icesave
- 21.1.2010 Mótmælendur ákærðir
- 21.1.2010 Norwegian
- 21.1.2010 Kaninn og RÚV
- 21.1.2010 Látinn laus
- 21.1.2010 Kína
- 21.1.2010 Hvað vill félagsmálaráðherra?
200 dagar til jóla
Nýjustu færslurnar
- Vildu ekki fá Markús
- Umbreyting á lífi mans gerir hann að nýrri veru.
- Undarleg rök þingmanna
- 24 sinnum fleiri skaðatilkynningar en vegna allra annarra bóluefna samanlagt
- Trump, Musk og skuldafjallið
- Vitvél í stað utanríkisráðuneytis
- Sterkur vilji til að afmá tákn þjóðríkisins, þjóðfánann.
- Bókun 35, hvers vegna nú?
- Bæn dagsins...
- Nýja slagorð trans hreyfingarinnar- verið hrædd við okkur-