Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Flug

Mynd 473206 Fullyrt er í nýrri skýrslu alþjóðasamtaka flugvirkja að bilanir í flugvélum séu sjaldan skráðar í viðhaldsskrár þeirra fyrr en vélarnar eru á leið til heimaflugvallar eða vallar þar sem flugfélagið sem á vélina er með viðgerðaraðstöðu.

Hvað ætli valdi þessu?  Ekki trúi ég að um kæruleysi sé að ræða, frekar einhver gamall vani.  En hvað um það Flugmálstjórn verður að sjá til þess að þessir hlutir séu í lagi hér á landi.


mbl.is Vélarbilanir sjaldan skráðar samstundis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raforka

Össur Skarphéðinsson segir að jarðhitinn sé takmarkaður í... Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segist furða sig á umsókn landeigenda í Reykjahlíð í Mývatnssveit um rannsóknarleyfi og forgang að nýtingu jarðvarmaorku í eignarlandi sínu. Landeigendurnir vilja reisa nýja 50 vatta virkjun á Bjarnaflagssvæði.

Hversvegna er Össur svona undrandi á þessari umsókn?  Jú það er vegna þess að þetta svæði er frátekið fyrir Landsvirkjun.  Össur virðist ekki átta sig á því að þessi umsókn er frá þeim sem eiga landið.  Á Landsvirkjun einhver rétt umfram þá.?  Þótt talið sé að ekki sé skynsamlegt að virkja meira en 90 megavött á þessu svæði, þá ætla landeigendur að virkja 50 megavött.  Væri ekki best ef landeigendur fengju að virkja allt það sem má eða 90 megavött og seldu síðan rafmagnið til Landsvirkjunar.  Það myndi þó spara Landsvirkjum eina virkjun og auka hag landeigenda.


mbl.is Umsókn landeigenda í Reykjahlíð vekur furðu ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrverandi risar

Unnið er að mikilli uppstokkun á Wall Street.Tveir stærstu fjárfestingabankar Bandaríkjanna sem eftir standa, Goldman Sachs og Organ Stanley hafa breyst í venjulega viðskiptabanka og geta því tekið við innlögn frá fjárfestum. Seðlabanki Bandaríkjanna samþykkti óskir frá bönkunum þessa efnis í gærkvöldi.

Eru íslensku bankarnir þá ekki venjulegir viðskiptabankar, því þeir eru allir einnig fjárfestingarbankar.  Ég held að Davíð verði að skoða það eitthvað betur.


mbl.is Risar breytast í venjulega banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldsvoði

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins slökkti eldinn. Eldur kom upp í dráttarvélum og búnaði hjá garðverktaka við Kársnesbraut í Kópavogi um klukkan fjögur í nótt. Að sögn varðstjóra slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var eldurinn töluvert mikill á opnu svæði milli húsa.

Hvernig stendur á því að alltaf eru að gjósa upp eldsvoðar, gengur einhver brennuvargur laus eða er fólk bara svona kærulaust.


mbl.is Eldsvoði hjá verktaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjarasamningar

Frá Akranesi.Gríðarlegar væntingar eru hjá starfsmönnum Elkem Íslands og Klafa til nýs kjarasamnings. Trúnaðarmenn fyrirtækjanna funduðu með Samtökum atvinnulífsins fyrir helgi þar sem farið var yfir komandi kjaraviðræður.

Vonandi tekst þeim að semja án nokkurra vandræða og er reyndar mjög líklegt því þarna er verið að semja við stóriðjufyrirtæki og þar sem allar þeirra tekjur eru í erlendri mynnt þá hlýtur hið mikla gengisfall krónunnar að auka þeirra tekjur sem ætti að auðvelda þeim að hækka laun í íslenskum krónum.


mbl.is Væntingar til samnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Demantur

Risademantur fannstí Lesoto.Námuverkamenn í Lesoto í Suður-Afríku fundu gríðarlega stóran demant sem gæti hugsanlega orðið meðal stærstu slípuðu demöntum í heimi. Lesoto-steinninn er 478 karöt og er 20. stærsti steinn sem fundist hefur.

Þarna fá íslenskir auðmenn eitthvað til að fjárfesta í, því ekki þýðir lengur að kaupa verðlaus hlutabréf á markaði.


mbl.is Risademantur fannst í jörðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evra

Evruvæðingin sem hefur átt sér stað hér á landi á þátt í því hversu grátt alþjóðlega fjármálakreppan hefur leikið íslenska fjármálakerfið. Þetta segir Friðrik Már Baldursson, prófessor við Háskólann í Reykjavík, en hann flytur erindi á ráðstefnu í Þjóðmenningarhúsinu á morgun um þá möguleika sem Ísland stendur frammi fyrir í gjaldeyrismálum.

Nú kætist Davíð Oddson þar sem þessi ágæti prófessor er búinn að finna sökudólginn fyrir öllum okkar vandræðum á fjármálamörkuðum.  Ástæðan er evran þótt hún hafi ekki verið tekin upp sem okkar gjaldmiðill, en einhver fyrirtæki gera upp í evrum.  Þá ætti að ver létt verk að koma hlutunum í lag þegar búið er að finna örsökina fyrir lágu gengi og mikilli verðbólgu.


mbl.is Erfitt vegna evru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandamál

Mynd 405279 Ríflega þriðjungur fólks á aldrinum 18-35 ára er þeirrar skoðunar að hátt húsnæðis- og leiguverð sé helsta vandamálið sem mæti ungu fólki sem er að flytja að heiman og stofna fjölskyldu.

Ég vorkenni því fólki sem þarf að reiða sig á húsaleigumarkaðinn og skil ekki hvernig fólk fer að til að geta þessa háu húsaleigu.

Ég hef skrifað um það áður að nú standa milli 3,000-4.000 íbúðir auðar á höfuðborgarsvæðinu og flestar tilbúnar.  Ríkið og Reykjavíkurborg ættu að stofna félag og kaupa allar þessar íbúðir og leigja út á hóflegu verði.  Svona aðgerð myndi bæði bjarga byggingaraðilum og leysa vandamálið á leigumarkaðinum. Ef allur þessi fjöldi íbúða kæmi inn á leigumarkaðinn myndi húsaleiga lækka mikið og verða viðráðanleg fyrir flesta.


mbl.is Kreppir að fjárhag unga fólksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fækkun banka

Mynd 475314 Eigendur Glitnis og Byrs sparisjóðs hafa komist að samkomulagi um að hefja formlegar viðræður um sameiningu bankanna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður það tilkynnt til Kauphallar Íslands í dag. Óformlegar undirbúningsviðræður hafa staðið yfir og var meðal annars beðið eftir samþykki Fjármálaeftirlitsins til að breyta Byr í hlutafélag. Það fékkst á föstudaginn.

Þeim fækkar stöðugt sparisjóðunum og á eftir að fækka meira.  Það er af hinu góða að taka til í bankakerfinu.  En það getur líka haft neikvæð áhrif sérstaklega á landsbyggðinni.  Sparisjóður Vestfirðinga varð til þegar allir sparisjóðir á Vestfjörðum sameinuðust fyrir nokkrum árum og var með útibú á öllum þéttbýlisstöðum á Vestfjörðum.  Síðast liðið haust sameinaðist þessi sparisjóður, Sparisjóðnum í Keflavík og þá var tilkynnt að allt yrði óbreytt fyrir vestan.  En nú þegar Sparisjóðurinn í Keflavík tapaði 10,5 milljörðum fyrstu sex mánuði þessa árs, þá á að grípa til hagræðingar í rekstri.  Hvar er svo byrjað að hagræða? Auðvitað á Vestfjörðum og nú hefur verið tilkynnt um lokun útibúa á Tálknafirði og Bíldudal en báðir þessir staðir standa höllum fæti hvað atvinnu varðar.  Fólk á þessum stöðum batt miklar vonir við að fá hinn sterka Sparisjóð Keflavíkur til sín, en hann byrjar sína starfsemi þar með lokun útibúa í stað þess að efla atvinnulíf á þessum stöðum, dregur hann úr því þar sem þeir fáu sem þarna unnu missa sína atvinnu.  Ekki veit ég hvað kostaði að reka þessi tvö útibú en er þó öruggur um að þessi sparnaður er sáralítill miðað við 10,5 milljarða tap á hálfu ári.  Nú verða íbúar á þessum tveimur stöðum að sækja alla sína bankaþjónustu til Patreksfjarðar og fara yfir tvo erfiða fjallvegi ef þeir eru svo heppnir að eiga bíl.  Þetta er mikil afturför fyrir íbúa á þessum stöðum og breytir engu fyrir Sparisjóðinn í Keflavík.  Hitt vekur líka furðu að ekki á að loka útibúinu á Ísafirði þótt þar séu tveir aðrir bankar, bæði Landsbankinn og Glitnir.  Nei það er valinn sá kostur að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur.  Síðan er spurning hvað verður um póstafgreiðslu á þessum stöðum, leggst hún kannski af líka, en póstafgreiðslur voru í báðum þessum útibúum.


mbl.is Byr sameinast Glitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laun

Mynd 469094 Ríflega þriðjungur svarenda á aldrinum 18 til 35 ára í könnun sem Félagsvísindastofnun vann fyrir ASÍ telur eðlilegt að Íslendingar njóti betri kjara á vinnumarkaði en fólk af erlendum uppruna. Þessi niðurstaða stingur í stúf við önnur svör sem leiddu m.a. í ljós að langflestir töldu að ASÍ ætti að leggja áherslu á launa-, jafnréttis- og mannréttindamál í starfi sínu.

Þessu er ég ekki sammála, það eiga allir að fá sömu laun fyrir sömu vinnu.  Bæði íslendingar og erlent fólk.  Hinsvegar hefur borið talsvert á því að erlent fólk býður fram vinnu sína fyrir lægri laun en kjarasamningar segja til um og með tilliti til þess verður útkoman svona.


mbl.is Telja eðlilegt að útlendingar séu með lakari laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband