Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Ásdís Rán

Ásdís Rán Ásdís Rán Gunnarsdóttir, fyrirsæta og kona Garðars Gunnlaugssonar knattspyrnumanns, var á laugardag lögð inn á sjúkrahús í Búlgaríu vegna verkja í kviði.

Þetta fór nú allt saman vel sem betur fer.  Það var gerð á henni aðgerð sem heppnaðist vel.


mbl.is Ásdís Rán í bráðri lífshættu í Búlgaríu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lestarslys

Símanotkun lestarstjórans er nú í athugun.Rannsóknarmenn sem rannsaka lestarslysið í Suður-Kaliforníu á föstudaginn var segjast vilja athuga hvort lestarstjórinn hafi verið upptekinn við að senda sms-smáskilaboð úr farasíma sínum er hann ók framhjá stöðvunarmerki.

Þetta er nú óafsakandi kæruleysi hjá lestarstjóranum.


mbl.is Símanotkun gæti hafa truflað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neyðarsendar

Cospas-Sarsat-gervihnattakerfið hættir að vinna úr merkjum neyðarsenda á 121,5/243 MHz frá 1. febrúar 2009.

Þetta mun vera gert til að drag úr fölskum neyðarsendingum, en aðeins 1 af hverjum 50 sendingum er þar sem raunveruleg neyð var fyrir hendi.


mbl.is Hægt að draga úr fölskum neyðarsendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldsneytisverð

Engar breytingar hafa orðið á útsöluverði á bensíni og dísilolíu hjá olíufélögunum þrátt fyrir umtalsverðar lækkanir á hráolíu á heimsmarkaði að undanförnu. Eldsneytisverð hefur að mestu haldist óbreytt hjá félögunum frá 20. ágúst.

Alltaf finna olíufélögin einhverja á stæðu fyrir því að lækka ekki verð á eldsneyti.  Enda ekkert skrýtið þar sem tvö af hinum stóru olíufélögum voru keypt nýlega með svokallaðri skuldsettri yfirtöku og nú er komið að því að greiða skuldirnar.  Þetta eru N1 og Skeljungur en bæði þessi fyrirtæki berjast nú í bökkum við að halda rekstrinum gangandi.


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flutningsjöfnunarsjóður

Starfshópur um fyrirkomulag flutningsjöfnunar leggur til að flutningsjöfnunarsjóður olíuvara verði starfræktur áfram, en að lögin um hann verði endurskoðuð. Þetta kemur fram í skýrslu starfshópsins sem viðskiptaráðherra skipaði í árslok í fyrra.

Þetta kemur sér vel fyrir landsbyggðina, því ef þessi sjóður hefði verið lagður niður myndi verð á bensíni og olíu stórhækka á landsbyggðinni og er nú ekki ábætandi við öll vandræðin þar.


mbl.is Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara verði starfræktur áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fæðingum fjölgar

Mynd 445025 Enn fjölgar þeim sem sækja sér þjónustu Landspítalans, en þeir voru fjögur þúsund fleiri fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum starfsemistölum spítalans.

Þótt ljósmæður séu i verkfalli halda börnin áfram að fæðast og litið þýðir fyrir ríkisvaldið að biðja ófrískar konur um að bíða þar til kjaradeilan við ljósmæður er leyst.


mbl.is Fæðingum fjölgar enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðstoðarmenn

Alls hafa 22 alþingismenn ráðið sér jafn marga aðstoðarmenn í samræmi við ný lög og reglur sem tóku gildi í mars á þessu ári. Aðstoðarmenn formanna stjórnarandstöðuflokkanna fá fullt þingfararkaup, 541.720 krónur, en aðstoðarmenn „óbreyttra“ þingmanna fá 25% af þingfararkaupi, um 135.000 krónur.

Höfum við efni á þessari vitleysu.  Ef þingmenn geta ekki starfað á Alþingi hjálparlaust þá eiga þeir ekkert erindi þangað.  Svo má ekki gleyma því að hver nefnd þingsins hefur löglærðan starfsmann.  Ég hef þá skoðun að fækka beri þingmönnum í 31 og ráðherrar sitji ekki á þingi heldur kalli inn varmann.  Það á líka að gera landið allt að einu kjördæmi eða taka upp einmenningskjördæmi.


mbl.is 22 aðstoða alþingismenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússar

Frá því að rússneskar herflugvélar fóru aftur að láta á sér kræla við Íslandsstrendur eftir að bandaríska herliðið hvarf af landi brott árið 2006 hafa Rússarnir næst farið í um 35 sjómílna fjarlægð frá landi, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Lofthelgi Íslands er 12 sjómílur.

Þetta hlýtur að gleðja Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, sem trúir því enn að kalda stríðið sé ekki búið.  Svo eru þetta líka ágætis rök fyrir því að stofna íslenskan her eins og Björn dreymir um.


mbl.is Rússarnir í 35 sjómílna fjarlægð frá landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljósmæður

Samningaviðræður leiddu ekki til samninga í dag. Tæplega sex klukkustunda fundi fulltrúa ljósmæðra og ríkissáttasemjara lauk fyrir skömmu og er annar fundur boðaður klukkan tíu í fyrramálið. „Við vorum bara að ræða málin," sagði Guðlaug Einarsdóttir formaður ljósmæðrafélagsins eftir fundinn.

Arðvitað náðust ekki samningar, því ríkið er ákveðið að semja EKKI við ljósmæður af einhverjum undarlegum ástæðum.  Það var talsvert skrýtið að hlusta á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra í þættinum Ísland í dag í gærkvöld.  Hún var að tala fyrir því hvað menntun væri mikils virði og það kæmi bæði þjóðarbúinu  og þeim sem stunda menntun til góða.  Hún fullyrti að þeir sem gengju menntaveginn fengju alltaf betri laun eftir því sem menntunin væri meiri.  Henni var þá bent á ljósmæður en þær þurfa fyrst að fara í gegnum 4 ára háskólanám til að verða hjúkrunarfræðingar og bæta síðan tveimur árum við í námi til að verða ljósmæður og eru þá orðnar með lægri laun en hjúkrunarfræðingar.  Þorgerður Katrín komst í hin mestu vandræði að svara þessu.  En sagði þó að hún sem væri að tala fyrir gildi menntunar og ætti erfitt að vera á móti launahækkun ljósmæðra.  Hinsvegar væri sú deila nokkuð sérstök og hún gæti ekki svarað fyrir fjármálaráðherra.  En hún treysti á að samninganefnd ríkisins fyndi lausn á þessari launadeilu.

Hvað er ráðherrann að meina, hún fullyrðir að aukin menntun skili sér í hærri launum, nema hjá ljósmæðrum þeirra launadeila sé svo sérstök.  Ef Þorgerðu Katrín er að meina það sem hún er að segja og geti ekki talað fyrir hönd fjármálaráðherra.  Þá er hún þó ráðherra í þessari ríkisstjórn og jafnframt varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ætti auðvelt með að beita sér í ríkisstjórn til að knýja í gegn samninga við ljósmæður.  Ég ætla að vona að ráðherrarnir tali einhvern tímann saman. 

Ef hún gerir ekkert þá er ekki að marka eitt einasta orð sem þessi ágæta kona er að segja og um leið fer hún að vinna gegn eigin stefnu í menntamálum.


mbl.is Samningar náðust ekki í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

De Code

deCODE lækkaði töluvert í dag.Hlutabréf deCode, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, lækkuðu um 18,82% á bandaríska hlutabréfamarkaðinum í dag og er verð þeirra nú 0,69 dalir á hlut og hefur aldrei farið lægra.

Það er alveg ótrúlegt hvað þetta fyrirtæki hefur getað þolað mikið tap á undanförnum árum.  Þar er ekki um neinar smáupphæðir að ræða, nokkrir milljarðar í tap ár eftir ár.  Þetta segir bara eitt, hve vel þetta fyrirtæki hefur verið fjármagnað í upphafi.  Öll svona fyrirtæki verða að vera undir það búin að tapa fyrstu árin.  En svo allt í einu uppgötvast eitthvað og dæmið snýst algerlega við.  Í stað taps kemur stórgróði, sem gæti orðið nokkrir milljarðar á hverju ári ef ekki meira.  Það er því allt of snemmt að afskrifa þetta fyrirtæki.  Þess tími mun koma.


mbl.is deCode aldrei lægra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband