Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Hundur

„Besti vinur mannsins“ dugar vart til að lýsa Buddy, þýskum fjárhundi í Arizona í Bandaríkjunum sem bjargaði lífi húsbónda síns með því að hringja í neyðarlínuna þegar hann fékk flog.

Þessari sögu trúi ég ekki, þetta er þá einhver undrahundur.


mbl.is Hundur hringdi í neyðarlínuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lækkun á olíu

Frá NYMEX markaðnum í New York þar sem viðskipti með...Verð á hráolíu fór niður fyrir 99 Bandaríkjadali tunnan í rafrænum viðskiptum á NYMEX markaðnum í New York í morgun eftir að í ljós kom að skemmdir á olíuvinnslu við strendur Texas vegna fellibylsins Ike eru minniháttar. Hráolía til afhendingar í október lækkaði um 2,28 dali tunnan í 98,90 dali á NYMEX í morgun.

Enn er olíuverðið að lækka á heimsmarkaði, en ætli sú lækkun skili sér nokkuð til Íslands frekar en oft áður.


mbl.is Verð á hráolíu niður fyrir 99 dali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neyðarlán

Höfuðstöðvar bandaríska seðlabankans í New York. Bandaríska tryggingafélagið American International Group, sem er eitt stærsta tryggingafélag heims, hefur óskað eftir 40 milljarða dala neyðarláni frá seðlabanka Bandaríkjanna. Blaðið New York Times segir, að fyrirtækið geti aðeins starfað í nokkra daga fái það ekki lánið.

Mér finnst alltaf talsvert broslegt þegar fyrirtæki í landi kapitalismans fara skríðandi til ríkisins og biðja um aðstoð eftir að hafa komið sínum fyrirtækjum í stór vandræði.  Þetta eru sömu menn og eru boðberar þess að ríkið eigi ekki að skipta sér af atvinnulífinu og alltag er fasteignalánakreppunni í Bandaríkjunum kennt um taprekstur.


mbl.is Óskar eftir 40 milljarða dala neyðarláni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretland

Mynd 457733 Stærstu stjórnmálaflokkarnir í Bretlandi verða að taka höndum saman um stefnu sem kemur í veg fyrir hrun samfélagsins af völdum aukinnar glæpatíðni og lögleysu, segja tveir breskir þingmenn, annar fyrrverandi leiðtogi Íhaldsflokksins og hinn fyrrverandi ráðherra úr röðum Verkamannaflokksins.

Ég held að það sé komin tími til að gera hliðstætt á Íslandi áður en allt er komið í óefni.


mbl.is Óttast samfélagshrun í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjófar

Mynd 452556 Tveir innbrotsþjófar voru gripnir glóðvolgir er þeir brutust inn í fyrirtæki við Ármúla í Reykjavík í nótt, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Starfsmaður fyrirtækisins var við vinnu og tilkynnti lögreglunni um innbrotið, og lögreglumenn sem voru staddir skammt frá gripu hina óboðnu gesti áður en þeir náðu að láta greipar sópa.

Þetta var gott hjá lögreglunni og það verður að fara að gera eitthvað róttækt varðandi öll þessi innbrot bæði í fyrirtæki og heimili.


mbl.is Gripnir glóðvolgir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirtæki fara á hausinn

Höfuðstöðvar Lehman Brothers í New York.Stórtíðindi urðu á Wall Street um helgina, þegar tvö sögufræg fyrirtæki þar hurfu af sjónarsviðinu, til viðbótar Bear Stearns-bankanum, sem fór á hausinn fyrir hálfu ári. Lehman Brothers var stofnaður fyrir 158 árum. Merril Lynch var stofnaður 1914.

Förum við ekki að sjá hliðstæð dæmi hér á landi fljótlega, ef efnahagsmálin fara ekki að lagast.


mbl.is Sögufræg fyrirtæki á hausinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgunarsveitir

Lilja Magnúsdóttir frá Tálknafirði, ritari stjórnar Slysavarnafélagsins Landsbjargar, hefur velt því upp í stjórn samtakanna hvort sameining lögregluumdæma hafi valdið því að björgunarsveitir séu oftar kallaðar út nú en áður.

Þetta er örugglega rétt hjá Lilju og ef við tökum Vestfirði sem dæmi þá er það orðið að einu lögregluumdæmi.  En samgöngur á milli Norður- og Suðursvæðis Vestfjarða eru ekki komnar í lag ennþá.  Höfuðstöðvar þessa lögregluumdæmis eru á Ísafirði og þar sem ekki er hægt að komast á milli þessara svæða nema um sumarið þá er ekkert eftir nema björgunarsveitirnar ef eitthvað kemur uppá.


mbl.is Björgunarlið í stað lögreglu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flug

Nú er væntanleg frá samgönguráðuneyti ný reglugerð um vinnutímamörk og hvíldartíma flugáhafna. Hún byggist á reglugerðum frá Evrópusambandinu og samevrópskum reglum um flugrekstur og nær til allra félaga sem hafa flugrekstrarleyfi útgefin á Íslandi. Hún er nú í umsögn hjá helstu hagsmunaaðilum og stofnunum á þessu sviði og því ekki fullljóst hvernig endanlegur texti lítur út.

Auðvitað á öryggi í flugi að sitja fyrir öllu öðru, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr.


mbl.is Ekki verði hvikað frá öryggiskröfum í flugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enni

 Gámaþjónusta Vesturlands ehf sem er í eigu Gámaþjónustunnar hefur reist nýja og fullkomna móttökustöð og gámastöð fyrir úrgang og endurvinnsluefni við Ennisbraut í Ólafsvík þar sem áður var fiskverkunarhús.

Það er gott þegar hægt er að finna svona húsum ný hlutverk, þegar ekki eru lengur forsendur til að verka í þeim fisk.


mbl.is Fiskverkun verður gámastöðin Enni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt álver

Unnið við steypuvinnu í Helguvík fyrir helgi. Álver Norðuráls í Helguvík hefur fengið starfsleyfi hjá Umhverfisstofnun og verður því heimilt að framleiða allt að 250.000 tonn af áli árlega.

Þá er þetta mál afgreitt og víst er að þetta verður mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf hér á Suðurnesjum.


mbl.is Álverið fær starfsleyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband