Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Menntafólk

Mun minni líkur eru á að vel menntuð hjón sem eiga börn skilji en hjón með minni menntun.

Samkvæmt því sem fram kemur í rannsókn sem greint er frá í blaðinu  Kristeligt Dagblað, eru 85% líkur á að hjón með börn haldi saman hafi  móðirin lokið framhaldskóla. Hafi móðirin ekki lokið framhaldsskóla eru hins vegar einungis 60% líkur á að börn þeirra alist upp hjá báðum foreldrum.

Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.

Ætli skilnaðir séu kennir í framhaldskólum eða háskólum í Danmörk.


mbl.is Menntafólk kvartar meira en skilur sjaldnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flóttafólkið í Njarðvík

Farzad Rahmanian utan við lögreglustöðina í Reykjanesbæ.Hælisleitandinn Farzad Rahmanian, frá Íran, sem sat fyrir utan lögreglustöðina í Reykjanesbæ í mótmælaskyni í rúman sólarhring í gær er hættur sinni mótmælasetu. Lögreglan ók honum heim í gærkvöldi. „Hann kom og vildi fá far, það var náttúrulega ekki gott veður hérna, ausandi vatnsveður annað slagið," sagði varðstjóri lögreglunnar.

Þessi mótmælaseta var tilgangslaus, því það mun ekki vera ætlun yfirvalda að hleypa þessu fólki inní landið og því vaknar sú spurning hvaða tilgangi það þjóni að láta fólkið vera þarna í nokkur ár.  Í húsleit hjá fólkinu voru allir peningar teknir af þeim svo nú er það alfarið háð Rauða-Krossinum um allar nauðsynjar.


mbl.is Hælisleitandanum ekið heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ella Dís

Sigurður GuðmundssonMál Ellu Dísar Laurens hefur vakið töluverða athygli í fjölmiðlunum undanfarið. Ella Dís berst við óþekktan sjúkdóm en nýlega tók móðir hennar, Ragna Erlendsdóttir, ráðin í sínar hendur og leitaði læknismeðferðar í Bandaríkjunum, þvert á ráðleggingar lækna hér heima.

Á sama tíma og við erum að taka á móti 29 flóttafólki og færa því allt sem það vantar, getum við ekki bjargað lífi lítils barns.  Þetta er til skammar og ríkið ætti að láta Tryggingastofnun greiða að fullu fyrir ferð þeirra mæðgna til Bandaríkjanna.  Það hefði auðvitað verið til einföld lausn á vanda barnsins eins og læknar hér á landi vildu, sem var að gera ekki neitt og láta barnið deyja.  Það eitt að meðgerðin í Bandaríkjunum skilaði árangri sýnir að móðir barnsins tók rétta ákvörðun og situr nú uppi með nokkurra milljóna króna skuld á bakinu og auðvitað á Tryggingastofnun að greiða það.  Það á ekki að hlusta á steingeldar kellingar í þeirri stofnun um hvað eigi að greiða eða ekki.  Það hlýtur að vera til stjórn yfir þessu apparati og ef hún neitar líka þá verður félagsmálaráðherra að skerast í leikinn og gefa skýr fyrirmæli um að Tryggingastofnun greiði þennan kostnað. 

Eitt lítið barnslíf er mikils virði.


mbl.is Fólk leiti annars álits
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógreidd laun

Baldur Guðnason. Baldur Guðnason, fyrrverandi forstjóri Eimskips, segir fyrirtækið ekki hafa staðið við starfslokasamning og skuldi sér 22 mánaða launagreiðslur. Fram kom í fréttum Sjónvarpsins, að Baldur hafi höfðað mál á hendur félaginu sem stöðvaði greiðslur til hans í maí.

Var svona mikið rugl á hans störfum sem forstjóri félagsins að hann hafði ekki rænu á að fá launin sín greidd áður en hann yfirgaf forstjórastólinn.


mbl.is Segir Eimskip skulda sér laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norður-Kórea

Norður-kóreskir hermenn á verði við herstöð við Yaluá í...Kim Jong-Il, leiðtogi Norður-Kóreu, fékk fyrst aðsvif í apríl og í kjölfarið versnaði heilsa hans það mikið, að hann gat ekki tekið stjórnsýslulegar ákvarðanir. Þetta kemur fram í japanska blaðinu Mainichi Shimbun í dag.

Það hefði leyst margan vandan ef hann hefði drepist, því nú tekur ekki betra við þegar leiðtogi Norður-Kóreu er orðinn snarruglaður.  Það var nú ekki ábætandi á allt hans rugl og vitleysu.


mbl.is Kim veiktist í apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf stækkar Kópavogur

Kópavogur. „Við erum alveg á bullandi ferð í 30 þúsund og reiknum með að það verði í febrúar eða mars á næsta ári, eða jafnvel fyrr,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs.

Mér finnst fyrirsögnin á þessari frétt vera talsvert skrýtin og er sjálfsag samin af öfundsjúkum íbúa í Reykjavík.

Það er ástæða til að óska Kópavogsbúum til hamingju að ná því að verða 30 þúsund og sannar um leið fræga setningu Gunnars Birgissona, bæjarstjóra Kópavogs;

"Það er gott að búa í Kópavogi."


mbl.is Kópavogsbúar þenja sig í 30 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einföld lausn

Nú erum við íslendingar að ganga í gegnum ákveðna erfiðleika í efnahagsmálum.  Ekki má tala um kreppu því það skelfir svo marga.  Geir H. Haarde, forsætisráðherra hefur rætt mikið um að við þurfum að framleiða meira og nýta allar okkar náttúrlindir til þess.  Einhvern veginn fæ ég á tilfinninguna þegar Geir er að ræða þetta þá eigi hann við virkjanir og stóriðju (álver).  Ég er honum sammála að framleiða meira og virkja meira, en ég set samt fyrirvara með álverin sem lausn og vil taka fram að ég er ekki á móti nýjum álverum.  En ég tel að þau dugi ekki ein og sér, þau eru ágæt í bland við aðra framleiðslu.  Hinsvegar nefnir Geir ekki okkar stærstu auðlynd sem nýta mætti betur og þar á ég við sjávarútveginn.  Það yrði gríðarleg innspýting í okkar efnahagskerfi og aukning á útflutningi (framleiðslu) ef við hefðum veiðiheimildir í þorski 250 þúsund tonn næstu 3-5 árin og bönnuðum alfarið að veiða fisk til bræðslu.  Síld og loðnu ætti aðeins að veiða til manneldis sem gefur þjóðarbúinu miklu meiri tekjur en útflutningur á fiskimjöli og lýsi, þó að verð á þeim afurðum sé hátt núna.

Þegar þorskkvótinn var skorinn niður í 130 þúsund tonn var eitt af rökunum fyrir þeirri ákvörðun sú, að þjóðarbúið stæði svo vel að það þyldi auðveldlega þessa miklu skerðingu.  En nú hefur dæmið snúist við og þjóðarbúið stendur illa og þolir því ekki þessa miklu aflaskerðingu.  Það þykir orðið fullsannað að þorskstofninn við Grænland og Ísland sé sá sami.  Við höfum ekki veiðiheimildir við Grænland svo að nú erum við að pína þjóðarbúið til að vernda þorsk sem aðrar þjóðir veiða í stað þess að nýta okkur tækifærið til að veiða meira.  Sama má segja um þorskinn við Færeyjar, trúir fólk því að- fiskur í ætisleit stoppi og snúi við þegar hann kemur að miðlínunni milli Íslands og Færeyja.  Nei hann syndir bara inn í lögsögu Færeyja.  Það sama skeður við miðlínu á milli Íslands og Grænlands.

Þetta er ekki flókinn lausn til að bjarga efnahag Íslands.


Fellibylur

„Þetta er versta veður sem ég hef upplifað og minnir mig einna helst á óveðrið á Látrum í Aðalvík í gamla daga,“ segir Þóra (Lilla) Finnbogadóttir Raborn í Houston. Fellibylurinn Ike olli miklu tjóni, þegar hann gekk yfir strönd Texas í morgun með allt að sex metra háum öldum, sem skullu á strandsvæðum. Lilla hefur búið í Bandaríkjunum í 45 ár og þar af í 30 ár í Houston. Hún segir að oft hafi blásið en aldrei sem nú. 

Er ekki sjálfur Bush mættur á svæðið til að stoppa óveðrið.  Hann hlýtur að geta það með aðstoð Guðs eins og hann segir að hjálpi sér í öllum málum, sem hann tekur sér fyrir hendur.


mbl.is „Versta veður sem ég hef upplifað vestra“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átök

Til átaka kom þegar starfsmenn tveggja flúðasiglingafyrirtækja deildu um afnot af vegi í Skagafirði í gær. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Sauðárkróki voru það starfmenn fyrirtækjanna Bakkaflöt og Hestasport sem bjóða upp á flúðasiglingar, sem tókust þar á.

Flest getur nú valdið deilum manna á milli.  Þetta er bara broslegt að standa í slagsmálum útaf einhverjum ómerkilegum vegaspotta í Skagafirði. Ja hérna.


mbl.is Átök vegna flúðasiglinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hótanir

Mynd 478000 „Eftir að ráðist var á mig hugsaði ég oft um að ég hefði viljað hafa rafbyssu og vera í skot- og hnífheldu vesti. En mér finnst sorglegt að hugsa um það. Að sjá fram á að samfélagið verði þannig.“  Þetta sagði einn lögreglumaður eftir átök við ölvaða og ruglaða vitleysinga.

Þetta getur ekki gengið svona lengur.  Það verður að taka hart á þeim aðilum sem eru að ráðast á lögregluna.  Svona hótanir eins og "Ég skal drepa konuna þína" eða "Ég mun nauðga konunni þinni og skaða börnin þín" eru svo alvarlegar að dæma ætti viðkomandi aðila í margra ára fangelsi.  Ég vorkenni lögreglunni að þurfa að kljást við svona vitleysinga.   Það er því ekkert skrýtið þó að menn endast ekki lengi í þessu starfi.  Hverskonar þjóðfélag er að verða hér á landi.?


mbl.is „Ég skal drepa konuna þína!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband