Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Olíuverð lækkar

Frá olíumarkaði í New York.Verð á hráolíu lækkaði á heimsmarkaði í dag og komst niður fyrir 100 dali tunnan á markaði í New York nú undir kvöld, var 99,99 dalir. Þótti miðlurum þá orðið ljóst, að olíuvinnslumannvirki á Mexíkóflóa myndu að mestu sleppa við fellibylinn Ike.

Ætli hinir íslensku olíufurstar taki nokkuð eftir þessari frétt og verðið verði óbreytt hér á landi.


mbl.is Olíuverð í New York undir 100 dali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Offita

Svissneska fjallaloftið verður seint ofmetið Það er spurning um hvort svissneska fjallaloftið sé enn heilnæmara en áður var talið þar sem níu af hverjum tíu Svisslendingum segjast vera í toppformi þrátt fyrir að offita sé alltaf að aukast meðal íbúa landsins.

Ætli það sé ekki hið góð svissneska súkkulaði sem þessu veldur frekar en lofti.  Annars er það staðreynd að feitt fólk er yfirleitt lífsglaðara en grannt.


mbl.is Feitir en alsælir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raflost

Stúlkan stakk málmhlut inn um grind á spennustöðinni. Ung stúlka slasaðist við spennistöð í Reykjanesbæ um klukkan sex í dag en svo virðist sem hún hafi stungið málmhlut inn í stöðina og fengið við það mikið raflost. Hún var flutt með hraði á sjúkrahús í Reykjavík. Rafmagni sló út í tveimur hverfum bæjarins.

Hvernig í ósköpunum getur svona hlutur skeð.  Hafa börn óhindraðan aðgang að þessari spennistöð?


mbl.is Barn fékk mikið raflost
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Færri enmbætti

Haraldur Johannessen Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, að hefur viðrað þau sjónarmið að lögreglustjóraembættum verði fækkað enn frekar og að fjárveitingar til lögregluembætta færist til embættis ríkislögreglustjóra. Þetta kemur fram í formála að ársskýrslu ríkislögreglustjóra 2007.

Vill Haraldur ekki bara leggja niður öll lögregluembætti nema sitt eigið.  Það er alveg ótrúleg frekja í þessum manni og hann kemst upp með það.


mbl.is Vill enn færri lögregluembætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fíkniefni

 Lögregla í Berlín lokaði í vikunni sælgætisverslun eftir að í ljós kom, að súkkulaði og sleikibrjóstsykur, sem seldir voru í versluninni, voru full af skynvillusveppum og maríjúana.

Þetta hefur örugglega verið vinsæl verslun, en ansi er ég hræddur um að svona aðgerð dragi úr notkun fíkniefna.


mbl.is Skynvillt sælgæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lestarslys

Að minnsta losti 2 létu lífið og 23 slösuðust þegar farþegalest rakst á flutningalest í San Fernando dal um 50 km norðvestur af Los Angeles í Kalíforníu í kvöld. Tíu voru alvarlega slasaðir.

Það setur að manni hroll við að lesa svona fréttir.


mbl.is Lestarslys í Los Angeles
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sáttafundur.

Ljósmæður á fundi. Engin niðurstaða fékkst á fundi fulltrúa ljósmæðra og fjármálaráðuneytisins í dag. Verkfall ljósmæðra stendur því áfram til miðnættis. Nýr fundur er boðaður klukkan 13 á mánudag og leysist deilan ekki hefst nýtt tveggja sólarhringa verkfall miðvikudaginn 17. september.

Auðvitað kemur ekkert út úr þessum fundum hjá ríkissáttasemjara, því ríkið er ákveðið að semja ekki við ljósmæður hvað sem á gengur.  Hvar er Samfylkingin nú, sem boðaði að jafna launamun kynjanna og það var meira að segja sett í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar.  En hver er árangurinn?  Hann er sá að launamunur kynjanna hefur aukist um 3% á þessu kjörtímabili.  Þegar Ingibjörg Sólrún var spurð út í deiluna við ljósmæður svaraði hún því til að 25% hækkun á launum þeirra væri full mikið í einu stökki, en ekki gaf hún upp hvað hún teldi hæfilegt í því sambandi.  Hvernig ætlar Samfylkingin að útrýma launamun kynjanna ef ekki má hækka laun hefðbundna kvennastétta eins og ljósmæðra.  Allt tal um að þetta verði gert seinna á kjörtímabilinu er nú bara yfirlýsing um að gera ekki neitt.  Ef 25% hækkun er of mikil í einu stökki má þá ekki skipta þessari launahækkun í tvo hluta ef það leysti málið.  Af öllum flokkum þá átti maður síst von á að Samfylkingin yrði í því hlutverki að standa í stríði við ljósmæður og ekki aðeins að neita að semja við þær, heldur er rikið að fara í mál við ljósmæður. 

Til hamingju Ingibjörg Sólrún Gísladóttir með frábæran árangur.


mbl.is Árangurslaus sáttafundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglumenn

Mynd 476335 Algengasta ástæðan fyrir því að lögreglumenn sóttu um leyfi eða létu af störfum á árunum 2002-2007 var léleg laun. Í símakönnun sögðu 18,7% þeirra sem svöruðu að launin væri ástæðan fyrir leyfi eða uppsögn og 16% nefndu álag í starfi. 4% svaranda sögðu að ástæðan væri einelti/kynferðisleg áreitni.

Hvernig er þetta eiginlega með okkar ríkisstjórn, getur hún ekki skilið að opinberir starfsmenn þurfa mannsæmandi laun og það ætti að vera eftirsóknarvert að vinna hjá hinu opinbera.


mbl.is Hætta vegna launa og álags
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vestfirðir

Á nýafstöðnu þingi Fjórðungssambands Vestfjarða kom Halldó Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, fram með athyglisverða hugmynd, sem var sú að öll sveitarfélög á Vestfjörðum sameinuðust í eitt.  Ég er hrifinn af þessari hugmynd og þegar komin verða jarðgöng á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar og nýr vegur yfir Dynjandisheiði á þetta að vera auðvelt í framkvæmd.  Best væri auðvitað jarðgöng úr Borgarfirði þar sem Mjólkárvirkjun er og yfir í Geirþjófsfjörð með tengingu yfir í Vatnsfjörð á Barðaströnd.  En þar sem jarðgöng sem kæmu í stað Dynjandisheiðar eru mjög dýr eða um 14 milljarðar, væri hægt að leysa að mál með bílaferju yfir Arnarfjörð.  Því til að þessi hugmynd Halldórs verði framkvæmaleg þurfa að vera góðar samgöngur á milli Suður- og Norðurssvæðis Vestfjarða.

Þetta ætti að vera fyrsta skrefið að því að Vestfirðir fengju að vera sjálfstjórnarsvæði og tengjast Íslandi á svipaðan hátt og Færeyjar og Grænland eru í dag tengd við Danmörk, sem er einmitt baráttu mál okkar í BBV-Samtökunum.  Þá sætu Vestfirðir einir að fiskimiðunum við Vestfirði, sem er slík gullkista að fjárhagslegt öryggi svæðisins væri tryggt.  Þótt Vestfirðir réðu einir yfir fiskimiðum sínum gætu þeir auðveldlega samið við Ísland um veiðar annarra gegn veiðiheimildum Vestfirðinga utan þess svæðis við Ísland.

Nú er bara að bíða og sjá til hvort menn hafi kjark og þor til að hrinda þessu í framkvæmd.  En þá mega menn ekki vera svo múlbundnir af ákveðnum stjórnmálaflokkum að þeir þori ekki að hrinda þessu í framkvæmd af ótta við að styggja ekki einhverja leiðtoga stjórnmálaflokka á Íslandi.  Þannig yrði að ganga frá málum að Vestfirðir fengju ákveðin þingmannafjölda á Alþingi.  Þeir yrðu kosnir af Vestfirðungum einum.  Síðan yrðu Vestfirðingar með sitt eigið þing og væri Fjórðungssamband Vestfjarða kjörinn vettvangur fyrir slíkt þing.

Nú dugar ekkert hik heldur keyra þetta mál áfram af fullri alvöru.  Þetta gæfi Vestfjörðum strax slík tækifæri til framþróunar að fólksflótti yrði stöðvaður og fólk fæti að flytja til Vestfjarða í stórum stíl.


Óvirk sprengja

Þórarinn Ingi Jónsson. .Réttað var í máli íslenska myndlistarnemans Þórarins Inga Jónssonar í Toronto í gær vegna þess uppátækis hans að koma listaverki í líki sprengju fyrir í listasafni þar í borg. Lögmaður Þróararins sagði að málið hefði verið fellt niður að því tilskildu að hann héldi skilorð í níu mánuði.

Hvað var nú listrænt við þetta athæfi Þórarins að koma fyrir hlut sem líktist sprengju  fyrir í listasafni í Toronto.  Flest er nú hægt að kalla list.


mbl.is Máli Þórarins lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband