Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Kepler

Þegar skilanefnd Landsbankans seldi dótturfélagið Kepler Equities í desember 2008 félagi í eigu stjórnenda Kepler var ekkert eigið fé lagt fram, heldur voru kaupin, alls áttatíu milljónir evra, fjármögnuð með yfirtöku láns sem Landsbankinn veitti Kepler, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.

Það kemur fram að skilanefndin hafi ekkert í höndunum, sem tryggir þetta lán.  Aðeins von um að það verð greitt .  Þannig að skilanefndin er farin að haga sér á sama hátt og stjórnendur gömlu bankann og veita lán á nokkurra trygginga.  Það á að reka allar þessar skilanefndir, því þær gera meiri skaða en nokkuð gagn.  Auk þess að kostnaður við þessar skilanefndir er orðinn nokkur hundruð milljónir og fer hækkandi

Burt með þetta lið.


mbl.is Fengu ekkert fyrir Kepler
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandari dagsins

Tveir veiðimenn eru á veiðum í skógi, þegar annar fellur niður og virðist hætta að anda.  Félagi hans grópur farsíma sinn og hringir í neyðarlínuna:

"Félagi minn er dauður.  Hvað á ég að gera?" æpir hann í símann.

Viðmælandinn biður hann að róa sig niður og segir síðan;

"Gakktu fyrst úr skugga um að hann sé örugglega látinn."

Þá kemur þögn og síðan heyrist skothvellur. 

"Og hvað svo" spyr maðurinn svo í símann.


Álver

Álrisinn Rio Tinto Alcan hefur ákveðið að segja upp 350 manns í sjö starfsstöðvum sínum í Frakklandi. Tilgangurinn er að lækka tilkostnað og hagræðing í þágu aukinnar samkeppnisfærni.

Fyrst Alcoa þarf að gera þetta í Frakklandi vegna minni notkunar á áli og mikilla birgða af áli í heiminum, er þá ekki óhætt að afskrifa stækkun í Straumsvík.  Þetta ætti að kenna álelskendum á Íslandi að þótt álver skapi mörg störf.  Þá geta þau störf horfið á einni nóttu, því ættum við að fara varlega að treysta of mikið á að álver bjargi hér öllu í atvinnumálum.


mbl.is Rio Tinto Alcan segir 350 manns upp í Frakklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gíslataka

Sex manns eru í gíslingu hóps manna sem réðst inn í matvöruverslun í Sevran, úthverfi Parísar í morgun. Ekki er vitað hvort mennirnir eru vopnaðir en hann lét til skarar skríða um klukkan sex í morgun og er enn inni í versluninni. Lögregla hefur lokað svæðið af og umkringt verslunina. Ekki er vitað hvað mönnunum gengur til.

Eru mennirnir ekki bara að versla inn í versluninni og óþarfi að hafa áhyggjur af því í bili.  Eða þar til annað kemur í ljós.


mbl.is Gíslataka í úthverfi Parísar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kína

Mannréttindasamtökin Human Rights Watch segja ekkert vitað um afdrif 43 manna, uighura, sem teknir voru fastir eftir þjóðflokkauppreisn í Xinjiang í Kína í sumar.

Það er búið að drepa þessa menn og þeir finnast aldrei og gerir ekkert til því nóg er til af Kínverjum.  Það er barnaskapur að ætla að berjast fyrir mannréttindum í Kína.  Stjórnvöld þar í landi vita ekki hvað mannréttindi eru.


mbl.is 43 saknað í kjölfar uppreisnar í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný útrás

Þeir eru leggjast í víking í dag, eina ferðina enn, þótt æði langt sé nú síðan þeir hófu fyrst að kortleggja höf og lönd með ferðum sínum. Þetta eru þeir Leifur og Egill, nánar tiltekið Leifur heppni Eiríksson og Egill Skallagrímsson.

Þessir kappar vita alveg hvað þeir eru að gera og nú verða Bretar og Hollendingar fara að vara sig.  Því þetta eru ekki hvítflibba víkingar heldur sannir víkingar sem berjast á heiðarlegan hátt og gefa ekkert eftir.


mbl.is Leifur heppni og Egill í útrás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BSRB

Nýr formaður verður kjörinn á þingi BSRB sem hefst í dag. Ögmundur Jónasson alþingismaður lætur af formennsku sem hann hefur gegnt í 21 ár.

Það er greinilega mikil eftirspurn eftir þessu embætti, því margir gefa kost á sér í formannskjörinu.  Það er bæði erfitt og tímafrekt starf að vera formaður í svona stórum samtökum eins og BSRB er.  En samt langar marga að takast á við þetta verkefni og vonandi kemur hæfur aðili sem nýr formaður.  Það verður erfitt að feta í fótspor Ögmundar, sem hefur stýrt þessum samtökum á farsælan hátt í 21 ár.


mbl.is Ögmundur hættir eftir 21 árs starf hjá BSRB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umhverfisráðherra

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kvaðst í framsögu sinni í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær sannfærð um að meirihluti þingmanna væri fylgjandi tillögu um þingsályktun um afturköllun á ákvörðun umhverfisráðherra um Suðvesturlínu.

Hvernig getur  þessi kelling verið sannfærð um að það sé meirihluti á Alþingi fyrir afturköllun á ákvörðun umhverfisráðherra um Suðvesturlínu.  Hún veit nákvæmlega ekkert um það, því engin atkvæðagreiðsla hefur farið fram á Alþingi um þetta mál.  Þótt Sjálfstæðisflokkurinn sé þessu fylgjandi er hann ekki meirihluti Alþingis.

Mikið fer í taugarnar þegar einstakir þingmenn eru með fullyrðingar um að Alþingi og þjóðin vilji þetta og hitt án þess að vita nokkuð um það.

Þá er skárra að halda kjafti.


mbl.is Umhverfisráðherra vændur um heigulshátt og hryðjuverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannsal og glæpastarfsemi

Undanfarna sólarhringa hefur lögreglan á Suðurnesjum rannsakað ætlaða skipulagða glæpastarfsemi á höfuðborgarsvæðinu. Grunur er um skipulagða glæpastarfsemi og hefur á annan tug verið handtekinn. Tíu manns eru í gæsluvarðhaldi og fangageymslum en afbrotin eru talin varða mansal, þjófnað og fjársvik.

Þarna fær fólk, sem gagnrýndi Rögnu Árnadóttur hvað mest fyrir að vísa nokkrum hælisleitendum úr landi, sýnishorn af því hvernig ástandið gæti orðið, að hleypa öllum inn í landið og hvað afleiðingar það getur haft.  Það á að vísa öllu þessu glæpahyski úr landi strax.  Litla-Hraun er of góður staður fyrir þetta glæpa-pakk.


mbl.is Mansal, þjófnaður og fjársvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt hótel

Mikill áhugi reyndist meðal fyrirtækja að taka að sér það verk að veita ráðgjöf og finna áhugasama fjárfesta og hótelrekendur að nýju hóteli við Reykjavíkurhöfn.

Er þetta verkefni eitt af þeim mikilvægustu við endurreisn Íslands? Nei og aftur nei, það er meira en nóg af hótelum í Reykjavík í dag.  Þetta var draumur Björgólfs Guðmundssonar og félaga á sínum tíma þegar allt lék í lyndi. 

En nú er þetta eitt andskotans rugl og vitleysa.


mbl.is Leita fjárfesta að nýju hóteli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband