Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Snjómokstur

Samgönguráðherra gat ekki á Alþingi lofað því, að snjó verði mokað reglulega af vegum í Árneshreppi í vetur en sagði að þau mál verði skoðuð á næstu vikum. Vandamálið í Árneshreppi væri vegurinn þangað og erfitt sé að halda honum opnum ef eitthvað snjóar þar.

Ef vegurinn þarna er svona slæmur, væri þá ekki ráðlegt að lagfæra veginn.  Þótt fáir íbúar séu eftir í Árneshreppi, þá er þessi vegur mikið notaður af ferðafólki á sumrin.  Annars er þessi vegur ekki sá eini á Vestfjörðum, sem ekki eru mokaðir reglulega.  Bæði Dynjandi- og Hrafnseyraheiðar eru ALDREI mokaðar frá því að þær verða ófærar á haustin og þar til að fer að vora eða í maí/júní.  Þannig að ófært er allan veturinn á milli Suðurfjarða Vestfjarða og Norðursvæðisins (Ísafjarðarbæjar).  Ég þurfti fyrir stuttu að fá afrit af skattaframtali mínu fyrir síðasta ár og hafði samband við Skattstofuna í Reykjanesumdæmi og óskaði eftir að þá þetta afrit sent í pósti.  Konan, sem varð fyrir svörum sagði að það væri nú óþarfi að senda þetta í pósti.  Ég gæti einfaldlega skroppið á Skattstofuna á Ísafirði og fengið það prentað út.  Þetta væri nú ekki svo langt, en eftir að ég útskýrði fyrir henni að til að komast á Ísafjörð yrði ég að fljúga til Reykjavíkur og þaðan til Ísafjarðar, eða að fara með Baldri yfir Breiðafjörð og aka norður í Hrútafjörð og síðan yfir Steingrímsfjarðarheiði og allt Ísafjarðardjúpið til Ísafjarðar, þá loksins féllst hún á að senda þetta með pósti. 

Svona eru nú samgöngumálin hér á Vestfjörðum.


mbl.is Snjómokstur inn á milli Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandari dagsins

Allir íslensku framleiðendur, sem framleiða áfengan bjór hittust á fundi og borðuðu síðan saman.  Hver framleiðandi valdi sér síðan drykk með matnum. 

Allir völdu bjór frá sínu fyrirtæki með þeim orðum

"Þessi bjór er langbestur."

Þegar röðin kom að framleiðanda "Kalda" frá Áskógsströnd, þá pantaði hann appelsín.  Félagar hans horfðu undrandi á hann og sögðu síðan;

"Hvað er að þér maður finnst þér þinn bjór vondur?" 

"Nei, nei, sagði maðurinn en fyrst þið allir ákváðu að drekka eintómt sull ákvað ég að gera það líka."


Kína

Nýjar hagtölur í Kína benda til þess að hagvöxtur verði meiri í ár en áætlanir ríkisstjórnarinnar gerðu ráð fyrir, eða um 8,9% í stað 8%.

Ætli ég flytji ekki bara til Kína fyrst að allt er þar á uppleið og ég er nokkuð góður í kínversku.  Annar var ég mikið að hugsa um að flytja til New York og var búinn að fá atvinnuleyfi þar og vinnu, sem leigubílstjóri, en það mun víst vera frekar hættulegt starf.  Þá er Kína betri valkostur, en þar sem svo leiðinlegt er að flytja þá verð ég sennilega áfram hér á Bíldudal og þar sem ég er búinn að kaupa tvö fiskiskip, verður nóg að gera í sambandi við útgerð þeirra.  Eins datt ég óvænt inn á vef í Bandaríkjunum, þar sem maður á bara að skoða auglýsingar og fær greitt fyrir hverja auglýsingu.  Það var talsverð vinna að setja þetta upp en núna er þetta farið að rúlla eðlilega hjá mér og peningar streyma stöðugt inn á minn bankareikning.  Í síðasta mánuði fékk ég um 9.500 dollara, sem ég geymi á sérstökum gjaldeyrisreikningi í mínum banka.


mbl.is Hagvöxtur yfir 8% í Kína í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurskinsmerki

Lögreglumenn við eftirlitsstörf hafa tekið eftir því að undanförnu að mörg börn, og raunar fullorðnir einnig, eru á ferðinni án endurskinsmerkja. Eykur það hættu á umferðarslysum þegar svartasta skammdegið skellur á. Því þykir lögreglu mikilvægt að minna á mikilvægi merkjanna.

Þetta er óafsakanlegt kæruleysi hjá foreldrum barna og ekki er hægt að afsaka þetta með peningaleysi, því endurskinsmerkin fást frítt hjá öllum tryggingafélögum og á bensínstöðvum.


mbl.is Mörg börn án endurskinsmerkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orka

Jarðhitinn getur leikið mikilvægt hlutverk í sjálfbærri þróun á Íslandi og á heimsvísu. Þetta kom fram í erindi Guðna Axelssonar, deildarstjóra hjá ÍSOR, á opnum fundi um sjálfbæra nýtingu jarðhitans á Hilton Nordica.

Þetta getur ekki gengið svona lengur, við eigum að nýta alla jarðorku sem til er á Íslandi og virkja öll fallvötn sem hægt er að virkja og nota síðan alla þessa orku til uppbyggingar á atvinnulífinu á Íslandi.  Það er meira að segja hægt að virkja sjávarföll víða á Íslandi.  Þessi auðlind ásamt auðlind hafsins mun koma okkur í gegnum núverandi kreppu á stuttum tíma ef rétt er haldið á spilunum.


mbl.is Mikil jarðvarmaorka er ónýtt á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ASG

Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, segir í grein í Morgunblaðinu í dag, að ekki sé hægt að ekki sé hægt að túlka tafir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á lánagreiðslum til Íslendinga öðruvísi en þannig að hann hafi einhliða sagt upp samkomulaginu við Íslendinga.

Ef sjóðurinn hefur sagt upp samkomulagi við Ísland, þá eigum við EKKI að óska eftir nýju samkomulagi, því eins og þessi sjóður hefur hagað sér gagnvart Íslandi eigum við ekkert að ræða við hann meira.  Þá einu greiðslu , sem sjóðurinn hefur greitt til Ísland tökum við upp í allan þann kostnað sem þessi sjóður hefur skapað okkur.  Við komumst út úr kreppunni án aðstoðar frá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum


mbl.is Gera þarf róttæka breytingu á efnahagsáætlun AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fær verðlaun

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, fær Anders Jahres-verðlaunin í læknavísindum sem afhent verða í Osló í næstu viku.

Hann er þrautseigur maður hann Kári Stefánsson og er vel að þessum verðlaunum kominn og full ástæða til að óska honum til hamingju með þau.

Til hamingju Kári.


mbl.is Kári fær norræn læknaverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vírusvörn

Allt að því 43 milljónir manna gætu hafa fallið í gildru tölvuþrjóta eftir að hafa látið blekkjast af hugbúnaði sem leit út fyrir að vera vírusvarnarforrit.

Þetta er mikið kæruleysi hjá þeim sem í þessu lentu.  Ég hef þá reglu að hlaða aldrei niður forritum, sem ég þekki ekki til og er með góða vírusvörn frá Friðrik Skúlasyni ehf.


mbl.is Gervivörn blekkir milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vildi verða formaður

Hinn 22. janúar síðastliðinn skýrði Bjarni Benediktsson alþingismaður Geir H. Haarde formanni Sjálfstæðisflokksins frá því að hann íhugaði að gefa kost á sér við formannskjör á landsfundi, sem þá stóð fyrir dyrum.

Þarna kemur skýringin af hverju Geir H. Haarde ákvað að draga sig í hlé frá stjórnmálum og Bjarni var kosinn formaður á þessum landsfundi.  En því miður hefur Bjarni ekki staðið undir þeim væntingum sem Sjálfstæðismenn gerðu til hans.  Hann er litlaus, sem þingmaður í stjórnarandstöðu og væri því ekki hæfur í ríkisstjórn.


mbl.is Bjarni ætlaði í formannsframboð gegn Geir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Séra Gunnar

Kirkjunni ber að vera öruggt skjól og ákvörðun biskups að færa sr. Gunnar Björnsson á Selfossi til í embætti er óumflýjanleg. Þetta segir í opnu bréfi sem 24 prestar skrifa í Morgunblaðið í dag.

Mér finnst þetta bréf skipta engu máli og er aðeins skrifað til að þóknast Biskup Íslands.  Mál séra Gunnars fór alla leið fyrir Hæstarétt og þar var hann sýknaður.  Því á Gunnar fullan rétt á að taka við sínu embætti aftur.  Íslenska þjóðkirkjan er á algerum villigötum í sinni afstöðu í svona málum.  Hún varði séra Ólaf Skúlason af öllu afli, þar til að nokkrar konur gáfu sig fram og skýrðu frá því kynferðis ofbeldi sem þær urðu fyrir af hálfu Ólafs.  Þá fyrst eftir nokkur ár neyddist kirkjan til að biðja þessar konur afsökunar.  En frumkvæðið kom ekki frá kirkjunni heldur konunum sjálfum.  Nú á að gera séra Gunnar að blóraböggli vegna þess klúðurs, sem kirkjan gerði í máli Ólafs Skúlasonar.  Mál séra Gunnars verður ekki leyst nema með því að hann taki við fyrra embætti aftur og Biskup hætti afskiptum af málinu.


mbl.is 24 prestar skrifa gegn sr. Gunnari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband