Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Grín

Einu sinni sem oftar messaði séra Baldur Vilhelmsson prófastur í Vatnsfirði.  Í Nauteyrarkirkju á Langadalsströnd í Djúpi.  Nauteyrarkirkja er ein margra kirkna sem prófastur þjónaði í sóknum sínum í Djúpi um nær hálfrar alda skeið.  Með hjálpari við Nauteyrarkirkju er sóknarnefndaformaðurinn Jón Guðlaugsson bóndi á Laugabóli.

Eftir messuna sneri prófastur sér að meðhjálparanum og spurði hvort hann hefði eitthvað kannast við ræðuna.

"Nei átti ég að gera það spurði Jón".

"Það gat verið góði. 

Hún er nefnilega frá páskunum í fyrra",

svarði sér Baldur.


Bobby Ficher

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur í erfðamáli Bobby Fischer hefur verið kærður til Hæstaréttar. Að sögn Guðjóns Ólafs Jónssonar, lögmanns systursona Fischer, er þetta í þriðja skiptið sem málið fer fyrir Hæstarétt.

Er svona erfitt að kveða upp dóm í þessu máli að það skuli vera á leið til Hæstaréttar í þriðja sinn, eitthvað er skrýtið við þetta allt saman.


mbl.is Mál Fischers til Hæstaréttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húsnæðislán

Þrátt fyrir að greiðslujöfnun verðtryggðra húsnæðislána sé almenn regla og sérstaklega þurfi að segja sig frá henni hafa þúsundir Íslendinga ákveðið að halda sínu striki í afborgunum.

Það er ánægjulegt að vita að þúsundir Íslendinga geta hjálparlaust staðið í skilum með sín húsnæðislán.


mbl.is Þúsundir lántakenda vilja borga upp í topp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástralskur ökumaður

Ástralskur karlmaður á níræðisaldri, sem var leitað fyrr í vikunni, er fundinn, í 600 km í fjarlægð frá þeim stað sem hann átti að vera á. Sagði hann við lögreglu að það hafi verið svo gaman að keyra að hann hefði ekki getað hugsað sér að stöðva bifreiðina.

Manngreyið var bar að skreppa út í búð til að kaupa dagblað, en gleymdi sér við aksturinn og ók aðeins of langt.  Þetta minnir mig á kunningja minn sem var á leið frá Reykjavík til Bíldudals og þegar hann kom að afleggjaranum að Þingvöllum, þá datt honum í hug að það væri nú sennilega gaman að koma til Þingvalla og ók þangað.  Á Þingvöllum hugsaði hann að fyrst hann væri kominn austur fyrir fjall væri gaman að kíkja aðeins lengra og ók því af stað aftur.  En alltaf þegar hann var að hugsa um að snúa við kom upp í hugann að margt fróðlegt væri að sjá aðeins lengra og áfram var ekið og svo fór að lokum að hann ók allan hringveginn, en í Búðardal tók hann þá ákvörðun að koma sér heim til Bíldudals.


mbl.is Skrapp í búð - 600 km akstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattar

Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir og fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, hafa boðað til blaðamanna í dag klukkan 15 en á fundinum verður greint frá tillögum ríkisstjórnarinnar í skattamálum.

Það fer um mig hrollur við tilhugsunina um þessar skattahækkanir.  Það er vitað að flestar fjölskyldur í landinu glíma við mikla fjárhagserfiðleika og nú verður þeim veitt náðarhöggið með hækkun skatta.  Þá fer af stað hrina gjaldþrota og landflótti.


mbl.is Skattabreytingar kynntar klukkan 15
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyringarleiðin

Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á sjávarútvegsráðherra, Jón Bjarnason, að hefja að fullu vinnu við framkvæmd fyrningarleiðarinnar til að afnema kvótakerfið í núverandi mynd í samræmi við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og stefnu VG, segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

Vonandi tekur Jón Bjarnason mark á þessari ályktun og gerið eins og með skötuselinn að ríkið leigi þessar aflaheimildir gegn fyrirfram ákveðnu gjaldi, sem renni í ríkissjóð.  Ef þetta væri gert myndi ríkissjóður fá gríðarlegar tekjur. Það hefur verið rætt um að leigan yrði kr: 50,- á kíló í botnfiski, sem flestar útgerðir ættu að ráða vel við að greiða.  Nefnd sú sem Jón skipaði um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu, mun aldrei skila neinni vitrænni tillögu því í nefndinni eru fulltrúar frá LÍÚ, sem ekki vilja breyta neinu.  Þótt það standi skýrt í lögum um stjórn fiskveiða, að einn af tilgangi þeirra sé að byggja upp fiskistofna og stuðla að aukinni atvinnu um allt land eru sumir haldnir þeirri þráhyggju að þetta kerfi hafi verið sett á til að hagræða í greininni og hafi ekkert með fiskvernd að gera.  En hvar er öll hagræðingin?  Útgerðin skuldar í dag yfir 500 milljarða og hefur aldrei skuldað meira.  Það er líka oft spurt hvað koma eigi í staðinn og hvernig útgerðin eigi að greiða sínar skuldir?  Því er til að svara að þær útgerðir, sem eru starfandi í dag geta auðveldlega fengið að veiða sama magn og áður, en gegn ákveðnu gjaldi.  Útgerðarmenn hljóta að hafa gert sínar áætlanir um greiðslu skuldanna miðað við sinn rekstur.  En það sem breytist að óveiddur fiskur í sjónum verður ekki lengur veð fyrir þessum skuldum.  En veðið eitt og sér greiðir engar skuldir heldur verður reksturinn að geta greitt þær.  LÍÚ fullyrðir að allt tal um fyrningarleiðina hafi komið sjávarútveginum í mikið uppnám vegna óvissu um hvað má hver útgerð veiða mikið.  En hefur útgerðin á Íslandi ekki búið við slíka óvissu í mörg ár eða allan þann tíma sem kvótakerfið hefur verið við lýði.  Hafró hefur fram að þessu ekki komið með sína veiðiráðgjöf fyrr en á vorin eða snemma sumars og á meðan sú ráðgjöf liggur ekki fyrir hefur útgerðin búið við óvissu um hvað veiðar verða miklar á næsta fiskveiði ári.  Með fyrningarleiðinni yrði þessari óvissu eytt og hver útgerðarmaður gæti ákveðið strax í ársbyrjun hvað hann ætlaði að leigja mikinn kvóta af ríkinu fyrir viðkomandi ár.


mbl.is Jón beiti sér fyrir fyrningarleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Refaveiðar

Æðarræktarfélag Íslands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun umhverfisráðherra að hætta þátttöku ríkisins í refaveiðum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem formaður félagsins, Jónas Helgason ritar undir. Skilur fólk ekki hvað þarna er á ferðinni, sparnaðurinn skiptir engu máli.  Ef ríkið styrkti áfram refaveiðar væri það hvatning til að skjóta ref hvar, sem hann sést.  Þá yrði stór hluti þingmanna í bráðri lífshættu alla daga.
mbl.is Æðarræktendur vilja að ríkið greiði fyrir refaveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnaverndarnefnd

Á fundi Barnaverndarnefndar Reykjavíkur í gær var samþykkt bókun þar sem lýst er trausti á störf starfsmanna Barnaverndar Reykjavíkur. Fram kemur að bókunin hafi verið samþykkt vegna umræðu, sem orðið hafi um málsmeðferð stofnunarinnar.

Þetta er furðuleg samþykkt, því þarna er Barnarvernarnefnd að lýsa yfir fullu trausti á sjálfa sig.  Mikið hlýtur Barnaverndarnefnd að líða vel þegar Barnarverndarnefnd hefur lýst yfir þessu mikla trausti á Barnaverndarnefnd.


mbl.is Barnaverndarnefnd lýsir trausti á Barnavernd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvikmynd

Fjölmiðlar í Makedóníu fullyrða að grísk stjórnvöld hafi beitt sér gegn því að ný kvikmynd íslenska kvikmyndagerðarmannsins Sigurjóns Einarssonar um Makedóníu yrði sýnd á vegum sendiráðs Íslands í Washington.

Hvað hafa grísk stjórnvöld að fela?  Það hlýtur að vera eitthvað í þessari mynd sem allir mega ekki sjá. Það á ekki að hlusta á svona kjaftæði og sýna myndina, sem víðast.


mbl.is Mynd Íslendings um Makedóníu veldur uppnámi í Grikklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýknuð

Blaðakona í Zambíu var í gær sýknuð af ákæru fyrir að dreifa klámi en konan sendi myndir til þarlendra stjórnmálamanna með tölvupósti af konu, sem eignaðist barn utan við sjúkrahús í höfuðborg landsins meðan á verkfalli lækna stóð.

Þetta hélt ég að gæti ekki gerst í þessu landi að fólk væri sýknað af ákæru, sem gefin hefur verið út.  En kannski er þetta undantekningin, sem sannar reglurnar.


mbl.is Sýknuð af ákæru fyrir að dreifa klámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband