Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Spakmæli dagsins

Guðni raðar sér,

inn í vítateiginn.

(Arnar Björnsson,íþróttafréttamaður)


Icesave

Icesave-frumvarpið var rætt á Alþingi í gær og athygli vakti að enginn úr stjórnarliðum tóku þátt í umræðunni.  Aðeins stjórnarandstaðan talaði yfir hálftómum þingsal, því stjórnarliðar nenntu ekki að sitja í þingsalnum og hlusta á málflutning þeirra sem töluðu og mun umræðan hafa staðið langt fram á kvöld.  Eru þeir sem flytja þetta frumvarp og ætla að styðja það orðið sama hvað um það verður.  En að ætla að keyra þetta frumvarp í gegn á Alþingi með þögninni er til skammar.

Jólatré

Þýsk 78 ára gömul kona slasaðist alvarlega þegar hún varð undir 200 kg þungu jólatré. Jólatréð, sem var 4,5 metra hátt og úr plasti, hafði verið hengt upp í verslunarmiðstöð í Hamborg. Það losnaði og féll á konuna.

Það leynast víða slysagildrur, sem koma til vegna jólanna.  Það er eins og allir tryllist á þessum árstíma og úr verður jólaæði með tilheyrandi afleiðingum. Það verða fjöldi bruna um hver jól og verslanir eru opnar langt fram á kvöld, greiðslukortin straujuð sem aldrei fyrr og mætti halda að nú væri að koma síðustu jólin í lífi hvers einstaklings.  Þegar loksins sjálf Jólahátíðin rennur upp eru flestir orðnir svo þreyttir að í stað jólahalds kemur langþráð hvíld og svefn.


mbl.is Varð undir jólatré og slasaðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neyðarlögin

Frá upphafi hefur legið fyrir að kröfuhafar myndu á einhverjum tímapunkti láta reyna á lagabreytinguna sem setti innlán í forgang. Slík málaferli gætu tekið ½-3 ár í íslenska dómskerfinu.

Þetta mun verða mjög flókið mál og reyna mikið á íslenskt dómskerfi og miklar líkur eru á að málið gæti endað fyrir EFTA-dómstólunum.  Ég skil ekki alveg hversvegna kröfuhafar vilja fá þessum lögum hnekkt.  Því ef að í ljós kemur að neyðarlögin standist ekki munu nýju bankarnir allir verða gjaldþrota, sem bætist við gjaldþrot gömlu bankanna, sem þýðir að enginn mun fá neina kröfu greidda.  Þá munu allir tapa líka þeir sem vinna málið og Ísland sekkur dýpra í  kreppu og erfiðleika.


mbl.is Óljóst á hvaða réttarheimild verði byggt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamas

Stjórn Hamas á Gaza tilkynnti í dag að þeir Palestínumenn sem hyggist ferðast til Ísrael verði að sækja um ferðaleyfi með þriggja daga fyrirvara. Gangandi vegfarendur geta einungis farið um landamærastöðina í Beit Hanun (Erez) milli Gaza og Ísrael.

Það er með ólíkindum að Ísrael geti haldið heilli þjóð í gíslingu og svipt hana sjálfsögðum mannréttindum eins og ferðafrelsi er, á þess að nokkur þjóð skipti sér af þessu.  Palestína á að verða sjálfstætt ríki með viðurkenningu þjóða heims.  En þá verða ráðamenn líka að hætta að heimta útrýmingu Ísraels.  Án þess mun aldrei ríkja friður og eðlilegt ástand á þessu svæði.


mbl.is Hamas krefst ferðaleyfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gefur út bók

Sarah Palin, sem var varaforsetaefni Repúblikanaflokksins í forsetakosningum í Bandaríkjunum í fyrra, fer mikinn í bandarískum fjölmiðlum þessa stundina og kynnir nýja bók sína. Önnur bók um Palin hefur hins vegar ruglað bæði fjölmiðla og almenning í ríminu.

Það fer alltaf mikið fyrir þessari konu í hvaða verkefni, sem hún er.  Hún virðist snillingur í að nýta sér fjölmiðla sér til framdráttar, en það dugði þó ekki til að hún yrði varaforseti Bandaríkjanna.  Þessar bækur er sjálfsagt mjög ómerkilegar, en samt nær Palin að láta fjölmiðla auglýsa hana sér að kostnaðarlausu..


mbl.is Roðnar Palin eða hrekkir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Söfnun

Rúmlega átta milljónir króna söfnuðust þegar fermingarbörn gengu í hús um land allt þann 9. og 10. nóvember með bauk Hjálparstarfs kirkjunnar. Erindið var að safna fé tilvatnsverkefna Hjálparstarfsins í Afríkulöndunum Eþíópíu, Malaví og Úganda.

Það er ótrúlegt að meira hafi safnast í ár en í fyrra.  En þetta sýnir hvað Íslendingar eru fúsir til að leggja góðum málefnum lið, þrátt fyrir litla getu.


mbl.is Söfnuðu meira nú en í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárhagsaðstoð

Árið 2008 fengu 5029 heimili fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og hafði heimilum sem þáðu slíkar greiðslur fjölgað um 749 eða um 17,5% frá árinu áður. Þetta kemur fram í nýjum gögnum frá Hagstofunni.

Þetta er skuggaleg þróun og fjöldinn fyrir árið 2009 verður enn meiri og eykst enn aftur 2010.  Það er grátlegt að hugsa til þess að á Íslandi, sem var eitt auðugasta land heimsins, skuli nokkrum fégráðugum einstaklingum tekist að koma mörg þúsund íslendingum í þá stöðu að geta ekki séð sér og sínum farboða, nema með opinberri aðstoð.


mbl.is Heimilum sem fá fjárhagsaðstoð fjölgar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kanaríeyjar

Í morgun lögðu um 100 Íslendingar af stað í lúxusferð til Kanaríeyja en ferðamálaráð eyjanna býður fólkinu út. Mikil stemning var meðal hópsins en rútur fóru frá umferðarmiðstöðinni eldsnemma í morgun.

Í dag hafa fáir íslendingar efni á sólarlandaferðum.  En þar sem þetta er boðsferð var sjálfsagt að þiggja það boð.  Það merkilega við þessa ferð er að þetta munu verða einu Íslendingarnir sem fara í sólarlandaferð, næstu 10-20 árin.


mbl.is 100 Íslendingar á leið í sólina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neyðarmóttaka

Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra bíður nú tillagna frá Landspítalanum um hvernig hægt er að efla Neyðarmóttöku spítalans. Þetta kom fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Önnu Pálu Sverrisdóttur um málefni Neyðarmóttöku vegna nauðgunar.

Heilbrigðisráðherra mun þurfa að bíða lengi eftir tillögum Landsspítalans, því spítalinn berst við mikla fjárhagserfileika vegna kröfu um niðurskurð og getur ekki þrátt fyrir góðan vilja eflt neina af sinni starfsemi.  Ef ráðherranum er raunverulega alvara þá þarf að láta Landsspítalann fá meira fjármagn og þetta veit ráðherrann vel.  En kannski er þetta svar algerlega merkingalaust og bara gert til að svara einhverju.


mbl.is Efla á Neyðarmóttöku vegna nauðgunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband