Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Spakmæli dagsins

Nei nei, ef menn ætla að,

skora af svona löngu færi,

verða þeir að fara aðeins nær.

(Valtýr Björn Valtýsson, íþróttafréttamaður)


Minni væntingar

Væntingavísitala Gallup lækkaði á milli október og nóvember úr 47,9 stigum í 44,3 stig. Vísitalan hefur hækkað undanfarna þrjá mánuði en að mati Greiningar Íslandsbanka bendir lækkunin nú til þess að svartsýni vegna efnahags- og atvinnuástandsins sé að aukast meðal íslenskra neytenda.

Á meðan ekkert kemur fram um aukna atvinnu á Íslandi eykst að sjálfsögðu svartsýnin hjá flestu fólki.  Eða er hægt að finna einhvern bjartsýnan íslending í dag?


mbl.is Dregur úr væntingum á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Án atvinnu

Fimm kennurum hefur verið sagt upp störfum við Fjölbrautaskóla Norðurlands (FNV) vestra frá og með áramótum, samkvæmt frétt fréttavefjarins Feykis. Þar segir og að nú séu 167 íbúar á Norðurlandi vestra að hluta til eða alveg án atvinnu.

Það bætist stöðugt í hóp atvinnulausra á Íslandi og með auknum niðurskurði hjá ríki og sveitarfélögum er ekkert sem bendir til að það breytist á næstunni.


mbl.is Fimm kennurum sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að taka ákvörðun

„Ef ég skil þetta rétt var tekin ákvörðun um að taka ekki ákvörðun fyrr en eftir áramót, og ég tel ekki ástæðu til sérstakra viðbragða vegna þess," segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, um ákvörðun Arion banka að taka sér tvo mánuði til að meta tilboð um fjárhagslega endurskipulagningu 1998 ehf.

Það er útaf fyrir sig ákvörðun um að taka ákvötðun um að taka ekki ákvörðun fyrr en eftir tvo mánuði.  En hver skilur svona tal? 

Alla veganna ekki ég.


mbl.is „Hljóta að hafa sínar ástæður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fékk trollið í skrúfuna

Ísfisktogarinn Páll Pálsson ÍS 102 tók togarann Mars RE í tog um hádegisbil í gær eftir að síðarnefndi togarinn hafði fengið trollið í skrúfuna. Drátturinn til lands gekk vel og komu skipin til Ísafjarðar um fimm leitið í morgun.

Gott að þetta fór vel, því það er ekkert grín að fá troll í skrúfuna, sérstaklega ef skip er statt nærri landi.  Sem mun ekki hafa verið í þessu tilfelli.


mbl.is Fékk trollið í skrúfuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Strandir

Síminn hefur sett upp átta háhraðanetsstöðvar á Ströndum. Einungis ein þeirra hefur valdið vandræðum, en það er stöðin í Trékyllisvík, að sögn Margrétar Stefánsdóttur, forstöðumanns samskiptasviðs Símans. Unnið er að stækkun stöðvarinnar með birgja og verður málið leyst á næstu dögum.

Þetta ættu að vera mikil gleðitíðindi fyrir íbúa í Árneshreppi, sem búa við mikla einangrun stóran hluta ársins.


mbl.is Unnið að stækkun háhraðastöðvar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bónusar

Þrátt fyrir örðugleika í bankarekstri halda danskir bankar áfram að borga myndarlega kaupauka, eða bónusa, til valinna starfsmanna sinna. Þetta heldur áfram þrátt fyrir að danska ríkið hafi þurft að lána bönkunum neyðarlán, að sögn fréttavefjarins busaness.dk.

Þetta er til skammar að bankar sem hafa þurft á hjálp stjórnvalda við sinn rekstur, skuli leyfa sér að greiða starfsfólki bónusa.  Eru þessir bónusar kannski veittir þeim sem stóðu sig best að ná peningum frá danska ríkinu.


mbl.is Bónusar í dönskum bönkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt nafn

Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. hefur fengið nýtt heiti, Stefnir hf. Stefnir er dótturfélag Arion banka og starfrækir verðbréfa-, fjárfestingar og fagfjárfestasjóði.

Hvaða tilgangi eiga þessar nafnabreytingar að þjóna.  Telja stjórnendur hinna nýju banka að við nafnabreytingu gleymi fólk hvernig þessir bankar störfuðu áður?  Það er mikill misskilningur og allt kostar þetta stórfé, sem ekki er í raun til í þessum bönkum.  Auk þess liggur fyrir að kröfuhafar muni eignast bæði Íslandsbanka og Arion banka og eðlilegra hefði verið að nýir eigendur kæmu með nýtt nafn.


mbl.is Rekstrarfélag Kaupþings fær nýtt nafn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fróðlegur þáttur

Ég horfði á þátt í Sjónvarpinu í gærkvöld, sem fjallaði um hrunið á Wall Street 1929 og ástandið í Bandaríkjunum bæði fyrir og eftir hrunið.  Þessi þáttur hefði alveg eins getað verið um Hrunið mikla 2008.  Eftir sigur í fyrri heimstyrjöldinni lifðu Bandaríkjamenn í draumaheimi og veittu sér allt, sem þá langaði í og þá varð til hugtakið; "Að kaupa strax og borga seinna." og eftir því lifðu margir og Hægri maðurinn Hoover, sem þá var forseti taldi best að láta markaðinn sjá um sig sjálfan og allt var gefið frjálst og verðbréfamarkaðurinn á Wall Street var miðja alheimsins.  Þar keyptu fjárfestar verðbréf og hlutabréf í stórum stíl og högnuðust mikið.  Bandaríkin höfðu gefið út á stríðstímanum verðbréf til að standa undir kostnaði við stríðsreksturinn.  Þau bréf voru ekki aðeins keypt af fjárfestum heldu hafði hinn almenni borgari keypt slík bréf og þegar vextir af þessum bréfum fóru að koma inn á bankareikninga fólks, fór það að hugsa að það gæti einnig grætt á markaðnum í Wall Street.  Þá fór skriðan af stað og allir keyptu ýmist verðbréf eða hlutabréf í stöndugum fyrirtækjum.  Kaupin voru auðveld því að eins þurfti að greiða 10% af kaupverðinu og verðbréfasalar lánuðu afganginn og alltaf hækkuðu bréfin þannig að sá sem keypti fyrir 1000 dollara var eftir nokkra daga búinni að græða nokkur þúsund dollara og átti því auðvelt með að endurgreiða verðbréfasalanum lánið.  Bæði opinberir aðilar og fjármálafyrirtæki auglýstu mikið og hvöttu fólk til að fjárfesta á þessum markaði.  Tekið var dæmi af fátækum manni, sem var skóburstari og burstaði því skóg margra auðugra manna og heyrði hjá þeim hvað þeir höfðu grætt mikið á þessum markaði.  Hann átti ekki nema nokkur hundruð dollara í sparifé og stóðst ekki freistinguna og með lánafyrirkomulaginu gat hann keypt þó nokkur verðbréf og auðvitað hækkuðu þau eins og hjá öðrum og hann var allt í einu orðin talsvert auðugur maður og sneri sér nú alfarið að verðbréfamarkaðnum.  Allir trúðu því að bréfin gætu einungis hækkað en aldrei lækkað og brjálæðið varð algert.  Ef skortur var á bréfum á markaði sáu fjármála fyrirtækin um að dæla nýjum bréfum inn á markaðinn.  Allir vildu kaupa en enginn vildi selja, sem orsakaði að verð á þessum bréfum fóru hærra en nokkur hafði geta grunað.  Flestir bankar létu sitt ekki eftir liggja og fóru með sparifé fólks á þennan markað.  Græðgin var orðin slík að ákveðið gat kom í kerfið, sem var að fólk keypti bréf í fyrirtækjum, sem jafnvel voru ekki til.  Þetta gat nýtti einn kaupsýslumaður sér og varð á skömmum tíma einn auðugasti, maður Bandaríkjanna.  Um miðjan september fóru þessi bréf allt í einu að lækka án þess að nokkur gerðu sér grein fyrir hver var ástæðan.  Þá héldu stjórnendur allra stærstu bankanna neyðarfund, þar sem ákveðið var að taka saman höndum og kaupa hlutabréf í stöndugum fyrirtækjum í stórum stíl á Wall Street í þeirri von að glæða aftur lífi í þennan markað og það sama gerði auðmaðurinn Rokkefeller.  En því miður dugði þetta ekki til því traust fólks á verðbréfum var horfið og bréfin héldu áfram að lækka og verðbréfamiðlarar sátu uppi með bunka af óseljanlegum bréfum og nú vildu allir selja en enginn kaupandi var til staðar.  Álagið á kauphöllina var slíkt að starfsmenn komust ekki heim til sín að lokinni vinnu heldu láku niður af þreytu og sofnuðu í öllum pappírshaugnum.  Þann 28. september kom síðan hin skelfilega frétt að um 3000 bankar væru gjaldþrota og mörg stórfyrirtæki gætu ekki greitt þau verðbréf sem þau höfðu gefið út.  Hrunið varð algert og saklaust fólk sem trúði í blindni á frjálshyggjuna og kapítalismann, sat nú uppi með verðlausa pappíra í höndunum.  Í stað ríkisdæmis kom nú staða fátæktar og eymdar.  Mörg dæmi voru um að virðulegir viðskiptamenn mættu til vinnu sinnar í háhýsum New York og opnuðu gluggann og köstuðu sér úr og fjöldi sjálfsvíga fór af stað.  Nú skall kreppan á af fullum þunga og hún var bara ekki í Bandaríkjunum heldur breiddi úr sér um heim allan.  Í Bandaríkjunum var demókratinn Rossveld kosinn forseti og reyndi allt sem hann gat að stappa stálinu í þjóð sína.  Hann beitti sér fyrir að lög um eftirlit með fjármálastofnunum voru sett og skipaði nefnd til að rannsaka allt hrunið.  Margir af fremstu bankamönnum og auðmönnum voru kallaðir fyrir þessa nefnd og í framhaldi dæmdir í fangelsi.  Einnig beitti Rossveld sér fyrir að allar innistæður í bönkum væru tryggðar.  Aðeins einn lítil banki í Bandaríkjunum lifði kreppuna af en sá sem stjórnaði þeim banka var varfærinn og heiðarlegur maður og hann marg oft varaði við að verbréfabraskið gæti ekki enda með öðru en hruni.  En enginn vildi hlusta á þennan mann og var hann úthrópaður kommúnisti og allstaðar veitts að honum, sem endaði með að hann gafst upp og framdi sjálfsmorð.  Fjármálakerfin í Bretlandi og Frakklandi voru í rúst eftir dýran stríðsrekstur og í Þýskalandi, sem tapað hafði stríðinu geisaði óðaverðbólga og allt var þar í rugli.  Enginn trúði lengur á kapítalismann og frjálshyggju og nú tók að blómstra kommúnismi og fasimi.  Kommúnistar höfðu náð völdum í Rússlandi eftir stríðið og á Ítalíu náði Mussolíni að festa sig í sessi.  En þá kom bjargvætturinn óvænt fram í dagsljósið, sem var Adolf Hitler.  Hann náði völdum í Þýskalandi á undraverðu, skjótum hætti og nú gaf hann skít í allar hagfræðikenningar og lét Þýskaland hætta að greiða stríðsbætur og hóf mikla uppbyggingu á flestum sviðum í Þýskalandi.  Hann lét leggja hinar frægu þýsku hraðbrautir um allt Þýskaland og hóf uppbyggingu á sviði hermála, sem Þjóðverjar höfðu að vísu skrifað undir að aldrei yrði gert, en Hitler var sama og ef peninga vantaði óð hann inn í önnur lönd til að sækja það sem hann vantaði.  Á undra skömmum tíma breytti Hitler Þýskalandi úr fátækt og hörmungum í stórveldi sem blómstraði og margir litu öfundaraugum til.  Nú trúðu margir að nasisminn væri það sem koma skyldi og það nýtti Hitler sér til hins ýtasta og hóf að leggja undir sig nágrannaríkin eitt af öðru.  Allir óttuðust Þýskaland Hitlers og ekki að ástæðulausu, því maðurinn var bæði brjálaður og jafnvel geðveikur.  Það merkilega við Hitler var að hann fór aldrei eftir að hann komst til valda út fyrir landamæri Þýskalands á meðan hann lifði.  Þetta gat auðvitað ekki endað nema með stríði og 1939 braust seinni heimstyrjöldin út og allir vita hvernig hún endaði.  En oft er sagt að saga endurtaki sig og fólk hafi ótrúlega mikið lítið skammtímaminni.  Því um 1980 þegar Regan var forseti Bandaríkjanna afnam hann öll þau lög sem Rossveld hafði sett á sínum tíma og allt var gefið frjálst á ný og nú átti aftur að láta markaðinn sjá um sig sjálfan og láta frjálshyggjuna blómstra á ný.  Þetta dugði ekki lengi og 2008 hrundi allt á nýjan leik og sitjum við nú í enn meiri kreppu en 1930 og er ekki séð fyrir endann á því enn.  Nú er enginn Hitler til að bjarga málum, svo enginn veit neitt hvað framtíðin mun bera í skauti sér.

Loftlagsmálin

Æðstu forystumenn meira en 60 ríkja hafa staðfest komu sína á loftslagsfund Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember. Þetta hefur styrkt vonir manna um að mikilvægur árangur náist á fundinum, að sögn fréttavefjar BBC.

Þótt allir þessir forustumenn yfir 60 þjóða hafi staðfest komu sína á þennan fund.  Verður að varast að ætla sér að einhverjar líkur séu til að árangur náist, því þau lönd sem mest menga andrúmsloftið eru andvíg öllum takmörkunum á því.  Mörg þessara landa hafa ekki enn staðfest svokallaðan Kyoto-sáttmálan frá 1997 og því ekki líklegt að þau vilji gera nýjan sáttmála nú í ljósi fyrri reynslu.  Það eru ótrúlega margir sem trúa því að núverandi ástand orsaki hlýnun jarðar og miðað við núverandi ástand muni t.d. hiti á Íslandi verðasvipaður og er víða í Norður Evrópu.  En það mun aldrei ske, heldur munu hafstraumar breytast og talið er að áður en kemur að hlýnun jarðar komi ísöld, sem gæti varið í nokkur hundruð ár og þar með eytt miklu af lífi á jörðinni.  losun efna, sem skapa gróðurhúsaáhrif, skiptir engu fyrir þessa þróun.  Þetta hefur skeð með nokkuð reglulegu millibili gegnum margar aldir og því verður ekki breytt með einhverri samþykkt í Kaupmannahöfn.


mbl.is Meira en 60 þjóðaleiðtogar mæta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband