Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Eyðsla

Steingrímur J. Sigfússon „Ef menn eyða meira en þeir afla, ár eftir ár, þá endar það illa. Ég held að það skipti engu máli hvort menn eyða of miklu í krónum, dollurum eða evrum,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs Íslands og fastanefndar Evrópusambandsins í morgun.

Þetta er alveg rétt hjá Steingrími að myntin sem slík skiptir ekki máli ef eytt er meira en tekjur duga fyrir.  Hins vegar hefðum við sterkara bakland ef við værum í ESB.


mbl.is Of mikil eyðsla endar illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ASÍ

Gylfi Arnbjörnsson ræðir við ársfundarfulltrúa í dag. Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, kvaddi sér hljóðs á aukaársfundi sambandsins í dag til að gera grein fyrir því hvers vegna Vigdís Hauksdóttir hefði látið af störfum sem lögfræðingur ASÍ í kjölfar þess að hún tók 1. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavík suður.

Þetta finnst mér mjög eðlilegt að fólk láti af störfum þegar það er að fara í kosningabaráttu og jafnvel inn á Alþingi.

Það hefur lengi tíðkast sá ósiður hér á landi að fólk heldur áfram í sínu fyrra starfi þótt það sé í kosningabaráttu og er þá á fullum launum á meðan.  Sumir hafa jafnvel gengið svo langt að vera í fyrra starfi eftir að þeir hafa verið kjörnir á Alþingi.  Mig minnir að Björn Bjarnason hafi á sínum tíma bæði verið ráðherra og borgarfulltrúi í Reykjavík.  En hvort starf er talið' vera full vinna fyrir einn mann.


mbl.is Engin flokkspólitík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ræddu um makríl

 Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, og Helge Pedersen, sjávarútvegsráðherra, Noregs, ræddu makrílveiðar Íslendinga á símafundi í hádeginu í dag. Petersen hefur tekið undir kröfu norskra útvegsmanna um að afurðir úr makrílveiðum Íslendinga verði sniðgengnar.

Jæja það er gott að einhver hreyfing er á þessu vandamáli og vonandi finnst lausn sem fyrst.  Ég hef fulla trú á að Steingrími J. Sigfússyni takist að íslendingum verði leyft að vera með í ákvörðun á makrílkvóta.  Það kláraði Einar K. Guðfinnsson ekki áður en hann hætti.


mbl.is Ræddu um makrílveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþingi

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag, að enn væru 22 þingmál, sem ríkisstjórnin vildi afgreiða fyrir þinglok. Þar af væru 12 mál, sem snertu fjármál heimila og fyrirtækja, einkum þó frumvörp um greiðsluaðlögun veðlána.

Það ætti nú ekki að þurfa langan tíma til að klára þessi mál og allir flokkar ættu að leggjast á eitt um að hraða þeim í gegnum þingið.  Það er orðið stutt til kosninga og nú er ekki tími til að hópast í ræðustól og ræða um fundarstjórn forseta, eins og sjálfstæðismenn gerðu fyrir nokkrum dögum.


mbl.is Vilja afgreiða 22 mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jarðgöng

Fjarðarheiði er oft talsverður farartálmi á vetrum. Fjórir þingmenn Norðausturkjördæmis hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að hafin verði nú þegar undirbúningur að gerð jarðganga undir Fjarðarheiði.

Kosningarloforðin er farin að koma á færibandi.  Ísland verður eins og ostur þegar búið verður að grafa öll þau jarðgöng sem þingmenn vilja láta gera.  En væri ekki skynsamlegra að grafa göng í gegnum þessa heiði frekar en undir hana.  Það yrði örugglega ódýrara.


mbl.is Vilja jarðgöng undir Fjarðarheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Týnd kona

Björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu leita nú að öldruðum einstaklingi sem talinn er hafa villst að heiman í Grafarvogi í morgun. Leit hófst um klukkan ellefu og hefur enn ekki borið árangur.

Gamla konan hefur sennilega villst og vonandi að ekkert hafi komið fyrir hann.


mbl.is Leitað að aldraðri konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir H. Haarde er hættur í stjónmálum

Geir H. Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ræða við... Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, tilkynnti við upphaf þingfundar á Alþingi í dag að þetta væri síðasti starfsdagur hans á Alþingi. Sagðist Geir myndu láta af embætti formanns Sjálfstæðisflokksins á sunnudag og yrði síðan fjarverandi í næstu viku af persónulegum ástæðum.

Við þetta er ekkert að athuga og það kemur maður í manns stað.  Geir er að fara í læknismeðferð erlendis. 


mbl.is Geir kvaddi á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barack Obama

Ég horfði á fróðlegan þátt á Skjá einum í gærkvöld, en þá var Barack Obama, forseti Bandaríkjanna í viðtali hjá hinum vinsæla þáttastjórnanda Jay Leno og verið var að ræða um hið alvarlega efnahagsástand sem nú herjar á Bandaríkin.  Ég hafði fyrr um daginn verið að horfa á útsendingu frá Alþingi og þar benti Atli Gíslason alþm. á að mörg fjármálafyrirtæki hefðu tekjufært viðskiptavild langt upp fyrir eðlileg mörk til að skapa betri eignastöðu og þar með meira eigið fé sem arður er greiddur af.  Atli Gíslason kallaði þetta loftbóluhagfræði og loftbóluviðskipti, þar sem þetta væru bara tölur á blaði sem engar eignir stæðu fyrir.

Það vakti athygli mína við að hlusta á Barack Obama að hann notaði sömu orð og Atli og talaði um loftbóluhagfræði í Bandaríkjunum.  Þegar hann var spurður að því hvers vegna að ríkið hefði bjargað tryggingarrisanum AIG frá gjaldþroti, sagði Obama að ef það fyrirtæki hefði orðið gjaldþrota þá hefði nær allt fjármálakerfi Bandaríkjanna hrunið til grunna.  Aðspurður um mikla bónusa hjá stjórnendum stórfyrirtækja, sagði hann að nú lægi fyrir Bandaríkjaþingi frumvarp þar sem gert væri ráð fyrir að slíkir bónusar yrðu skattlagðir um 90% og er það eitthvað líkt skattastefnu VG á sl. landsfundi.  Þar sem nú hafa verið stofnuð á Íslandi samtök sem ætla að berjast fyrir því að allir fyrrverandi stjórnendur bankanna verði ákærðir fyrir landráð og settir í fangelsi.  Þegar Obama var spurður um slíkt hið sama svaraði hann því til að því miður hefði öll þessi vitleysa verið lögleg og nú yrði gengið í það verk að breyta lögum á þann veg að svona kæmi ekki fyrir aftur.  Það var sem sagt löggjafinn sem brást en ekki bankarnir eða bankastjórarnir.  Hann sagði einnig að ekki stæði til að hefja einhverjar nornaveiðar í Bandaríkjunum. Einnig sagði hann að það hefði verið orðið óeðlilegt að flestir sem fóru í háskólanám stefndu á að vinna í banka enda launin best þar og sífellt færri hefðu viljað stunda nám sem tengdist framleiðslu og skapaði verðmæti en það yrði sá grunnur sem myndi endurreisa hagkerfið í Bandaríkjunum.  Það fyrsta sem mér kom í hug eftir þennan þátt var, hvort hið sama hefði ekki verið hér á landi.  Það kom líka fram hjá Obama að margir bankar vildu bara lána fólki peninga og helst ekki fá þá endurgreidda, því með þeirri aðferð hækkuðu stöðugt eignir bankanna og eigið fé og þá um leið arðgreiðslur.  Nánast allt sem Barack Obama sagði var mjög líkt því sem Atli Gíslason var búinn að segja á Alþingi í gær.

Að lokum var Obama spurður hvort hundurinn væri kominn í Hvíta húsið eins og hann hafði lofað dætrum sínum fyrir kosningar.  Þá hló hann mikið og sagði "Það var bara kosningaloforð og þarf nokkuð að standa við þau."  En bætti svo alvarlegur a svipinn að dæturnar fengju bráðum hundinn.


Makrílveiðar

Nú hefur norski sjávarútvegsráðherrann hótað íslendingum, að ef þeir hætti ekki veiðum á makríl þá verði íslens skip svipt veiðiheimildum í norskri lögsögu.  Einnig ætlar hún að beina þeim tilmælum til norskra laxeldisfyrirtækja um að kaupa ekki mjöl til fóðrunar á laxi frá Íslandi  Íslendingar hafa ekki fengið aðild að þeim viðræðum þar sem kvóti á makrílveiðar er ákveðinn,þrátt fyrir óskir þar um.  Makrílinn er einn af svokölluðum flökkustofnum, sem fer um lögsögu nokkra ríkja þar á meðal Íslands.  Þar sem talsvert hefur verið um makríl í íslenskri lögsögu, hafa íslendingar ákveðið  einhliða kvóta, sem er í dag 114 þúsund tonn.  Friðrik J. Ásgrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ segir að ef Norðmenn láti verða af þessum hótunum kunni veiðar á Norsk-Íslensku síldinni verða í uppnámi og einnig telur hann þetta brot á  EFTA-samningnum.  Friðrik segir einnig að fáránlegt sé að veiða ekki makrílinn, sem gengur inn í íslenska lögsögu í stað þess að láta hann synda áfram til annarra landa og verða veiddur af öðrum þjóðum.  Þetta er alveg rétt hjá Friðrik og ætti ekki bara að gilda um makríl.  Nú er mokveiði af þorski og hafa bátar verið að fækka netum og draga úr sókn vegna kvótans.  Má ekki með sömu rökum ákveða að veiða þann þorsk sem hægt er að ná í áður en hann syndir inn í lögsögu annarra þjóða og veiddur þar.  Nei það má alls ekki því að núverandi þorskvóti er svo lítill að hægt hefur verið að halda verði á aflaheimildum í hámarki eða á kr: 4.000,- kílóið og allt er botnveðsett.  Ef þorskveiðar væru auknar þá væri hætta á að verðið myndi lækka verulega og þar með væri stór hópur fyrirtækja tæknilega gjaldþrota.

Það er ekki bæði sleppt og haldið

 í þessum málum

 hr. Friðrik J. Arngrímsson. 


Spakmæli dagsins

Ekki þarf að gylla gull,

Gullið verður ætíð bjart,

Þótt búið sé í rímað skart.

(Jón úr Vör)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband