Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Auglýsingar stjórmálaflokka

Frá Alþingi. Stjórnmálaflokkarnir sem eiga fulltrúa á Alþingi, Framsóknarflokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstrihreyfingin – grænt framboð hafa gert samkomulag um að takmarka auglýsingakostnað í aðdraganda alþingiskosninganna 25. apríl næstkomandi, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá flokkunum.

Til hvers eru flokkarnir að þessum skrípaleik.  Það er löngu vitað að þótt svona samkomulag sé gert þá eru til ótal leiðir til að fara framhjá þessu.  Það mun engin flokkur virða þessa samþykkt.  Fyrst Sjálfstæðisflokkurinn gat lagst svo lágt að betla peninga af Neyðarlínunni, þá er allt hægt í þessum efnum.  Ætli þeir snúi sér ekki næst að Mærastyrksnefnd, Rauða-krossinum eða Öryrkjabandalaginu. 

Hver veit?


mbl.is Flokkarnir semja um að helminga auglýsingakostnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

11 umsóknir

Fornleifavernd ríkisins auglýsti í byrjun mars laust til umsóknar starf minjavarðar Suðurlands. Umsóknarfrestur rann út 23. mars og bárust 11 umsóknir.

Það er ekki hægt að segja annað en þetta hlýtur að vera mjög eftirsótt starf.  En af hverju veit ég ekki.


mbl.is 11 sóttu um starf minjavarðar á Suðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérstaklegur saksóknari

Þau Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra, Jóhanna... Endurskoðuð áætlun um umfang embættis sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins gerir ráð fyrir því að fastir starfsmenn hans verði allt að sextán talsins, en þá eru ekki taldir með þeir erlendu sérfræðingar sem reiknað er með að starfi með saksóknaranum.

Nú ætti ekkert að vera til fyrirstöðu að byrja rannsókn af fullum krafti og fara að yfirheyra fólk.


mbl.is Saksóknari fær 16 fastráðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný ríkisstjórn

Frá Alþingi. Sjálfstæðismenn kröfðust á Alþingi í dag skýringa á því hvernig Samfylkingin og Vinstrihreyfingin-grænt framboð ætluðu að starfa saman eftir alþingiskosningarnar í apríl í ljósi þess að flokkarnir hefðu gerólíka stefnu varðandi aðild að Evrópusambandinu. Kölluðu þingmenn Sjálfstæðisflokks skýringar Samfylkingarmanna á ESB-ályktunum VG „skapandi túlkanir" og „kollhnísafréttaskýringar."

Ég held að sjálfstæðismenn ættu nú að hafa vit á því að halda kjafti.  Þeim kemur það einfaldlega ekkert við hvernig samningar verða á milli VG og Samfylkingaunnar.  Þeir ættu frekar að hafa áhyggjur af fylgishruni flokksins og þeirri staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn fer ekki í ríkisstjórn næstu áratugi.


mbl.is Kollhnísafréttaskýringar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rautt kjöt

Mynd 493642 Vísindamenn við Krabbameinsstofnun Bandaríkjanna hafa fundið nýjar vísbendingar um að óhófleg neysla á rauðu kjöti og unnum kjötvörum sé skaðleg heilsu manna. Vísindamennirnir segja að þeir sem neyta mikils kjöts séu í margfalt meiri hættu á að fá krabbamein og aðra banvæna sjúkdóma. Niðurstöður sínar byggja þeir á rannsókn á mataræði rúmlega 500 þúsund manns.

Þarna er nú verið að tala um ÓHÓFLEGA neyslu svo að þetta er nú ekki bráðdrepandi fyrir allt venjulegt fólk.


mbl.is Rautt kjöt og krabbamein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prófkjör

Mynd 493644 Á vef Sjálfstæðisflokksins kemur fram að þar er nú hægt að nálgast niðurbrot á því hvernig prófkjörið í Norðvesturkjördæmi fór og hvað efstu sex frambjóðendurnir fengu í hvert sæti. Gild atkvæði voru 2696 sem þýðir að 74,2% allra þeirra sem eru á kjörskrá kusu í prófkjörinu. Segir á vefnum að það sé mikil kjörsókn og með þeim betri á landsvísu.

Einar K Guðfinnsson hefur sagt að ástæða fyrir sigri Ásbjörns Óttarssonar í 1. sæti listans, vera að kosið hafi verið landfræðilega og þess gjaldi hann fyrir.  Þessi skýring gengur ekki upp því auk Einars eru tvær konur frá Vestfjörðum í efstu sætum.  Það er sveitarstjóri Tálknafjarðahrepps Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sem varð í 3. sæti og forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar Birna Lárusdóttir, sem varð í 4. sæti.  Þannig að af 5 efstu mönnum listans eru 3 frá Vestfjörðum.


mbl.is Niðurbrot atkvæða í prófkjöri Sjálfstæðuflokks í NV-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Launahækkun

Mynd 179847Á fundi í dag tilkynntu eigendur fiskvinnslufyrirtækisins Norðurstrandar á Dalvík að það ætli sér að standa við gerða samninga og hækka taxta frá og með 1. mars. sl. Fetar fyrirtækið þar í fótspor Brims og HB Granda sem einnig hafa ákveðið að hækka laun starfsfólk þrátt fyrir samkomulag um að fresta áður ákveðnum launahækkunum.

Þeim fjölgar stöðugt fyrirtækjunum sem ætla að standa við launahækkunina sem átti að verða 1. mars sl.  Það er því ljóst að mörg fyrirtæki ætluðu að nota sér ástandið í efnahagsmálunum til að greiða ekki þessa hækkun.  En forsenda verkalýðsfélaganna á frestun þessarar hækkunar var sú að rekstur fyrirtækjanna væri svo erfiður núna.  En annað virðist vera að koma í ljós.


mbl.is Norðurströnd hækkar laun starfsfólks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síld

Skip veiddu síld í Vestmannaaeyjahöfn í síðustu viku. Teknar voru myndir með neðansjávarmyndavél í Friðarhöfn í Vestmannaeyjum til að kanna ástand síldarinnar, sem þar hefur haldið sig að undanförnu. Fram kemur á vefnum Eyjafréttum.is. að hafsbotninn sé þakinn dauðri síld.

Alveg er það merkilegt að eitthvað möppudýr í Hafrannsóknarstofnun skuli hafa getað stöðvað hreinsun þeirra Eyjamanna á þessari síld.  Því við blasir mikil mengun og hætta fyrir lífríkið.

Hann Árni Johnsen verður ekki lengi að kippa þessu í lag svo hreinsunin geti haldið áfram.


mbl.is Hafnarbotninn þakinn dauðri síld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki rússnesk kosning

Mynd 493616Kristján Þór Júlíusson sá til þess með yfirlýsingu í hlíðum Vaðlaheiðar, gegnt Akureyri, á sunnudag að einhver spenna verður í formannskjöri á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um næstu helgi. Bjarni Benediktsson lýsti yfir framboði til formanns í byrjun febrúar sl., skömmu eftir að Geir H. Haarde tilkynnti að hann sæktist ekki eftir endurkjöri sem formaður flokksins.

Ég tela að Bjarni Benediktsson eigi sigurinn vísan í þessum kosningum.  Bæði er hann mjög efnilegur stjórnmálamaður og nýtur stuðnings flokkseigendafélagsins.  Svo er ekki lakara að hann er af hinni kunnu Engeyjarætt, sem oft hefur ráðið mestu í Sjálfstæðisflokknum.  En þetta verða átök á milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarsvæðisins.


mbl.is Komið í veg fyrir rússneska kosningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spakmæli dagsins

Heimurinn visnaði i þrældómi sínum,

siðir góðra manna gleymdust

og óskir hinna illu rættust.

(Firdausi)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband