Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Öryggi sjómanna

Smábátar í höfninni á Flateyri.„Ég skora á sjómanna-, skipstjóra- og vélstjórasamtökin og LÍÚ að koma í lið með Landsambandi smábátaeigenda og mæla með að lög um lögskráningu verði aflögð. Að öðrum kosti bið ég samtökin um láta af þeim leiða ósið að hlutast til um málefni smábátaeigenda sem ekki varða þeirra hagsmuni,“ segir Örn Pálsson framkvæmdastjóri LS. Hann segir lögskráningarlög úrelt fyrirbrigði.

Er maðurinn orðin eitthvað ruglaður.  Fram til þessa hefur verið skylt að lögskrá á skip yfir 20 brúttórúmlestum.  Þannig að ekki hefur þurft að lögskrá á smábáta, haf því sjómenn á þeim verið ótryggðir.  Nú liggur fyrir Alþingi að lögskrá skuli á öll skip.  Tilgangur lögskráningar er eftirfarandi;

1.   Að sjómenn hafi þau atvinnuskýrteini til þeirra starfa sem þeir eru ráðnir til.

2.   Að skipið hafi gilt haffærisskýrteini, skip og búnaður sé skoðaður árlega

3.   Lögbundinn áhafnartrygging sé í gildi. Nauðsynlegt ef slys verður um borð.

4.   Skráir siglingartíma sjómanna.  Nýtist sjómönnum ef þeir ætla í frekara nám á sviði sjómennsku. og er sönnun fyrir svokölluðum sjómannadögum sem sérstakur skatta afsláttur sjómanna byggir á.  Er einnig sönnun fyrir hvað sjómaður hefur starfað hjá ákveðinni útgerð ef til ágreinings kemur um uppgjör á launum.

Mér finnst þetta allt svo eðlilegt og sjálfsögð atriði að ekki ætti að þurfa um það að deila.  Hinsvegar kostar þetta talsverða peninga.  Mér finnst það Landssambandi smábátaeigenda til skammar að ætla að spara sér nokkrar krónur á kostnað öryggis sjómanna.


mbl.is Lögskráning úrelt fyrirbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NATO

Mynd 493524 Þegar Atlantshafsbandalagið var stofnað árið 1949 fór markmið þess og tilgangur ekki á milli mála. Bandalagið var stofnað til varnar gegn Sovétríkjunum.

Nú eru að verða komin 18 ár frá því Sovétríkin hrundu svo ekki stafar hætta úr þeirri átt.  Það er því auðskilið að stjórnendur NATO viti ekki hvað bandalagið á að gera í framtíðinni.


mbl.is NATO á krossgötum á sextugsafmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættir

Ásgerður Flosadóttir Ásgerður Flosadóttir, varaformaður Frjálslynda flokksins, hefur sagt sig úr flokknum og um leið öllum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Segir hún í tilkynningu að ástæðan sé sú að hún sjái ekki neinn vilja til breytinga innan flokksins. Telur hún að flokkur sem geti ekki haft stjórn á innri málefnum sé ekki nægjanlega trúverðugur til að taka þátt í þeirri endurreisn sem sé framundan í íslensku þjóðfélagi.

Það á ekki af þessum flokki mínum að ganga, eilíf vandræði og óánægja.  En vissi Ásgerður þetta ekki þegar hún var kosin varaformaður flokksins fyrir viku síðan.


mbl.is Ásgerður hættir í Frjálslynda flokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brennuvargur

Mynd 156071Bandarískt fyrirtæki býður tæpar 600 þúsund kr. í verðlaunafé berist því ábendingar sem leiða til handtöku brennuvargsins sem hefur kveikt í ferðaklósettum í San Francisco.

Flest getur nú mönnum dottið í hug.  Þetta er örugglega fyrsti klósettbrennuvargurinn í heiminum.


mbl.is Klósettbrennuvargur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veðurstofan

Mynd 493541 Veðurstofa Íslands kynnir nýjan vef sinn og nýtt merki í dag. Um er að ræða vef og merki nýrrar stofnunar sem tók til starfa um síðustu áramót þegar Vatnamælingar og eldri Veðurstofa Íslands voru sameinuð í nýja stofnun.

Er því ekki rétt að álykta sem svo að nú verði alltaf gott veður, því merkið er flott.


mbl.is Nýr vefur og nýtt merki Veðurstofu Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Páfinn

Benedikt XVI páfi hvatti í dag ríki Afríku til að takast á við fátæktina sem þar ríkir en hann var að ljúka við fyrstu ferð sína um heimsálfuna síðan hann tók við embætti. Ferðin hefur verið afar umdeild, vegna ummæla páfa um smokka og eyðni og sökum þess að tvær konur tróðust undir á laugardaginn þegar fólk flykktist á leikvang þar sem páfinn flutti ræðu.

Páfinn er að stórskaða hjálparstarf í Afríku með þessu bulli sínu.  Það er flestum kunnugt að ein mesta ógn sem steðjar að Afríkur er alnæmi og hafa mörg hjálparsamtök verið að fræða fólkið um notkun á smokkum til að reyna að hindra útbreiðslu þessa hræðilega sjúkdóms.

Svo kemur Páfinn gapandi um það að smokkurinn sé verkfæri andskotans og hann eigi engin að nota og besta leiðin til að stöðva útbreiðslu alnæmis sé að stunda ekki kynlíf.  Það var líka í stíl við þetta bull í Páfanum að tvær konur tróðust undir og létust á leikvanginum sem hann hélt sína ræðu.

Ég held að Páfinn ætti að halda sig heima, en ekki ferðast um og segja fólki allskonar bull og kjaftæði.


mbl.is Páfi talaði gegn spillingu og fátækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fresta ákvörðun refsingar

Héraðsdómur Reykjavíkur. Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað í morgun að fresta ákvörðun refsingar yfir stjórnarformanni og framkvæmdastjóra fyrirtækis vegna fjárdráttar þar sem rannsókn málsins hefur dregist úr hömlu þrátt fyrir að það sé ekki mikið að umfangi. Fólkið var ákært fyrir fjárdrátt þar sem fyrirtækið hafði ekki staðið skil á meðlagsgreiðslum starfsmanns sem voru dregnar af honum á árunum 2003 og 2004.

 Alveg finnst mér fáránlegt að kalla þetta fjárdrátt, þegar meðlögum var ekki skilað.  Ég fékk dóm 1997 þegar fyrirtæki sem ég var framkvæmdastjóri fyrir varð gjaldþrota 1992.  Það liðu því um fimm ár frá gjaldþrotinu þar til dómur féll.  Það var sama staðan og ákært fyrir fjárdrátt, þótt sannað væri að ég persónulega hafði ekkert hagnast, heldur voru peningarnir notaðir í rekstu fyrirtækisins t.d. að greiða laun, sem annars hefðu fallið á Ábyrgðasjóð laun þ.e. ríkið.  Ég var dæmdur í Hæstarétti til að greiða fjórar milljónir í ríkissjóð og til vara fangelsisvist í 4 mánuði.  Mér datt ekki í hug að greiða þessa peninga heldur sitja þetta af mér.  En þegar ég vildi gera það þá var hvergi pláss og ég settur á biðlista.  Ég var svo boðaður í byrjun ágúst 1998 og átti að mæta í hegningarhúsið við Skólavörðustíg, sem ég gerði.  Þar var ég eina nótt og þá sendur til Akureyrar í fangavist þar.  Þar fékk maður dagpeninga, sem dugðu fyrir tóbaki auk þess hafði ég tölvu með mér og bókhaldsgögn og gat unnið við að gera upp þetta bókhald sem var fyrir fyrirtæki í eigu mín og sonar míns.  Þarna var ágætis matur og maður mátti hafa sjónvarp í klefanum og öll aðstaða var ágæt þarna.  Það tók mig 4 mánuði að greiða mína skuld við ríkið sem var 4 milljónir og ef ég hefði ætlað að vinna fyrir þessum peningum hefði ég þurft að hafa tæpar 8 milljónir í tekjur.  Var ég því í raun með 2 milljónir á mánuði meðan á þessari fangelsisvist stóð. 

Hef ég aldrei á ævinni haft eins miklar tekjur og þennan tíma og hef ég nú yfirleitt verið frekar tekjuhár.


mbl.is Refsingu frestað vegna tafa á rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Launahækkanir

Sífellt bætist við þau fyrirtæki sem greiða launahækkunina sem átti að koma 1. mars kr: 13.500,-  Þegar verkalýðshreyfingin samþykkti að fresta þessari hækkun var við það miðað að fyrirtækin væru svo illa stödd að þau gætu ekki greitt þessa hækkun.  Fólk kaus heldur að fresta þessari hækkun en að missa vinnuna.  En arðgreiðslur HB-Granda hf. urðu til þess að augu fólks opnuðust fyrir því að mörg fyrirtæki væru að nýta sér ástandið og greiddu ekki þessa hækkun þótt þau hefðu alla burði til þess.

Þótt þetta sé ekki há upphæð þá munar verkafólk verulega um 13.500,- á mánuði.


mbl.is Fleiri greiða umsamdar launahækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vopnað rán

 Lögreglan

 

Þetta finnst mér nú frekar aumingjalegt þegar þrír menn ræna pitsusendil frá Dominos.  Þeir hafa varla haft mikið upp úr þessu ráni, því pitsusendlar ganga nú ekki með á sér stórar fjárhæðir. 

En þeir hafa fengið pitsuna frítt.


mbl.is Vopnað rán í Reykjanesbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spakmæli dagsins

 

Gengið er valt, þar fé er falt,

Fagna skali í hljóði.

Hitt varð alltaf hundraðfalt,

sem hjartað galt úr sjóði

(Einar Benediktsson)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband