Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

SPRON

SPRON Fundur starfsmanna SPRON á Grand Hótel var mjög tilfinningaríkur, að sögn fundarmanna. Á fundinum útskýrði Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON, fyrir starfsmönnum hvernig komið væri fyrir sjóðnum. Einnig þakkaði stjórn sjóðsins fyrir samstarfið.

Það hlýtur að taka á starfsfólkið, sem hefur verið í öruggri vinnu að fá svona fréttir að SPRON sé nánast gjaldþrota og óvíst með framhaldið.  Það eru um 180 manns sem missa vinnuna þarna.


mbl.is Tilfinningaríkur fundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blindfullir

Skipstjórinn var fullur og stýrimaðurinn lá sofandi í brúnni þegar lögregla fór í dag um borð í gámaskip sem strandaði við Kaupmannahöfn í morgun. Báðir mennirnir voru handteknir og verða færðir fyrir dómara á morgun þar sem krafist verður gæsluvarðhalds yfir þeim.

Þetta er því miður alltof algengt á þessum stóru flutningaskipum, þar sem yfirmenn eru að sulla í bjór og víni flesta daga.  Öllu alvarlega er þó í Rússlandi þar sem algengt er að flugmenn séu fullir við stjórn flugvéla.  Ég sá eitt sinn myndbrot frá flugvelli í Rússlandi þar sem aðstoðarflugmaður var að styðja flugstjórann dauðadrukkinn í gegnum tollinn. 


mbl.is Allir fullir í brúnni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG

Það er eðlilegt að svona stór fundur dragist á langinn, því margt er að ræða og vinna að ályktunum, sem síðan á eftir að kjósa um.  Það er greinilega verið að kafa djúpt í málin á þessum fundi.
mbl.is Fundur VG dregst á langinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri stjórn

Frá landsfundi VG sem stendur yfir um helgina. Vinstri græn munu ekki taka þátt í stjórnarsamstarfi með Sjálfstæðisflokknum í vor. Ályktun um þetta, svonefnd ályktun um félagshyggjustjórn, var samþykkt á landsfundi flokksins áðan.

Það er alveg ljóst að núverandi ríkisstjórn mun halda áfram eftir kosningar.  Sennilega verða gerðar einhverjar breytingar á ráðherraliði flokkanna.  En Sjálfstæðisflokkurinn mun verða að sætta sig við stjórnarandstöðum um ókomin ár.


mbl.is VG bundin - á móti Sjálfstæðisflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættur

Ármann Kr. ÓlafssonÁrmann Kr. Ólafsson alþingismaður hefur ákveðið að taka ekki sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Ármann náði ekki þeim árangri sem hann stefndi að í prófkjörinu á dögunum.

Til hvers er fólk að taka þátt í prófkjörum ef það fer í fýlu og hættir ef það nær ekki þeim árangri sem stefnt er að.  Þá er eins gott að sitja bara heima og gera ekkert.


mbl.is Ármann gefur ekki kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prófkjör

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður er í efsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi meirihluti atkvæða hefur verið talinn. Ásbjörn Óttarsson, forseti bæjarstjórnar Snæfellsbæjar og útgerðarmaður, sem sækist eftir 1.-2. sæti listans, er í 2. sæti. Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir er hins vegar komin í þriðja sæti listans þegar talning er langt komin.

Þessi frétt er orðin úrelt því Ásbjörn Óttarsson vann Einar K. Guðfinnsson þegar öll atkvæði hafa verið talin.  Ásbjörn mun því skipa 1. sætið á listanum en nú er spurning hvað Einar gerir.  Sennilega verður hann í 2. sætinu og Eyrún í því þriðja.


mbl.is Eyrún Ingibjörg í þriðja sætinu í NV-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigraði sitjandi þingmann

Ásbjörn Óttarsson vann Einar K. Guðfinnsson í prófkjöri flokksins nú um helgina og mun skipa fyrsta sæti listans.  Þetta var reyndar mjög jafnt og munaði aðeins 7 atkvæðum, en nóg til að vinna.  Það verður því talsverð endurnýjun á þessum lista frá því síðast því bæði Sturla Böðvarsson og Herdís Þórðardóttir ætla að hætta þingmennsku.
mbl.is Ásbjörn vann baráttuna við Einar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framboðslisti

Þetta er talsvert skrýtin uppröðun, því Soffía Lárusdóttir, sem hafnaði í 5. sæti í prófkjöri flokksins er ekki á listanum, heldur er önnur kona sett í hennar sæti, þ.e. 5. sætið.  Soffía er greinilega ekki í náðinni hjá þeim sem þessu réðu.  Hún er kannski ekki frá Akureyri.
mbl.is Soffía ekki á listanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Formannsframboð

Það mun verða harður slagur í formannsframboði Sjálfstæðisflokksins á landsfundi hans um næstu helgi.  Nú hefur Kristján Þór Júlíusson bætts í þann hóp.  En flestir reiknuðu með að Bjarni Benediktsson yrði nánast sjálfkjörinn.  Þetta framboð Kristjáns mun kalla á fleiri framboð t.d. Illuga Gunnarssonar, sem sigraði í prófkjöri flokksins um síðustu helgi.  Eins væri Guðlaugur Þór líklegur í framboð.  Þetta mun þýða að atkvæði dreifast mikið og nánast happadrætti hver verður formaður, en ég veðja þó á Bjarna Benediktsson sem mun njóta þess að vera af hinni kunnu Engeyjarætt, en sú ætt hefur löngum verið valdamikil í Sjálfstæðisflokknum.

Kristján Þór nýtur hinsvegar kvótagreifanna í flokknum en hann hefur verið mikill talsmaður þeirra, tók t.d. þátt í þegar Guðbjörg ÍS-46 var seld frá Ísafirði til Akureyrar með bolabrögðum.  En hann hafði áður verið bæjarstjóri á Ísafirði en var orðin bæjarstjóri á Akureyri.


mbl.is Kristján Þór tilkynnir um framboðsáform
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spakmæli dagsins:

Nafni minn drekkur aldrei.  Og þegar hann drekkur er hann edrú

(Halldór Kolbeins um Halldór Laxnes.)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband