Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Laugavegur

Nú eru uppi hugmyndir hjá Reykjavíkurborg að gera Laugarveginn að göngu götu í góðu veðri í sumar.  Þetta er góð hugmynd og þá ætti líka að fylgja með að veitingastaðir mættu færa borð og stóla út úr húsi og afgreiða þar.  Þá gæti fólk setið í rólegheitum yfir bjórkönnu og virt fyrir sér mannlífið.
mbl.is Laugavegurinn verði göngugata í góðu veðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Timbraður gestur

Ætli hann sé ekki orðinn þreyttur á því að hafa setið þarna við borð frá maílokum.
mbl.is Timbraður gestur lýsir eftir eiganda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþingi

Nú hefur verið boðað til mótmæla við Alþingishúsið í dag kl: 14,oo vegna samninganna um Icesave.  Ekki hef ég trú á að þetta hafi mikil áhrif, því að á sínum tíma samþykkti Alþingi að fara þessa samningaleið og Árni Matthísen fv. fjármálaráðherra var búinn að semja við Hollendinga með miklu verri samningi en þeim sem nú er til umræðu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fékk miðstjórn Framsóknarflokksins til að samþykkja að hafna þessum samningi.  Það mætti ætla að Sigmundur Davíð teldi að til hefði orðið nýr Framsóknarflokkur þegar hann varð formaður og flokkurinn eigi enga fortíð.  En það var í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sem bankarnir voru einkavæddir og í tíð Valgerðar Sverrisdóttur, viðskiptaráðherra sem leyfði Landsbankanum að stofna þessa Icesave-reikninga.  En nú tala þeir í Framsókn eins og þeir hafi aldrei vitað af þessu máli eða komið nálægt því.

Er þetta að verða eins og með bankanna að til er Ný Framsókn og Gömul Framsókn og öll spillingin og ruglið hafi verið skilið eftir í Gömlu Framsókn.


mbl.is Boðað til mótmæla við þinghúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmæli

Hvernig er hægt að aflýsa því að fólk mótmæli?  Það er kannski hægt í Íran því fólk sem ekki hlýðir er einfaldlega skotið.  Nýkjörinn forseti líkir þessum mótmælum við óeirðir eftir tap í fótboltaleik og samkvæmt því voru forsetakosningarnar álíka merkilegar í hans augum og fótboltaleikur.  Enda er forseti Írans nánast valdalaus.  Það er hið 88 manna erkiklerkaráð sem öllu ræður og þótt skipulögðum mótmælum hafi verið aflýst er ekki þar með sagt að ró komist á í landinu.
mbl.is Aflýsir mótmælum í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsókn

Nú ætlar æðsti leiðtogi Íran, erkiklerkurinn Ali Khamenei að láta rannsaka forsetakosningarnar í Íran.  En hætt er við að sú rannsókn breyti engu því þessi erkiklerkur var búinn að fagna sigri þess frambjóðanda sem fékk flest atkvæði og erkiklerkurinn styður hann auðvitað.  Þetta er bara sýndarmennska til að láta líta svo út að virkt lýðræði sé í Íran.
mbl.is Khameini fyrirskipar rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kópavogur

Nú hefur hópur sjálfstæðismanna í Kópavogi hafið baráttu fyrir því að Gunnar Birgisson verði áfram bæjarstjóri.  Þrátt fyrir að hann hafi verið uppvís að því að misnota aðstöðu sína og jafnvel brotið lög.

Þetta dæmi sínir okkur enn einu sinni hversu spilltur Sjálfstæðisflokkurinn er og ætlast til þess að þeim sé ávalt fyrirgefið.

Það væri því til að toppa spillinguna ef niðurstaðan í Kópavogi yrði sú að Gunnar Birgisson sæti áfram sem bæjarstjóri eins og ekkert hefði skeð.  Framsóknarhækjan yrði örugglega sátt við það líka.


mbl.is Vilja ekki að Gunnar hætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvolpur í klósetti

Hvolpur í Bretlandi lenti í óvæntum hremmingum þegar fjögurra ár drengur sturtaði honum óvart niður í klósett, þegar hann var að þrífa hann.

En allt fór þetta nú vel að lokum, því þótt hvolpurinn hafi fest í skolplögninni náðu pípulagningarmenn að finna hann og bjarga honum.  Hann var þá komin um 20 metra frá heimili sínu.


mbl.is Sturtaði hvolpi niður klósettið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norður-Kórea

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, harmar þá ákvörðun Norður-Kóreu að ætla að smíða kjarnorkuvopn.

Þetta er vissulega áhyggjuefni því stjórnvöld Norður-Kóreu, eru einfaldlega brjálæðingar.  Það er líka skrýtið hvernig þeir hafa efni á þessu brölti sínu, þegar vitað er að stór hluti þjóðarinnar sveltur og allur efnahagur er í rúst.

Hverjum ætla þeir síðan að verjast með þessum vopnum sínum?  Þetta hlýtur að vera hugsað til árása á önnur ríki.


mbl.is Harmar ákvörðun Norður-Kóreu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spakmæli dagsins

Arfur kapítalismans er ójöfn skiptin gæðanna.

Arfur sósíalismans er jöfn skipting eymdarinnar.

(Winston Churchill)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband