Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Misskilningur

Sigríður nunna dó og fyrir misskilning lenti í neðra.  Hún hringdi strax í Lykla-Pétur og sagði honum hvað hefði gerst og Pétur sagðist kippa þessu í liðinn hið snarasta.  Dagur leið og ekkert breyttist svo Sigríður hringdi aftur í Pétur;

"Sæll Lykla-Pétur  þetta er Sigríður nunna.  Nú hefur liðið dagur og ekkert gerst.  Það er allt svo skrýtið hérna í neðra og mér þætti vænt um ef þú gætir hraðað þessu."   Já afsakaðu Sigríður mín.  Það hefur verið svo mikið að gera að ég hef ekki komist í þetta.  Kíki á þetta strax.  Nóttin leið og ekkert bólaði á breytingum svo Sigríður hringir aftur í Lykla-Pétur og segir; "Sæll Lykla-Pétur.  Þetta var hræðileg nótt hér í neðra og mér sýnist að það eigi eftir að verða hræðilegra.  Í kvöld verður hér kynsvall hér í neðra og þú verður að bjarga mér til himna sem fyrst.  Fyrirgefðu Sigríður mín, ég steingleymdi þessu en skal redda þessu strax.

Önnur nótt leið og Sigríður hringir aftur "Sæll Pési, Sigga hérna."

"Gleymdu þessu."


Íran

Nú er mikil spenna í Íran eftir forsetakosningarnar og víða mikil mótmæli, því er jafnvel haldið fram að þarna hafi verið um kosningasvik að ræða.  Annars er nú forseti Íran nánast valdalaus, er bara andlit þjóðarinnar út á við.  Þeir sem öllu ráða er hið svokallaða klerkaráð, sem skipað er öfgafullum íslamstrúarmönnum.  Það er talið að búið sé að hrinda af stað þróun sem ekki sér fyrir endann á.
mbl.is Mikil spenna í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

66 lóðir á uppboð

Það verður mikið að gera hjá honum Ólafi Helga Kjartanssyni þann 15. júní, þegar 66 sumarhúsalóðir verða boðnar upp hjá embættinu á Selfossi.  Þá munu margir hrægammar mæta á staðinn og nýta sér neyð annarra til að hagnast.
mbl.is 66 lóðir boðnar upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verktakar

Verktakar eru nauðsynlegir í hverju þjóðfélagi og eins og ástandið er á Íslandi í dag er mjög hagstætt fyrir opinbera aðila að fara í framkvæmdir.  Því nær öll verk sem boðin hafa verið út undafarna mánuði hafa skilað lægri tilboðum en kostnaðaráætlanir hafa hljóðað upp á.  En auðvitað er það sama með verktaka og önnur fyrirtæki að inn á milli leynast svartir sauðir, sem ekkert erindi eiga á þennan markað.
mbl.is Er verra að vera verktaki?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heiðraður

Það er mikið fagnaðarefni þegar menn fá svona viðurkenningar fyrir sín störf og hægt að ræða um eitthvað annað en þetta eilífa kreppukjaftæði.
mbl.is Einar Stefánsson heiðraður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fundarhöld

Hvað er eiginlega að ske í íslensku þjóðfélagi ef ekki eiga að vera neinir fundir í dag um ríkisfjármálin í dag.  Ég hefði haldið að alltaf væri hægt að finna ástæðu til að halda fundi, sem síðan skila engu nema bulli.
mbl.is Ekki fundað formlega í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar Birgisson

Væri ekki alveg upplagt að fá hálfbróður Gunnars, Kristinn H. Gunnarsson fv. alþm. í starfið.  Hann er hættur á þingi og vantar örugglega góða vinnu.  Þá héldist staðan alla veganna innan ættarinnar, en er það ekki einmitt ættartengsl sem eru í hávegum höfð í Kópavogi.
mbl.is Fundað um eftirmann Gunnars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skúta

Þá er hún komin til hafnar skútan sem steytti á skeri í Breiðafirði í morgun, en 8 manns voru um borð í skútunni.

Það getur verið mjög varasamt að sigla innarlega á Breiðafirði ef fólk er ekki mjög kunnugt á þeim slóðum.  Þarna er alt fullt af skerjum og smáeyjum.


mbl.is Skútan komin til hafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afmælisgjöf

Góður kunningi minn sem býr í Kópavogi og er giftur mjög frekri og feitri konu.  Þau hafa verið í hjónabandi í um 35 ár og alltaf virst vera mjög hamingjusöm.  Maðurinn rekur lítið vélaverkstæði, sem gengur vel og konan sér um bókhald og fjármálin og rukkar inn þá reikninga sem eru ógreiddir.  Mér er sagt að viðskiptavinir þessa verkstæðis þori ekki að draga að greiða reikningana, slík er frekjan og yfirgangurinn í konunni.  Konan þarf ekki að hringja nema eitt símtal og þá greiðir viðkomandi sína skuld um leið.  Því enginn leggur í að fá hana í heimsókn slík eru lætin þegar hún mætir á viðkomandi stað til að innheimta.

Hjónin eru nú um 60 ára gömul og alltaf blómstrar hjónabandið með því að konan ræður öllu og maðurinn þrælar eins og skeppna og tekur aldrei frí.  Þegar maðurinn varð sextugur, gaf konan honum nýjan vinnugalla í afmælisgjöf og lét þau orð falla að nú skyldi hann ekki gleyma sínu afmæli.

Þegar hjónin voru að fara að sofa kvöldið fyrir afmæli konunnar, sagði húnn með rödd þess sem valdið hefur "Fyrir hádegi á morgun vil ég sjá hér fyrir framan dyrnar hlut sem kemst frá 0-10 sekúndna hraða á innan við einni mínútu;" ( og átti auðvitað við nýjan bíl)  Maðurinn fór í sína vinnu um kl: 7,00 en konan svaf áfram og þegar hún vaknaði fór hún strax og opnaði útidyrnar og í stað særðar pakka sem gæti verið bíll var bara lítill fallegur pakki og kort sem á stóð "Til hamingju með daginn elskan" og nafn mannsins undir.  Konan tók pakkann og fór með hann inn og sótrauð af reiði og bölvaði manni sínum mikið og sagði við sjálfa sig aldrei skilur þessi mannapi neitt sem við hann er sagt.  Síðan reif hún upp pakkann og undrunin varð mikil, því í pakkanum var;

Baðvigt


Spakmæli dagsins

Við sjálf höfum ekki efni á lífi okkar.

Við virðumst fá það að gjöf en eftir á

er okkur sendur hár reikningur.

(Frá Ítalíu)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband