Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Áfram bæjarstjóri

Nú liggur það fyrir að Gunnar Birgisson ætlar að starfa áfram sem bæjarstjóri í Kópavogi, þótt hann segist ætla að hætta von bráðar.  Enda hefur maðurinn ekkert gert af sér því að sög Gunnars var skýrslan frá endurskoðandafyrirtækinu Delotte pöntuð að pólitískum andstæðingum hans til að reyna að hrekja hann frá völdum.  Gunnar hefur fengið aðra lögfræðistofu til að koma með nýtt álit og þar er staðfest allt það sem Gunnar hefur sagt um þetta mál.  Sú skýrsla sem pöntuð var af Gunnari sjálfum hefur ekkert með pólitík að gera.
mbl.is „Þetta jaðrar við brjálæði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitrun

Lömunareitrun PSP hefur greinst í kræklingi úr Eyjafirði og er varað við að tína og neyta hans.

Þar með er kominn dauðadómur yfir því fyrirtæki sem mestum árangri hefur náð í kræklingaeldi hér við land.  En þetta fyrirtæki í Eyjafirði var búið að leggja mikla fjármuni í þetta verkefni og afla sér markaða erlendis fyrir krækling og hefði getað orðið stórt fyrirtæki með miklar útflutningstekjur.

En nú er þetta búið spil með þessum niðurstöðum.


mbl.is Eitrun í kræklingi úr Eyjafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjallan glymur

Forseti Alþingis þurfti oft að slá í bjöllu sína þegar Sigmundur Davíð ætlaði að ræða um fundarstjórn forseta en fór þess í stað að ræða um allt annað.  Því miður eru margir þingmenn sem ekki virða þingsköp og misnota þennan lið um fundarstjórn forseta til ræðu halda um óskyld mál.

Þarf virkilega að setja alla þingmenn á skólabekk til að kenna þeim hvernig Alþingi á að starfa.


mbl.is Bjölluspil í þingsal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættuleg forvitni

Það mun hafa verið um 1950 sem tveir aldraðir sjómenn á Neskaupsstað stunduðu grásleppuveiðar og lögðu net sín utarlega í Norðfjarðarflóa.  Þegar þeir voru að draga netin í einni veiðiferðinni kom í ljós að tundurdufl hafði flækst í netin, sá sem yngri var eða um 70 ára vildi endilega að þeir færu með duflið í land og opnuðu það til að sjá hvernig það liti út að innan.  Varð það úr að þeir settu enda í duflið eftir að hafa losað það úr netinu og lögðu af stað til Norðfjarðar.  Þegar þangað kom fóru þeir að einum löndunarkrananum fyrir smábáta og ætluðu að hífa duflið upp á pallbíl sem þeir áttu og fara með það í veiðarfærageymslu sína og opna duflið.  Við fyrstu sýn þótti þeim það ekki flókið aðeins þyrfti meitil og hamar til verksins.  Þegar þeir eru að baksa við að útbúa bönd til að hífa duflið, kemur lögreglan brunandi á bryggjuna og harðbannar þeim að hífa duflið upp á bílinn því ef það rækist einhversstaðar í gæti það sprungið.  Nú þyrfti að kalla til sprengjusérfræðing frá Gæslunni til að gera duflið óvirkt.  Þetta þótti nú gömlu mönnunum óþarfa hræðsla hjá lögreglunni og ákváðu að draga duflið yfir Norðfjörð og að eyri sem þar er og þar ætluðu þeir síðan að opna duflið og skoða innihaldið.  Duflið hafði nokkrum sinnum rekist utan í bátinn og ekkert skeð svo þeir töldu að ekkert væri að óttast.  Vonuðust þeir til að inn í duflinu gæti verið einhverjir nýtilegir hlutir.  Talsverð alda var á Norðfjarðarflóa þegar þeir lögðu af stað með duflið og þegar þeir nálguðust fyrirhugaðan áfangastað slitnaði endinn sem bundin var í duflið og þrátt fyrir margar tilraunir til að koma endanum á duflið á ný tókst það ekki og rak duflið því upp í grýtta fjöruna og veltist þar um í stórgrýti.  Eftir smá stund varð þessi rosalega sprenging og svo mikil að hús í Neskaupsstað nötruðu og margar rúður brotnuðu.  Einnig kom lítilsháttar flóðbylgja á bát þeirra félaga og varð þeim þá að orði; "Að sennilega hefði lögreglan haft rétt fyrir sér og þetta hefði verið stórhættulegur andskoti þetta dufl."  Flýttu þeir félaga sér því í land og hugsuðu ekki meira um tundurduflið að sinni.  En samt sat það í þeim talsverð kergja að hafa ekki getað opnað duflið og vonuðu að fá aftur annað dul í netin en ekki varð þeim að þeirri ósk sinni.

Náttúrumæraskrá

Nú er komin á vefinn náttúrumæraskrá fyrir Fljótsdalshérað.  Er þar um að ræða skrá yfir örnefni og lýsingar á rúmlega 600 stöðum og svæðum.  Auk þess að lýsa plöntum, vötnum, fuglum og fiskum.

Þetta er virðingarvert framtak hjá þeim á Fljótdalshéraði, því alltaf er hætt við að örnefni tíni tölunni með kynslóðaskiptum.

Þetta mættu fleiri aðilar á landinu taka sér til fyrirmyndar.


mbl.is Náttúrulýsingar á vefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flugslys

Þá er að skýrast hvað kom fyrir frönsku farþegavélina sem fórst undan ströndum Brasilíu.  En hún mun hafa brotnað í tvennt áður en hún skall á haffletinum.  Öll lík sem hafa fundist bera þess merki að fólkið var dáið áður en vélin fór í hafið.
mbl.is Vélin brotnaði í tvennt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Safn um bankahrunið

Á jörðinni Veiðilæk hafa engar framkvæmdir verið lengi.  En þar var Sigurður Einarsson fv. stjórnarformaður Kaupþings að byggja sér sumarhús.  Nú stendur þessi bygging hálfkláruð og stungið hefur verið upp á því að hafa þarna safn um bankahrunið, en þetta hús mun vera yfir 800 fermetrar að stærð og ljóst er að Sigurður mun aldrei klára þetta hús.

Þetta er ekki svo vitlaus hugmynd að gera þetta að safni.


mbl.is Safn um bankahrunið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miklar skuldir

21 árs norskur kaupsýslumaður, lét lífið í bílslysi á Spáni sl. haust.  Nú er lokið skiptum á dánarbúi mannsins og kom í ljós að hann skuldaði 52 aðilum um 10 milljarða íslenskra króna.

Hann hefur haft gott lánstraust þessi náungi, en eftir stendur spurningin;

Í hvað fóru allir þessir peningar?


mbl.is 21 árs Norðmaður skuldaði 10 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálsar handfæraveiðar

Á Alþingi í gær var verið að ræða um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða og það nýmæli að gefa handfæraveiðar frjálsar með vissum takmörkum þó.  Sjálfstæðismenn tóku mikinn þátt í umræðunni, eins og alltaf þegar rætt er um breytingar á þessu kvótakerfi sem mikill meirihluti þjóðarinnar vill breyta.  Það vantaði ekki að Sjálfstæðismenn segðust þessar breytingar af hinu góða en samt væru þeir á móti þeim og töluðu um illa undirbúið mál og bla,bla,bla.  Það sama gerði Framsóknarþingmenn, en báðir þessir flokkar eru höfundar að þessu kerfi.  Ein af þeim fullyrðingum sem komu fram var að þetta væri yfir sumarmánuðina og þá væru gæði hráefnisins frekar slæm.  Eins myndu hópast í þessar veiðar menn sem ekkert vit hefðu á fiskveiðum.  Ólína Þorvarðardóttir varaformaður sjávar- og landbúnaðarnefndar stóð sig eins og hetja við að svara þessum mönnum.

Hvernig dettur þingmönnum með heilbrigða skynsemi það í hug að margir kasti frá sér ágætri vinnu til að fara á handfæraveiðar í nokkra mánuði og kosta til þess 30-40 milljónum.  Því gert er ráð fyrir að hver bátur fái ekki að veiða nema 800 kíló af fiski á dag, auk þess sem ekki má stunda veiðar á laugar- og sunnudögum.  Þannig að líklegur fjöldi veiðidaga í hverjum mánuði gæti verið um 20 dagar og hámarksafli yrði þá um 16 tonn á mánuði.  Ef fiskurinn er mun lélegri að gæðum á sumrin má gera ráð fyrir að aflaverðmæti yrði 3,2 milljónir á mánuði og væri þá ekki líka best að stöðva allar veiðar á sumrin ef gæðin eru minnst á þeim tíma.  Ásbjörn Óttarsson nýkjörin þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn, er einnig útgerðarmaður smábáta.  Hann sagði að nú myndu flestir þeir smábátar sem stunda línuveiðar hætta því og fara í þetta nýja kerfi og þar með myndu allir beitningamenn í hans heimabyggð, sem er Rif, missa atvinnu sína, en áður var hann búinn að segja að ekki væri hægt að veiða á handfæri nema þorsk og ufsa.  Ætlast Óttar til að einhver trúi svona kjaftæði að útgerðarmenn línubáta hætti því til að stunda handfæraveiðar og fá einungis veiða 800 kíló í 12 klukkustunda veiðiferð, þá væri lítið verið að hugsa um arðsemi veiðanna.  Einnig sagði hann að flestir bátarnir færu á þá staði sem styðst væri á miðin og tók dæmi um að bátar frá Stykkishólmi myndu flestir róa frá Rifi og bátar við Ísafjarðardjúp færu að róa frá Bolungarvík.  Í dag er það svo að þeir bátar sem selja afla á fiskmarkaði eins og skylda verður í þessu nýja kerfi, eru aldrei öruggir um hvert fiskurinn fer til vinnslu.  Nú þegar eru þúsundir tonna fluttir með flutningabílum landshornanna á milli, þannig að þótt bátur úr Stykkishólmi landi á Rifi væri auðvelt að flytja þann afla til Stykkishólms og vinna hann þar.  Ég verð að viðurkenna að málflutningur Sjálfstæðismanna í gær var ömurlegur á að hlýða og nú báru þeir allir mikinn hag fyrir að byggðakvótinn héldi áfram.  En fram að þessu hafa varðhundar þessa kvótakerfis LÍÚ verið alfarið á móti byggðakvótum og haft til þess stuðning Sjálfstæðismanna.  Það eru mörg sjávarþorp allt í hringum landið sem hafa misst frá sér allar aflaheimildir og þar með atvinnuna og þegar atvinnan hefur farið hefur fólkið líka farið.  Byggðakvótarnir hafa aðeins virkað eins og smá plástur á svöðusár.

Staðreyndin er sú að þessar frjálsu handfæraveiðar verða eingöngu stundaðar af mönnum sem eru hættir á sjó og gera þetta einungis ánægjunnar vegna en ekki í gróðaskyni. Enda er ekki hægt að hagnast á þessum veiðum.  Aftur á móti dugar þetta til að allir sem vilja og geta eiga þess kost að fara á sjó og veiða fisk án þess að greiða himinhá leigur til Sægreyfanna.  Einnig er uppfyllt það atriði sem Mannréttindanefnd Sameinuðu Þjóðanna setti út á aflamarkskerfið.


Spakmæli dagsins

Við hund sem á peninga segir maður:

Hr. hundur.

(Frá Arabíu)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband