Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Kæra

Hvernig er þetta eiginlega þarna í Kópavogi er þar ekkert nema spillin á öllum sviðum.  Í stjórn þessa lífeyrissjóðs sitja fulltrúar frá öllum flokkum í bæjarstjórn Kópavogs.  Mér finnst að þeir eigi ekki bara að hætta í stjórn lífeyrissjóðsins, heldur einnig að segja af sér sem bæjarfulltrúar.
mbl.is Stjórn lífeyrissjóðs kærð til lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jarðskálfti

Hvað er verið að tala um jarðskjálfta á Reykjanesi.  Ég bý nú í Sandgerði og hef ekki tekið eftir neinu og samt á hann að hafa fundist á höfuðborgarsvæðinu.  Er ekki verið að gera úlfalda úr mýflugu?
mbl.is Jarðskjálfti á Reykjanesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reiði

Það er mikil reiði í þjóðfélaginu þessa daganna og ekkert skrýtið, því þessi ríkisstjórn virðist vinna allt með handarbökunum.  Hver vitleysan rekur aðra og ráðleysið er algjört, á Alþingi rífast menn um einföldustu hluti.  Þingmenn fara í andsvör hver við annan og jafnvel við sjálfan sig.  Þeir gera athugasemdir við þingmál sem þeir síðan lýsa yfir að þeir ætli að styðja.  Við hverja einustu atkvæðagreiðslu á Alþingi brjóta þingmenn stjórnarskránna með því að kjós ekki eftir eigin sannfæringu, heldur flokksaga.  Þetta á bæði við um stjórnarsinna og stjórnarandstæðinga, til hvers er verið að greiða þessu fólki laun sem lætur eins og bjánar á Alþingi.  Ríkisstjórnin er með 100 daga áætlun yfir þau mál sem eiga að fá afgreiðslu á þessu þingi en hægt gengur á þann lista, vegna umræðna um allt sem skiptir engu máli.  Þegar allt þrýtur er farið í að ræða um fundarstjórn forseta og forseti þingsins djöflast á bjöllunni svo allt húsið titrar.  Það varð mikil nýliðun í hópi þingmanna eftir síðustu kosningar og ömurlegt er á að hlusta þegar forseti þarf stöðugt að áminna nýju þingmennina um að nota viðeigandi orð í ávörpum sínum á þinginu.  Eru þingmenn ekki betur gefnir en svo að þeir geti ekki lært einföldustu reglur sem gilda á þinginu.  Ég ætla að vona að þeir kunni flestir stafrófið og geti talið upp að 100 skammarlaust.

Er nokkuð skrýtið þótt fólk almennt beri ekki mikla virðinu eða traust til Alþingis.


Kirkjuráð

Ekki var nú auðvelt að fá kirkjunnar menn til að biðjast fyrirgefningar á þeirri kynferðislegu áreytti sem Sigrún Pálína mátti þola af hálfu síns sóknarprests og varð að flýja land vegna þessa máls.  Það var þáttur Jóns Ársæls Þórðarsonar, sem upplýsti um þetta mál og í viðtölum Jóns við Pálínu kom skýrt fram að kirkjunnar menn reyndu allt sem þeir gátu að þagga þetta mál niður.  Þannig að þessi afsökunarbeiðni kirkjuráðs hefur verið nánast dreginn út úr þeim með töngum.  Jón Ársæll á heiður skilið fyrir sinn þátt í þessu máli og á sama hátt á Kirkjuráð að skammast sín fyrir þátt kirkjunnar.
mbl.is Kirkjuráð biðst afsökunar á brotum presta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattahækkanir

130 þúsund á hverja fjölskyldu í landinu í ár og 270 þúsund á því næsta.  Það er fallegur boðskapur sem þessi andskotans ríkisstjórn er að færa okkur þessa daganna.  Ég er hræddur um að þetta sé bara byrjunin á ósköpunum sem eiga eftir að dynja á Íslendingum á komandi mánuðum og árum.  Þessi ríkisstjórn er handónýt til flestra verka og virðist lítið þekkja hugtakið "HAGRÆÐING" heldur á allan vanda að leysa með skattahækkunum á ríka sem fátæka.  Engum skal hlíft til að þóknast Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum, sem hefur framið hvert skemmdarverkið eftir annað í þeim ríkjum sem hann þykist vera að hjálpa.

Ég sem er nú bara öryrki með meðalgreind treysti mér alveg til að hagræða í ríkisrekstrinum um 20 milljarða eða meira á innan við einum mánuði ef ég fengi til þess ótakmörkuð völd.  Staðreyndin er sú að ríkisstjórnin nennir ekki að hagræða og grípur því til þess sem auðveldast er, það er að hækka skatta.


mbl.is 130 þúsund á fjölskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaus vitlaust

Andskotinn sjálfur, nú er ég að uppgötvað að ég kaus vitlaust í síðustu kosningum.  Ég trúði þessum helvítis bjánum að þeir myndu standa við sín stóru orð.  En nú eru þau á fullri ferð að binda Ísland á skuldaklafa um ókomna tíð með þessari Icesave-ábyrgð og leggja allt Ísland að veði.  Ég var svo sem búinn að sætta mig við að gera samninga um þessa reikninga en loksins þegar þeir líta dagsins ljós skilur maður ekki að ekki hafi verið hægt að ná betri samningum fyrir Ísland.  Voru þeir í þessari samninganefnd svona hræddir við Breta og Hollendinga eða voru þeir blindfullir.  Það þýðir lítið að segja að ýmis ákvæði í þessum samningi, eins og vextir ofl. séu algengir í lánasamningum milli ríkja.  Það er kannski þannig í frjálsum samningum en þetta eru nauðasamningar og þá hefði verið sanngjarnt að áhættan skiptist jafnt milli aðila samningsins og lánin hefðu átt að vera vaxtalaus eins og það fé var sem Bretar lokuðu inn í Englandsbanka.  Við vorum í góðri samningsstöðu því að ef við neituðum að borga var hætta á að hið stórgallaða regluverk ESB um fjármálastofnanir yrði til þess að bankakerfið innan ESB hryndi eins og spilaborg.

Við áttum að neita að borga og tilkynna bæði Bretum og Hollendingum að það eina sem þeir fengju væri að þeir mættu hirða Landsbankann og allar hans eignir sem þeir gætu fundið hvar sem væri í heiminum og gætu einnig sótt allt það fé sem skotið var undan fyrir fall bankanna og þegar búið væri að greiða alla Icesave-reikninganna ættu þeir að skila okkur afganginum ef einhver væri.  Einnig ættu Bretar að greiða okkur bætur vegna þess skaða sem þeir ollu okkur með setningu hryðjuverkalaganna á sínum tíma og varð til þess að Kaupþing féll.

Nú er verið að ræða á Alþingi um aukna skatta og niðurskurð til að minnka fjárlagahallann.  Það hefur stöðugt verið talað um að þeim yrði hlíft sem minnst hafa.  En nú kemur fram að ein af þeim breytingum sem á að framkvæma er lækkun á tekjumörkum lífeyris- og örorkuþega.  Ég er ansi hræddur um að eitthvað hefði heyrst frá heilagri Jóhönnu ef einhverjir aðrir hefðu verið að ráðast svona á kjör aldraðra og öryrkja.  Er þessu fólki ekkert heilagt, hvað ætli þessi skerðing á kjörum aldraðra og öryrkja skili sér síðan í tekjum til ríkissjóðs.  Það skilar nákvæmlega engu því allir í þessum hópi sem voru farnir að vinna munu hætta því um leið og þetta kemur til framkvæmda.  Jóhanna Sigurðardóttir sagði á Alþingi fyrir stuttu að á tímum góðæris hefði velferðarkerfið verið látið drabbast niður og er það alveg rétt.  En núna ætlar hennar ríkisstjórn að ráðast á þetta kerfi sem ekki var burðugt fyrir ef marka má orð Jóhönnu.  Hvað liggur svona mikið á að rétta af þennan fjárlagahalla.  Er ekki allt í lagi að reka ríkissjóð með halla á meðan við erum að vinna okkur út úr kreppunni.  Þetta gera Bandaríkin ár eftir ár að reka sinn ríkissjóð með miklum halla, ef Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn er með þá kröfu um að hér sé enginn halli á ríkissjóði, þá eigum við bara að afþakka hans aðstoð og skila þeim peningum sem hann hefur látið okkur hafa, sem mér skilst að ekki sé farið að nota ennþá.

Ég var að lesa í Víkurfréttum í morgun að sést hefði til fólks í Reykjanesbæ við að gramsa í ruslagámum, við hlið matvöruverslunar.  En í þessa ruslagáma er kastað matvælum sem komin eru fram yfir síðasta söludag.  Trúir því nokkur að fólkið geri þetta vegna þess að það sé svo gaman, nei ástæðan er einfaldlega að þetta fólk á ekki lengur peninga fyrir mat.  Ég hef séð slíka hluti út í New York, en aldrei hér á Íslandi.

Þetta er ríkisstjórn eymdar og örbirgðar, sem ekkert veit eða ekkert getur gert af viti.  Hvar er hin margumtalaða skjaldborg heimilanna sem alltaf er verið að tala um?  Var hún utan um heimili mannsins, sem braut niður einbýlishús sitt á Álftanesi og gróf svo bílinn á eftir?

Það skal tekið fram að ég kaus Samfylkinguna síðast og gekk í þann flokk og nú skammast ég mín mikið fyrir að hafa gert það.


Kjalarnes

Í mörg ár hafa íbúar á Kjalarnesi, sem í dag er hluti af Reykjavík verið að kvarta undan miklum hraðakstri þar sem þjóðvegur 1 liggur í gegnum hverfið og viljað fá undirgöng undir veginn.  Því þarna þurfa mörg grunnskólabörn að fara yfir veginn með tilheyrandi slysahættu.  Í svara á Alþingi fyrir stuttu sagði núverandi samgöngumálaráðherra, Kristján L. Möller að til  stæði að setja upp girðingar við veginn en undirgöng gætu ekki komið fyrr en nýtt vegastæði hefði verið ákveðið á þessum slóðum.

Þetta er alveg furðuleg afstaða hjá ráðherranum, þótt komi girðingar verða börn og aðrir gangandi vegfarendur samt sem áður að fara þarna yfir veginn.  Undirgöng þurfa ekki að kosta mikla peninga, því hægt væri að setja þarna stórt bogaræsi og steypa í botn þess til að auðvelda gang um þessi undirgöng.  Þegar síðan verður valið nýtt vegarstæði þá má einfaldlega flytja þessi undirgöng í þann veg.  Þessi kostnaður hleypur ekki á milljónum heldur nokkur hundruð þúsundum og vilja þess sem ræður. Hvað sem öllum kostnaði líður þá skiptir hann engu máli ef slíkt verður til að bjarga þó ekki væri nema einu mannslífi.


Táknræn aðgerð

Mikið finnst mér það flott og táknræn aðgerð, hjá manninum sem braut niður einbýlishús sitt og gróf bílinn sinn á Álftanesi.  Ríkisstjórnin gerir ekkert í skuldavanda heimilanna, hennar vernd nær ekki yfir þá sem skulda.  Heldur verndar hún vandlega lánadrottna og gætir þess að þeir tapi ekki krónu á öllu hruninu.  Í þessu tilfelli á Álftanesi var Frjálsi Fjárfestingabankinn búinn að eignast húsið á uppboði, þrátt fyrir að ríkisstjórnin fullyrði að hún sé búin að gera ráðstafanir til þess að engin uppboð fari fram á íbúðarhúsnæði fyrir 1. október 2009.  En auðvitað þarf fólk að leita eftir slíkum fresti og aumingja maðurinn var búinn að ræða við banka um sín vandræði með afborganir af sínum lánum.  En fékk þau svör að þar væri enginn sem hefði tíma til að sinna hans málum og þess vegna fór húsið á uppboð.

Hefði nú ekki verið einfaldara hjá ríkisstjórninni að tilkynna öllum sýslumönnum landsins að ekki mætti bjóða upp íbúðarhús fyrir 1. október 2009.  Nei það var ekki gert heldur valin þessi flókna leið að láta hvern íbúðareiganda sjá um sín mál sjálfa.  Þar með var það algerlega háð duttlungum starfsmanna lánastofnanna komið, hvort íbúðarhúsnæði væri boðið upp eða ekki.

Með þessari aðgerð er maðurinn að senda stjórnvöldum mjög skýr skilaboð hvernig komið er fyrir hjá fjölda íbúðareigenda, hvað skuldir varðar.


Spakmæli dagsins

Frestaðu því ekki til morguns,

sem þú getur frestað lengur.

(Sverrir Stormsker)


Morð

Þetta teljast varla stór tíðindi í landi eins og Sómalíu, þótt einn ráherra og sendiherra séu drepnir í sprengjuárás.
mbl.is Ráðherra ráðinn af dögum í Sómalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband