Bloggfærslur mánaðarins, september 2009

Efnahagsbati

Þýskur efnahagur mun ekki jafna sig á yfirstandandi efnahagslægð fyrr en í fyrsta lagi eftir fjögur ár. Þetta er mat yfirmanns evrópska seðlabankans.

Ef Þýskaland nær ekki efnahagsbata fyrr en eftir 4 ár.  Hvað má þá segja um Ísland verða nokkrir áratugir í efnahagsbatann hér á landi.


mbl.is Fjögur ár í efnahagsbata
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brjóstagjafavika

Alþjóðlega brjóstagjafarvikan er haldin dagana 21.-28. september á Íslandi. Vikan hefur verið haldin hátíðleg víða um heim undanfarin átján ár og hver vika haft sitt þema. Þemað í ár er brjóstagjöf fyrstu vikuna í lífi barnsins.

Ekki ætla ég að taka þátt í þessu, enda aldrei haft barn á brjósti.


mbl.is Alþjóðleg brjóstagjafarvika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

G20

Anders Borg, fjármálaráðherra Svíþjóðar, segir litlar líkur á að Norðurlöndin fái sameiginlegan fulltrúa á fundum svonefndra G20 ríkja. Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, hefur lýst slíkum hugmyndum og rætt málið við norræna starfsbræður sína.

Þetta er raunsær maður, sem veit sem er að Norðurlöndin fá ALDREI fulltrúa á fundi G20. sem saman stendur af 19 stærstu hagkerfum heims og ESB.


mbl.is Borg hefur efasemdir um G20 aðild Norðurlanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímamót

Tímamót urðu í sögu hvalveiða á Íslandi fyrir helgina. Þá kom á land í hvalstöðinni í Hvalfirði 15. þúsundasti hvalurinn sem veiðst hefur á skipum Hvals hf. Fyrirtækið var stofnað árið 1947 en fyrsti hvalurinn kom á land 1948.

Það er eðlilegt að við nýtum hvalinn og skjótum sem mest af honum.  En kvótinn fyrir þetta ár er aðeins 150 dýr, en mætti vera 1.500 dýr á þess að ganga á stofninn.  Það hefur alltaf verið mikill hagnaður af hvalveiðum og vinnslu, sem sést best á því að Hvalur hf. stóð af sér 20 ára veiðibann og gat hafið hvalveiðar aftur með stuttum fyrirvara á nokkurrar aðstoðar.  Þessar veiðar skapa mörg hundruð störf ef allt er talið og skila miklum tekjum í þjóðarbúið.


mbl.is 15. þúsundasti hvalurinn í sögu Hvals hf.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fasteignamarkaðurinn

Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala, telur að umtalsverð fjölgun þinglýstra kaupsamninga um fasteignir í liðinni viku miðað við það sem af er ári sé merki um að fasteignamarkaðurinn sé að hefja sig upp úr þeirri lægð sem hann hefur verið í undanfarið ár.

Ekki er nú um neitt hástökk að ræða, þótt fasteignasamningum hafi fjölgað úr 34 í 57 á viku að meðaltali.  Það sem vantar hér á landi nú er leigumarkaður fyrir íbúðir.  Því mjög fáir þora að taka þá áhættu að kaupa íbúðir fyrr en eðlilegt ástand er orðið í efnahagsmálum Íslands.


mbl.is Fasteignamarkaðurinn loksins að taka við sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjármálafrumvarp

Fjárlagafrumvarp sænsku ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2010 miðar að því að fjölga störfum í landinu og almennum stuðningi við efnahagslífið. Markmiðið er að stuðla að efnahagsbata ári fyrir næstu kosningar í landinu.

Þetta eiga Íslendingar að gera líka með sitt fjárlagafrumvarp, sem brátt verður lagt fram.


mbl.is Fjárlagafrumvarp gegn atvinnuleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haustflensan

Von er á bóluefni gegn hinum venjubundnu haustflensum til landsins í byrjun næsta mánaðar og ættu bólusetningar að geta hafist fljótlega upp úr því.

Það er svo sem gott að bólusetja þá sem eru viðkvæmir fyrir veikindum.  En að ætla að bólusetja alla landsmenn er rugl.  Því oft verður fólk veikara af bólusetningunni en sjálfri flensunni.


mbl.is Brátt bólusett gegn haustflensu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

G20

Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, segir að Norðurlöndin ættu að eiga fulltrúa á leiðtogafundum svonefndra G20 ríkja. Um er að ræða 19 stærstu hagkerfi heims auk Evrópusambandsins. Leiðtogafundur G20 verður haldinn í vikunni í Pittsburg í Bandaríkjunum. 

Hvað erindi á Ísland, eða önnur Norðurlönd á þennan fund.?


mbl.is Norðurlöndin fái fulltrúa á fundum G20
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spakmæli dagsins

Sálarskip mitt fer hallt á hlið

hrekur til skaðsemdanna

af því það gengur illa við

andviðri freistinganna.

(Bólu-Hjálmar)


Nýr formaður

Snærós Sindradóttir var kjörin formaður Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu á aðalfundi félagsins í gær. Fráfarandi formaður er Brynja Halldórsdóttir sem gegnt hefur embættinu í tvö ár.

Ég óska þessari ungu konu til hamingju með nýja embættið.  En getur nokkur frætt mig um það hvort til sé einhver unghreyfing hjá Hreyfingunni (Áður Borgaraflokkur).?


mbl.is Nýr formaður ungra VG í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband