22.7.2008 | 22:36
Amfetamín
Rúmlega 60 grömm af amfetamíni fundust við húsleit í Háaleitishverfi í gærkvöld. Karl á fimmtugsaldri var handtekinn vegna rannsóknar málsins en sá hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði.
Stórkostlegur árangur hjá lögreglunni heil 60 grömm tekinn. Nú verður alvarlegur skortur á markaðinum. Það væri fróðlegt að vita hvað þessi aðgerð kostaði því það var fenginn dómsúrskurður til þessarar leitar. Til hamingju með árangurinn.
![]() |
Fundu 60 grömm af amfetamíni við húsleit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.7.2008 | 17:43
Dulbúinn læknir
Radovan Karadzic, sem handtekinn var í Serbíu í gær, hefur í nokkur ár lagt stund á óhefðbundnar lækningar á læknastofu í nýju úthverfi Belgrad og hann hefur einnig skrifað reglulega greinar um það efni í serbneskt heilsutímarit undir nafninu Dragan Dabic.
Hann var þó að reyna karlgreyið að gera eitthvað gott fyrir fólk, en nú verður hann dreginn fyrir alþjóða glæpadómstólinn og að öllum líkindum dæmdur til dauða og síðan tekinn af lífi. Hvort heimurinn verði betri á eftir tel ég hæpið. Hvað með George W. Bush, hvað ætli sá maður hafi mörg mannslíf saklausra borgara í Íran og Afganistan, á samviskunni?
![]() |
Karadic skrifaði um heilsu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.7.2008 | 11:56
Mannréttindi
Herstjórn Búrma hefur látið í veðri vaka að hún muni setja sig upp á móti öllum tilraunum til að gefa mannréttindastofnun Suð austur Asíusamtakanna, ASEAN, vald til eftirlits eða rannsókna á svæðinu.
Jæja þá hefur ríkisstjórn Íslands eignast góðan bandamann í að brjóta mannréttindi.
![]() |
Búrma andvígt mannréttindaeftirliti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.7.2008 | 11:51
Framkvæmdir
Vegagerðin varar við miklu hvassviðri á Hellisheiði eystri á Austurlandi og ekki er mælt með að fólk ferðist þar um með aftanívagna á meðan veðrið gengur yfir. Vinna stendur yfir á Reykjanesbraut vegna mislægra gatnamóta. Umferð í Stapahverfi á Suðurnesjum fer yfir nýja brú.
Það er fagnaðarefni þegar unnið er að vegaframkvæmdum víða um land. En mér finnst margir ökumenn vera mjög tillitslausir þar sem framkvæmdir eru í gangi. Ég hef séð hér á Reykjanesbrautinni að þar sem menn eru við vinnu og hámarkshraðinn settur í 30 km/klst. Þá sér maður suma aka þarna 70-80 km/klst. og þar með eru þeir sem eru að vinna við verkið eru í stórhættu og mesta mildi að ekki hefur orðið stórslys þarna.
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.7.2008 | 11:42
Alþingi
Það er skuggalegt að horfa upp á þetta, þeir eru að saga niður öll elstu trén í miðbænum. Ég get ekki séð að þau séu fyrir neinum, segir Steingrímur Björnsson um framkvæmdir á horni Kirkjustrætis og Vonarstrætis.
Þetta finnst mér vera hneyksli að saga niður ein elstu tré í miðborg Reykjavíkur. Ef Alþingi þarf nauðsynlega að byggja nýtt hús verður að taka tillit til umhverfisins og byggja í samræmi við það.
![]() |
Trén falla fyrir Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.7.2008 | 11:34
Ekið inn í veitingarhús
Maður nokkur í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum er ekki feigur. Hann sat í rólegheitum í sínu fasta gluggasæti í uppáhalds grillsjoppunni sinni þegar bíll kom skyndilega á fullri ferð gegnum vegginn og lenti á manninum.
Hann hefur verið heppinn þessi náungi að sleppa lifandi frá þessu, ætli ökumaðurinn hafi verið íslenskur?
![]() |
Bíll kom gegnum vegginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.7.2008 | 11:19
Bankar ganga að veðum
Nú hefur Glitnir hirt bestu molana úr fyrirtækinu Mest og stofnað Steypustöðina Mest, sem fyrirhugað er að selja síðan. Þetta er örugglega ekki fyrsta aðgerð gagnvart skuldugum fyrirtækjum og ætli það verði ekki næst að fjármálafyrirtæki fari að taka bíla af fólki og síðan íbúðirnar. Því er spáð að með haustinu verði fjöldagjaldþrot fyrirtækja og einstaklinga með tilheyrandi atvinnuleysi.
Þegar fyrst var rætt um sameiningu SPRON og Kaupþings var fullyrt að enginn myndi missa sína vinnu en nú þegar sameiningin hefur verið samþykkt er tilkynnt að segja þurfi upp um 250 manns og stutt er síðan Glitnir sagði upp hóp starfsmanna. Mörg fyrirtæki eru mjög skuldsett vegna eigendaskipta á meðan svokölluð skuldsett yfirtaka var vinsæl aðferð til að eignast fyrirtæki með aðstoð bankanna.
Það er komin upp svolítið sérstakt umhverfi hjá mörgum fyrirtækjum, fyrir stuttu lánuðu bankarnir í gríð og erg nánast fyrir hverju sem var. En núna er alert útlánastopp og fyrirtækin fá ekki eðlilega bankaþjónustu. Það vita allir sem eitthvað hafa komið nálægt rekstri fyrirtækja að þau þurfa alltaf ákveðið rekstrarfé til að allt gangi eðlilega fyrir sig og svona útlánastopp þýðir bara eitt, sem er samdráttur á öllum sviðum og fækkun á starfsfólki.
Að verða atvinnulaus er eitt það versta sem getur komið fyrir heilbrigt fólk. Það dettur úr sambandi við hið daglega líf og margir einangrast á sínum heimilum, auk þess sem fjárhagurinn fer í rúst. Margir íslendingar hafa upplifað þetta. Hinsvegar er búinn að alast upp heil kynslóð sem aldrei hefur þurft að hafa áhyggjur af því að missa vinnu og fá hvergi vinnu. Þetta fólk hefur ekki lagt neitt fyrir til að mæta áföllum og verið óhrætt við að taka lán fyrir öllu sem því hefur langað í. Bankarnir bera þarna líka talsverða ábyrgð því öllum var lánað burt séð frá því hvort viðkomandi gæti með góðu móti greitt þetta til baka. Greiðslugeta fólks hefur lítið verið skoðuð, bara horft á hverjir væru ábyrgðarmenn. Ég skil ekki tilhvers er verið að halda opnum öllum þessum bönkum ef þeir geta ekki sinnt sínu eðlilega hlutverki og maðurinn sem öllu átti að bjarga leist ekki betur á en svo að hann flúði til útlanda í frí.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.7.2008 kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.7.2008 | 10:44
Skrýtinn byrjun hjá ráðgjafanum
Það er talsvert skrýtinn byrjun hjá hinum nýráðna efnahagsráðgjafa Geirs H. Haarde, honum Tryggva Þór Herbertssyni. Hann rétt kom við í forsætisráðuneytinu til að komast á launaskrá og fyrsta verkefnið var að fara í frí erlendis á fullum launum. Til hvers var verið að ráð manninn ef hann gat ekki byrjað að vinna fyrr en eftir ákveðið frí. Þannig að ekkert gagn verður af þessum manni á næstunni. Ef þetta er sú hagfræði sem bjarga á efnahag þjóðarinnar, þá er ekki von á góðu með framhaldið. Þarna er bara verið að borga manninum laun fyrir ekki neitt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.7.2008 | 08:50
Siggi Ben
Þegar ég var að alast upp á Bíldudal, bjó þar maður að nafni Sigurður Benjamínsson og alltaf kallaður Siggi Ben og þótti talsvert gott að fá sér í staupinu. Kona hans Guðrún Sölvadóttir var kölluð Gunna Sölva. Siggi Ben var húsasmíðameistari og byggði mikið af húsum á Bíldudal um miðja síðustu öld en seinni árinn vann hann á verkstæði sínu og smíðaði líkkistur. Gunna Sölva þurfti að tala mikið og kunni alltaf nýjustu kjaftasögur og allar hennar frásagnir voru talsvert ýktar.
Þegar Siggi Ben varð 75 ára ákvað Gunna að halda mikla veislu og fékk margar af sínum vinkonum til að hjálpa sér að baka bæði brauð og kökur. Gunna Sölva var vön að heimsækja nágrannakonu sína snemma morguns og færa henni nýjustu fréttir.
Daginn eftir afmælið mætti Gunna ekki í morgunkaffið hjá nágrannakonunni en birtist um hádegið og var þá mikið niðri fyrir. Hóf hún nú að segja frá afmælisveislunni og sagðist aldrei hafa átt von á slíkum fjölda. Útihurðin var eins og blævangur og féll aldrei að stöfum allan daginn. Hún sagðist aldrei hafa lent í öðru eins og kökurnar og brauðið hvarf stöðugt ofan í gestina uns allt var orðið tómt, þrátt fyrir að hún hefði verið búinn að úrbeina tvö læri og sjóða til að eiga til vara sem álegg. En það sem bjargaði málunum var að ein vinkona hennar átti til nokkur brauð og fjögur úrbeinuð læri en það var allt borðað líka. Ekki hafði hún tölu á öllum gestafjöldanum því atið var svo mikið. Hún sagðist bara ætla að vona að hann Siggi sinn yrði dáinn áður en kæmi að næsta stóraafmæli, en þegar síðasti gesturinn fór og lokaði á eftir sér var ekki hægt að opna útidyrnar, því að í öllum látunum höfðu lamirnar á hurðinni hitnað svo mikið að þegar lokað var síðast bráðnuðu þær fastar. Þess vegna hefðu þau ekki komist út fyrr en um hádegið. Ég hefði aldrei trúað sagði Gunna hvað hann Sigurður minn er vinsæll og samt er maðurinn alltaf fullur og síðan dæsti hún yfir öllum þessum ósköpum.
Þegar Siggi Ben var að smíða líkkisturnar þá sópaði hann alltaf öllu saginu í eitt hornið og þar sem ekkert klósett var á verkstæðinu pissaði hann alltaf í hauginn, sem hann notaði síðan til að brenna í ofninum sem þar var til að hafa hita og þegar hann kveikti upp og fór að rjúka upp um skorsteininn þá barst hin hræðilegasta lykt um nágrennið. Eitt sinn kom Siggi Ben heim með vínflösku en Gunna harðbannaði að honum að snerti á henni inn í húsinu svo hann fór út aftur með flöskuna en kom ekki heim aftur og Gunna var viss um að eitthvað hlyti að hafa komið fyrir manninn og fékk hóp af mönnum til að leita en það var eins og jörðin hefði gleymt hann. Hann fannst hvergi og engin hafði séð hann.
Þá datt leitarmönnum í hug að athuga á verkstæðinu en þar sást hann ekki heldur aðeins nokkrar líkkistur í röð. Þá dettur einum í að opna kisturnar og viti menn í einni lá Siggi Ben steinsofandi og tóm vínflaska við hlið han og þegar hann var spurðu hvað hann væri að gera þarna svaraði Siggi Ben;
"Nú veit ég hvernig þeim líður sem eru jarðaðir í mínum líkkistum og fara til himna".
Spaugilegt | Breytt 30.7.2008 kl. 05:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.7.2008 | 06:41
Heimsóknir
Bloggfærslur 22. júlí 2008
Færsluflokkar
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Arnfirðingur
- Bíldudalur
- Bolungarvík
- Bæjarins besta á Ísafirði
- Guðrún Rebekka Jakobsdóttir Edinborg
- Falið vald
- Flateyri
- Frjálslyndi flokkurinn
- Ísafjörður
- Júdit Krista Jakobsdóttir, Bíldudal
- Kristinn Ásgeirsson, Danmörku
- Kristinn H. Gunnarsson
- KVÓTASVINDLIÐ MITT
- Mats Wibe Lund
- Óvinir Ísland
- Skipamyndir Þorgeir Baldursson ljósmyndari
- Suðureyri
- Strandabyggð
- Súðavík
- Tálknafjörður
- Tíðis-fréttavefur
- Vesturbyggð
- VÍSIR.IS
SKIPAMYNDIR
- Fiskistofa Ýmsar upplýsingar
- Gísli Reyisson Aflafréttir
- Hafþór Hreiðarsson Skipamyndir
- Ragnar í Grindavík Skipamyndir
- Skip.is Ýmsar upplýsingar
- Þorgeir Baldursson SKIPAMYNDIR
- http://
Bloggvinir
-
Adda bloggar
-
Ágúst H Bjarnason
-
Albertína Friðbjörg
-
Alma Jenny Guðmundsdóttir
-
Anna
-
Anna Guðný
-
Anna Heiða Stefánsdóttir
-
Anna Pálsdóttir! :)
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Apamaðurinn
-
Arinbjörn Kúld
-
Ásgerður Jóna Flosadóttir
-
Arnlaugur Helgason
-
Arnþór Helgason
-
Ársæll Níelsson
-
Ásdís Rán
-
Ásgeir Jóhann Bragason
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásgeir Sveinsson
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Baldur Smári Einarsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Birna M
-
Bjarney Bjarnadóttir
-
Bjarni Baukur
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bjarni Kjartansson
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Bjarki Þór Guðmundsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Björgvin S. Ármannsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Björn Leví Gunnarsson
-
Björn Finnbogason
-
Bragi Sigurður Guðmundsson
-
Bragi Sigurðsson
-
Hommalega Kvennagullið
-
Bwahahaha...
-
Davíð Pálsson
-
Davíð S. Sigurðsson
-
Didda
-
Dunni
-
Edda Agnarsdóttir
-
Edda Sveinsdóttir
-
Eggert Þór Aðalsteinsson
-
Egill Jón Kristjánsson
-
egvania
-
Einar B Bragason
-
Einar Kristinn Guðfinnsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eiríkur Sjóberg
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Emil Örn Kristjánsson
-
J. Einar Valur Bjarnason Maack
-
Elín Margrét Guðmundsdóttir
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
-
FF
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Faktor
-
Fannar frá Rifi
-
Finnur Bárðarson
-
Fjarki
-
Friðrik Höskuldsson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Georg Birgisson
-
Gestur Guðjónsson
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnar Þór Ólafsson
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðjón Ó.
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Guðmundur Zebitz
-
Guðni Gíslason
-
gudni.is
-
Guðrún Hafdís Bjarnadóttir
-
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðrún Helgadóttir
-
Guðrún S Hilmisdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Sigurðsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Haffi
-
Hafrún Kristjánsdóttir
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
-
Halla Rut
-
Halldór Sigurðsson
-
Halldór Örn Egilson
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Heiður Helgadóttir
-
Helga Dóra
-
Helga Sigrún Harðardóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Himmalingur
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
hilmar jónsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjalti Sigurðarson
-
Hjartagullin mín
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Hlekkur
-
Huld S. Ringsted
-
Hólmdís Hjartardóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
hreinsamviska
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Hörður Halldórsson
-
Hörður Hilmarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Kristinsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Jens Sigurjónsson
-
Jóhannes Jónsson
-
Jóhanna Fríða Dalkvist
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jón Baldur Lorange
-
Jón Halldór Eiríksson
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Finnbogason
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Kama Sutra
-
Karl Tómasson
-
Karl V. Matthíasson
-
Katrín
-
Kjarri thaiiceland
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristinn Sigurjónsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Kristján Pétursson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Lilja Skaftadóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Lýður Árnason
-
Maddý
-
Magnús Þór Friðriksson
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Marinó Hafnfjörð Þórisson
-
Magnús H Traustason
-
Marinó Már Marinósson
-
Marzellíus Sveinbjörnsson
-
Morgunblaðið
-
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Natan Kolbeinsson
-
Níels A. Ársælsson.
-
Ólafía Margrét Guðmundsdóttir
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Tryggvason Þorsteinsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólafur Tryggvason
-
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
-
Ólöf de Bont
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Paul Nikolov
-
Páll Höskuldsson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
percy B. Stefánsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Borgþórs
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Ragnhildur Jónsdóttir
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Regína R
-
Ruth
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Rögnvaldur Þór Óskarsson
-
Samtök Fullveldissinna
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigríður Hafdís Þórðardóttir
-
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir
-
Sigurður Haukur Gíslason
-
Sigurður Jón Hreinsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Snorri Bergz
-
Sigurjón Sveinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinþór Ásgeirsson
-
Svartagall
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sólveig Aradóttir
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
TARA
-
Tiger
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valbjörn Júlíus Þorláksson
-
Valdimar Leó Friðriksson
-
Valan
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Viggó H. Viggósson
-
Vilborg Auðuns
-
Þórbergur Torfason
-
ÞJÓÐARSÁLIN
-
Þórhallur Heimisson
-
Þórhallur Pálsson
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Þórir Kjartansson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Jóhannesson
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Jón V. Þorsteinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 3
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 802126
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 24.1.2010 Jakob Kristinsson er látinn.
- 21.1.2010 Spakmæli dagsins
- 21.1.2010 Obama
- 21.1.2010 Icesave
- 21.1.2010 Mótmælendur ákærðir
- 21.1.2010 Norwegian
- 21.1.2010 Kaninn og RÚV
- 21.1.2010 Látinn laus
- 21.1.2010 Kína
- 21.1.2010 Hvað vill félagsmálaráðherra?
184 dagar til jóla
Nýjustu færslurnar
- ERU "YFIRSKESSURNAR" Á ÍSLANDI KOMNAR Í "KASTLJÓSIÐ" HJÁ BANDARÍKJAMÖNNUM???
- Eru engin mörk á áróðri Hamas deildar Morgunblaðsins??
- Kjarnorkuáætlun Írana hefur líklega beðið stórtjón, fremur en eyðileggingu -- meginbyrgið undir Fordow fjalli, sennilegast enn heilt - skilvindurnar gætu hafa skemmst af titringnum af stóru sprengjunum Ameríkanar vörpuðu!
- Tíska : Hliðartaska fyrir karlmenn frá PRADA
- Er ekki allt í lagi eða hvað?
- "Við erum hér til að taka yfir" Og þá trúi ég þér
- Álitsgafi Vísis út í móa?
- Hótað lífsláti
- Eignaupptaka ríkisins er skær sósíalismi
- Heimsfriður í húfi