Misskilningur

Ólöf Nordal alþingismaður og nefndarmaður í umhverfisnefnd segir að bókun stjórnar Eyþings um afstöðu umhverfisnefndar vegna staðsetningar Byggingarstofnunar utan höfuðborgarsvæðisins byggi á misskilningi.

Um hvað er konan að tala þessi bókun var um aðgerðarleysi stjórnvalda í því að flytja störf út á land.og er það alveg hárrétt.  En Byggðastofnun var á sínum tíma flutt á Sauðárkrók og ég sé ekki að hún væri neitt betri á Akureyri.  Þetta er bein afleiðing af þeirri stefnu stjórnvalda að byggja upp stóra kjarna í hverjum landsfjórðungi og nú vilja stærstu byggðalögin í hverjum fjórðungi gleypa allt frá minni stöðunum, sem þá veikjast enn þá meira.

Byggðastofnun á að vera áfram á Sauðárkróki.


mbl.is Telur bókun byggða á misskilningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bitruvirkjun

Ansi finnst mér Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík leggjast lágt til að halda núverandi meirihluta saman.  Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur var búin að samþykkja að hætta við Bitruvirkjun.  En svo kemur yfirlýsing frá stjórnarformanni Orkuveitunnar, Kjartani Magnússyni að þessi virkjunarkostur verði skoðaður síðar og sama segir Hjörleifur Kvaran forstjóri.  En þá lýsir Ólafur Magnússon því yfir að þessi virkjun hafi verið slegin út af borðinu.  Kjartan Magnússon fer þá skríðandi til Ólafs til að útskýra að hann hefði meint að þessi virkjun yrði kannski skoðuð einhvern tíman í framtíðinni og undir þetta tekur Hanna Birna Kristjánsdóttir.  Þá lýsir Ólafur borgarstjóri því yfir að þetta verði ekki skoðað á meðan málefnasamningur sem þessi meirihluti byggir á, sé í gildi og verði ekki um neina virkjun að ræða þarna á þessu kjörtímabili.  Því er kominn upp sú staða í borgarstjórn að einn maður með ekkert fylgi á bak við sig lætur Sjálfstæðisflokkinn bugta sig og beygja eftir sínu höfði.  Sjálfstæðismenn eru sem sagt í algerri gíslungu Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra og eru bara sáttir við sitt hlutskipti.  Ef þau samþykkja ekki allt sem Ólafur vill er meirihlutinn fallinn.

Karadzic

Radovan Karadzic eftir að hann var handtekinn um síðustu helgi.Sveta Vujacic Vujacic, lögmaður Radovan Karadzic fyrrum leiðtoga Bosníu Serba, segir hann ætla að leggja fram kæru gegn þeim sem hafi rænt Karadzic og vísar þar til handtöku hans um síðustu helgi.

Mér finnst nú óþarfi að verra að velta sér of mikið upp úr handtöku þessa manns.  Manngreyið hafði snúið til betra lífernis og var að hjálpa fólki.  Ég hefði haldið að best hefði verið að leyfa honum að vera í friði þar sem hann var.  Hann hefði ekki gert neitt meira af sér en búið er.  Hann á heldur ekki svo langt eftir ólifað orðin 69 ára.  En handtakan á eftir að kosta nokkur mannslíf.


mbl.is Svikara Karadzic leitað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beit hund

Það er oft sagt að það sé ekki fréttnæmt þegar hundur bíti menn en ef öðruvísi horfi við ef maður bítur hund. Þetta hefur nú sannast því brasilískur drengur er kominn í heimsfréttirnar eftir að hann beit vígahund í hálsinn og bjargaði sér þannig frá sárum eða bana. 

Flest getur nú orðið að heimsfréttum ef þetta er ein af stóru fréttum heimsins í dag.


mbl.is Drengur beit hund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöðumælasekt

 Maður nokkur, sem býr í Malmö í Svíþjóð, skuldar jafnvirði 58 milljóna króna í stöðumælasektir, að því er kemur fram í tölum frá sænsku yfirfógetaskrifstofunni.

Það munaði ekki um það og sá sem er næstur honum skuldar 46 milljónir.  Þannig að þessir tveir menn skulda yfir 100 milljónir íslenskar krónur í stöðumælasektir.  Ætli væri hægt að komast upp með svona lagað á Íslandi t.d. í Reykjavík.


mbl.is Skuldar 58 milljónir í stöðumælasektir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tollur

Fríhöfn í Leifsstöð. Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu, að reglugerð þar sem kveðið er á um hve mikið magn af varningi ferðamenn og farmenn mega taka með sér inn í landið án þess að greiða tolla, hafi ekki lagastoð.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ráðherrar gefa út reglugerð án heimildar í lögum.  Sú frægast er sennilega reglugerð um aflakvóta í síldveiðum sem Halldór Ásgrímsson gaf út án lagastoðar.  Ég veit ekki hvað veldur þessu en það er eins og ráðherrar telji sig ekki þurfa lagastoð við útgáfu reglugerða á þeim tíma sem Alþingi er ekki að störfum.  Einnnig virðist það vera að aukast að framkvæmdavaldið telji sig hafið yfir löggjafarvaldið.


mbl.is Reglugerð um „tollinn" hefur ekki lagastoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Paul Ramses

Katrín Theodórsdóttir, lögmaður, skilar inn kæru vegna...Svör við athugasemdum Útlendingastofnunar vegna máls Paul Ramses eru nú hjá Dómsmálaráðuneyti. Lögmaður Ramses vonast eftir skjótri málsmeðferð.

Það væri óskandi að hann fengi dvalarleyfi hér á landi og einnig konan hans svo þessi fjölskylda gæti sameinast á ný.


mbl.is Mál Ramses í höndum ráðuneytisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrýtinn náungi

1998 vantaði okkur feðga vélstjóra á bát okkar Sigurbjörgu Þorsteins BA-165 sem var 36 brl. og við auglýstum eftir manni,  Það var einn sem svaraði og réðum við hann og kom hann fljótlega vestur á Bíldudal.  Hann var með atvinnudkýrteini sem vélstjóri í lagi.  Við höfðum fengið herbergi hjá Færeyingi sem vann við beitningu hjá okkur.  Þegar maðurinn kom hittist þannig á að það hafði bilað hjá okkur sjódæla og komu varahlutirnir með sama flugi og þessi maður.  Hann byrjaði strax á viðgerð og tókst það vel og virtist kunna vel til verka.  En samt fannst okkur að hann væri eitthvað skrýtinn þegar við vorum að reyna að ræða við hann.  Þar sem bræla var á miðunum  en þokkalegt veður á Bíldudal skildi maðurinn ekkert í því að við færum ekki á sjó og spurði um það oft á dag.  Einnig spurði hann mig hvort ég gæti útvegað sér silunganet og þegar ég benti honum á að það væri enginn silungur nú um hávetur, þá sagðist hann ekki vera að hugsa um silung en hann hefði tekið eftir því að talsvert væri um æðarkollu í höfninni og hún safnaðist saman í horni við hafnargarðinn en þar var skjól .  Hann sagði ætla að veið æðarkollur þær væru svo góður matur.  Eftir nokkra daga þá fór Færeyingurinn að kvarta við okkur og sagði að  við yrðum að tala við manninn því hann gengi um gólf allar nætur og sagðist Færeyingurinn að hann væti farinn að óttast um líf sitt, því maðurinn væri snarklikkaður.  Hann gengi um gólf allar nætur og svæfi ekkert.

Eitt kvöldið hringdi Færeyingurinn og bað mig að koma og reyna að tala við manninn, sem ég gerði og þegar ég kom þá sat Færeyingurinn í eldhúsinu og við fórum inn í hans herbergi sem var á neðri hæðinni en herbergi vélstjórans var á efri hæð.  Eftir smá stund heyrðum við að maðurinn byrjaði að ganga um gólf með föstum og ákveðnum skrefum.  Ég fór þá upp til að tala við manninn en það var eins og hann sæi mig ekki heldur gekk fram og til baka og tautaði "Þeir skulu aldrei ná mér", ég stoppaði því manninn og spurði hvers vegna hann færi ekki að sofa og um hvað hann væri að tala.  Þá dró hann mig að glugganum í herbergi sínu og benti út og sagði ; "Þeir eru þarna" Ég sagðist ekki sjá neitt enda komið myrkur.  "Jú víst sagði maðurinn, ég er búinn að fylgjast með þeim í allan dag og nú eru þeir vopnaðir"  Þá áttaði ég mig á að maðurinn var geðveikur og spurði hvort ég ætti ekki að hringja á læknir fyrir hann þá fyrst varð hann snarvitlaus og réðist á mig og hrópaði;  "Svo þú ert þá í liðinu líka helvítið þitt."  Hann ætlaði að teygja sig í hníf sem lá á borði rétt hjá en mér tókst að hrista manninn af mér og gaf honum gott kjaftshögg svo hann vankaðist aðeins.  Síðan dró ég hann niður stigann og henti honum á sól í eldhúsinu og kallaði á Færeyinginn.  Við fórum að reyna að tala við manninn en ekkert gekk .  Hann heimtaði að fá bílfar uppá Dynjandisheiði og sagðist geta fengið far með einhverjum bíl sem væri að fara til Reykjavíkur.  Við sögðum honum að nú væri hávetur og allt í kafi í snjó og engin umferð.  "Þá labba ég bara á Ísafjörð,"sagði hann og þótt við bentum honum á að það væri blindbylur úti svo hann gæti ekki labbað eitt né neitt. 

Þá fór hann að klæða sig og eftir smá stund heyrðum við að útihurðinni var skellt aftur og sáum að maðurinn var kominn út á götu og gekk rösklega eftir götunni.  Þar sem ég kannaðist vel við föður mannsins sem bjó á Ísafirði hringdi ég þangað og þar varð fyrir svörum systir mannsins og þegar ég hafði lýst fyrir henni hvað væri að ske og ég væri hræddur um að hann yrði úti í þessu veðri.  Þá bað hún mig að gera allt sem hægt væri til að stoppa hann því hann hefði strokið af Geðdeild fyrir nokkrum dögum.  Ég hringdi í lögregluna á Patreksfirði og bað þá um aðstoð en fékk þau svör að þeir skiptu sér ekkert af manni sem hefði ekki gert neitt af sér þótt ég benti þeim á að maðurinn væri að fara að drepa sig.  Þá talaði ég við björgunarsveitina og bað um aðstoð þar og fékk þau svör að þeir leituðu að týndu fólki en þar sem maðurinn væri ekki týndur gerðu þeir ekkert.

Við fórum útí bíl og heim til sonar míns og kom hann með okkur og þegar við höfðum ekið um 6-7 kílómetra inn Arnarfjörðinn sáum við manninn og ég stoppaði við hlið hans og bað hann að koma inn í bílinn en hann svaraði engu bara gekk áfram allur orðinn gegn blautur af snjókomunni.  Við ákváðum að taka manninn með valdi inn i bílinn og keyrði ég aðeins lengra og við fórum allir út og brátt kom maðurinn og þegar hann sá okkur fór hann að hlaupa og við á eftir og sem betur fer hljóp hann eftir veginum og því auðvelt að sjá hann í ljósunum frá bílnum.  Því ef hann hefði hlaupið út af veginum og til fjalls hefðum við aldrei fundið hann.  Á leiðinni til baka mættum við lögreglunni en þá hafði fjölskylda mannsins hringt og beðið um að hann yrði handtekinn.  Ég átti von á að maðurinn yrði alveg brjálaður við það að sjá lögreglubílinn en það var ekki heldur byrjaði hann að hrópa á hjálp á meðan ég ræddi við lögregluna og öskraði að við ætluðum að drepa sig.  gekk því vel að fá manninn yfir í lögreglubílinn og daginn eftir ók lögreglan honum á flugvöllinn á Bíldudal og fór hann fljúgandi til Reykjavíkur og inn á Geðdeild aftur.  Ég hugsaði oft um þetta atvik og var fenginn að hann hefði aldrei farið með okkur á sjó.  Ef við hefðum týnt manninum þar sem við náðum honum hefðum við aldrei fundið hann og hann orðið úti um nóttina.  En þá hefði verið komin ástæða fyrir björgunarsveitina að aðstoða okkur.


Týndur hestur

Hestar á spretti í Bæjaralandi í Þýskalandi. Sæunn Oddsdóttir á Steinum í Stafholtstungum lánaði hest sinn, Baldur til hestaferðar fyrir um þremur árum en gekk erfiðlega að fá hann aftur. Nýlega komst Sæunn að því, að sá sem fékk hestinn lánaðan hafði selt hann til Þýskalands.

Þetta er hreinn og klár þjófnaður og konan hlýtur að kæra þann sem hún lánaði hestinn og fá hann bættan að svo miklu leiti sem það er hægt.  Því hestur er ekki bara hestur og  tilfinningar geta blandast þarna inní og þær verða ekki bættar með peningum.  Mér finnst að sá sem keypti hestinn í Þýskalandi eigi að skila honum því hann var að kaupa þýfi.


mbl.is Týndur hestur fannst í Þýskalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmæli

Allir mótmælendur á vegum samtakanna Saving Iceland eru nú farnir úr húsi Landsvirkjunar við Háaleitisbraut. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík voru um fjórtán mótmælendur í anddyri hússins þegar flest var og hlekkjuðu nokkrir þeirra sig saman.

Ég fer nú að verða mjög pirraður á þessu fólki sem kallar sig Saving Iceland.  Það á ekki að hleypa þessu liði inn í landið, bara snúa því við í Leifsstöð.  Eða hlekkja það allt saman við eitthvað upp á hálendinu.  Yfirvöld eru alltof lin við þetta fólk.


mbl.is Mótmælaaðgerðum lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 25. júlí 2008

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband