Andóf Sjálfstæðisflokksins

Undafarna daga hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið með málþóf á Alþingi til að hindra að frumvarpið um breytingu á stjórnarskránni verði afgreitt.  En það mikilvægasta í þeirri breytingu er að setja í stjórnarskránna að allar auðlyndir Íslands verði sameign þjóðarinnar.  Þeir halda sig vera að bjarga Sægreyfunum, en það er hinn mesti misskilningur því núna er mikil hætta á að erlendir aðilar eignist allan aflakvóta á Íslandsmiðum.  Því mikið af aflakvótanum er veðsettur erlendum bönkum og það kemur að því að þeir ganga að sínum veðum.  Ef þetta ákvæði fer í stjórnarskránna geta þeir gengið að sínum veðum, en þá fá þeir ekki eiga kvótann og verða að selja hann aftur til Íslendinga.  Þetta er eina vörnin sem við höfum til að missa ekki yfirráð yfir okkar fiskimiðum.  Nóg er nú vitleysan fyrir í þessu kvótakerfi.

Það tólst að lokum

Stefán Hilmarsson, aðstoðarforstjóri Baugs, og Ragnar H....Fari Baugur Group í gjaldþrot flytjast öll réttindi og skyldur félagsins til þrotabúsins. Því er ekki rétt að mati Skilanefndar Glitnis að halda því fram að Landsbankinn geti tapað sjö milljörðum úrskurði Héraðsdómur Reykjavíkur í dag að Baugur fari í gjaldþrotameðferð.

Mikið geta þeir Sjálfstæðismenn vera ánægðir núna þegar loksins tekst að gera Baug Group, gjaldþrota en það hafa þeir reynt í mörg ár.


mbl.is Gjaldþrot Baugs breytir engu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabankinn

Seðlabanki Íslands. Seðlabanki Íslands boðar til fundar með blaða- og fréttamönnum í dag kl. 14 í fundarsalnum Sölvhóli, Seðlabanka Íslands. Á fundinum fer fram kynning á efni skýrslu er varðar áhrif fjármálakreppu á efnahag heimila. Um bráðabirgðaniðurstöður er að ræða.

þAÐ ER ÞÓ EITTHVAÐ LÍFSMARK HJÁ BANKANUM EFTIR AÐ SÁ NORSKI TÓK VIÐ.


mbl.is Seðlabankinn boðar blaðamannafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dómur

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á sambýliskonu sína. Þá var maðurinn sviptur ökuréttindum í ár fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna.

Dæmigert ofbeldi þar sem fólk er orðið snarruglað af eiturlyfjum.  Þetta er nú bara skilorðsbundinn dómur svo maðurinn getur haldið áfram að berja sambýliskonuna sín.  Svo er líka spurning hvort þeirra átti upptökin að þessu.  Þótt ég vilji taka fram að karlmaður á  ALDREI  að berja konu.


mbl.is Réðist á sambýliskonu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt í lagi

Mynd 484228 Líffræðilegur fjölbreytileiki á í vök að verjast á Norðurlöndum, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skýrslu sem Norræna ráðherranefndin hefur látið gera. Samkvæmt henni hafa svæði með verðmætri náttúru minnkað á Norðurlöndum samhliða því að landbúnaður, samgöngukerfi og byggð breiða úr sér.

Er þetta ekki bara eðlileg þróun í hverju samfélagi og er örugglega ekki sérstaklega bundin við Norðurlönd.  Þetta hlýtur að vera svona um heim allan.  Ef aldrei má hreifa við neinu t.d. á Íslandi til að vernda náttúruna, verða þá ekki bara allir að flytja af landi brott svo náttúran fái að vera í friði.


mbl.is Líffræðilegur fjölbreytileiki minnkar á Norðurlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vill 5. sætið

Gunnar Þór Sigbjörnsson.Gunnar Þór Sigbjörnsson, þjónustustjóri Egilsstöðum, býður sig fram í 5. sæti á lista Framsóknarflokksins, í NA-kjördæmi. Maki hans er Helga Þórarinsdóttir, og eiga þau 2 börn. Hann er með gráðu í verslunarstjórnun frá Bifröst og próf í stjórnun frá Háskóla Íslands.

 Þetta er greinilega hófvær maður, að sækjast aðeins eftir 5. sæti hjá Framsókn í þessu kjördæmi.  Þar sem litlar líkur eru á að flokkurinn fái mann kjörinn í kosningum og ef svo yrði þá væri það aldrei nema einn.


mbl.is Vill 5. sæti í NA-kjördæmi fyrir Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olíusjóður

Olíuborpallur Statoil á Hvítabjörns-svæðinu í Norðursjó. Tap Lífeyrissjóðs norska ríkisins, sem yfirleitt er nefndur norski olíusjóðurinn, nam 633 milljörðum norskra króna, rúmum tíu þúsund milljörðum íslenskra króna, á síðasta ári samkvæmt upplýsingum frá norska seðlabankanum. Sjóðurinn sem meðal annars fjárfestir á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði, skilaði 23,3% neikvæðri ávöxtun á síðasta ári.

Svo ætlum við íslendingar að fá aðila til að leita að olíu við Ísland og tökum þá væntanlega Norðmenn okkur til fyrirmyndar. 

Vantar okkur fleiri fyrirtæki til að tapa á, fer ekki að vera komið nóg í bili.?


mbl.is Tap norska olíusjóðsins 633 milljarðar norskra króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB

Nú má ekki lengur ræða aðild að ESB innan Sjálfstæðisflokksins, það verður að bíða eftir landsfundi flokksins.  Það er engu líkara að sumir í þessum flokki líti á að það sem samþykkt er á landsfundi sé öllu æðra.  Geir H. Haarde, formaður flokksins þorir ekki að gefa upp sinn vilja í því máli af ótta við að flokkurinn klofni.  Geir er farinn að líkjast æ meira framsóknarmanni.  Vill hafa alla möguleika opna til að getað stokkið á það sem honum hentar best hverju sinni.  Eitt er þó ljóst að málefni ESB verða til umræðu á landsfundinum og þar munu takast harkalega á tvær fylkingar og sennilega klofnar flokkurinn eftir landsfundinn og Geir hefur þá möguleika að fylgja stærri fylkingunni.

Annars er framkoma Sjálfstæðismanna á Alþingi þessa daganna mjög undarleg.  Þeir vilja að þingstörfum verði hætt sem fyrst vegna komandi Alþingiskosninga, en samt halda þeir uppi málþófi til að tefja störf þingsins.  Þeir eru að reyna að hindra að hægt verði að breyta stjórnarskránni fyrir kosningar.  Nú reyna þeir að hindra því að sett verði í stjórnarskránna, að auðlyndir Íslands, fiskurinn í sjónum og orkan verði sameign þjóðarinnar. 

Samt fluttu þeir Geir H. Haarde og Jón Sigurðsson fv. formaður Framsóknar þingsályktun um sama málefni í ársbyrjun 2007 en sú tillaga varð aldrei afgreidd, heldur dagaði uppi í einhverri nefnd.  Ætlar einhver að kjósa þessa vitleysingja á þing aftur?  Sjálfstæðisflokkurinn hefur stýrt efnahagsmálum Íslands samfellt í 18 ár og allt er í rúst.   Frjálshyggjuæðið varð til þess að flokkurinn stendur nú með allt niður um sig. 

Vonandi fer þessi flokkur ekki í ríkisstjórn í næst 18 ár ef ekki lengur.


Ruslaralýður

Þann 1. mars var haldinn fundur í Valhöll, höfuðstöðvum Sjálfstæðismanna.  Þar var verið að ræða um bankahrunið ofl.  Það var samhljóða álit fundarmanna að þótt Sjálfstæðisflokkurinn hefði farið með stjórn efnahagsmála Íslands síðan 1991, bæri hann enga ábyrgð á þessu hruni.  Það var þetta fólk sem brást sagði Geir H. Haarde, formaður flokksins.  Það voru sem sagt almennir borgarar þessa lands sem brugðust, eyddu og bruðluðu með fé eins og vitleysingar.  Fólk tók húsnæðislán, bílalán, neyslulán, sumarhúsalán og annað eftir því.

Svo fór þetta sama fólk að koma sama á Austurvelli og vera þar með skrýlslæti, sem urðu til þess að ríkisstjórnin sprakk.  Samfylkingin gafst upp en ekki Sjálfstæðisflokkurinn, hann stendur alltaf fyrir sínu. 

Þá höfum við það beint frá Valhöll að hin íslenska þjóð er bara ruslarlýður, sem ekkert veit né skilur.


Ættu að líta í eigin barm

Það er talsvert skrýtið þegar Morgunblaðið er að fjalla um rekstur hinna ýmsu fyrirtækja.  Í blaðinu á Mánudag var birt trúnaðargögn frá gamla Kaupþingi um lán til hinna ýmsu aðila.  Þar var meðal annars fjallað um lán til Existu hf. og þeirra Bakkavarabræðra.  Í fréttaskýringu var gefið í sagt að þeir ásamt fleirum lántakendum hefðu verið að mergsjúga Kaupþing hf. áður en sá banki féll og gefið í skin að þessir menn kynnu ekki að reka fyrirtæki nema með vafasömum aðferðum.

Það er ekki langt síðan að Árvakur hf. útgáfufélag Morgunblaðsins var í gjörgæslu hjá Glitnir og síðan selt hópi fjárfesta.  

Ekki var þá talað um að stjórnendur Árvakurs hf. kynnu ekki að reka fyrirtæki.  Það var bara talað um að félagið ætti í rekstarerfiðleikum eins og svo mörg önnur fyrirtæki á Íslandi og mikið gert úr því hvað hin nýja prentsmiðja hefði verið blaðinu erfið.

Hefur Morgunblaðið efni á að gagnrýna erfiðan rekstur hjá öðrum á sama tíma og þeir geta ekki rekið sitt eigið fyrirtæki nema með stór tapi.


Bloggfærslur 11. mars 2009

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband