Verkfæri

Alþjóðlegi verkfæraframleiðandinn DeWalt hélt nýverið ráðstefnu og sýningu hér á landi þar sem ríflega 350 viðskiptavinum frá Norðurlöndunum var boðið til Íslands.

Það þarf ekki að koma á óvart að verkfæraframleiðandi haldi ráðstefnu hér á landi.  Ætli við íslendingar eigu ekki eitt metið enn og nú í verkfærakaupum.  Því eitthvað þarf nú af verkfærum í allar þær byggingaframkvæmdir sem eru hér í gangi og ekkert lát virðist vera á.  Það virðist engu máli skipta hvort einhver kaupandi sé að öllum þessum nýbyggingum.  Það er bara byggt og byggt að því virðist bara til að byggja.  Enda er höfuðborgarsvæðið eins og heill skógur af byggingarkrönum og þúsundir nýrra íbúða standa auðar og óseldar.


mbl.is DeWalt valdi Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek undir þetta hjá þér Jakon, ótrúlegt hvað mikið er byggt þarna fyrir sunnan. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.1.2008 kl. 11:51

2 identicon

Jakop það mikið til í þessu hjá þér , en ekki ætla ég að neita að þegar ég fer inní verslanir sem versla með þessi verkfæri þá er ég alltaf hálfa leið með að ljúga að sjálfum mér að mig vanti nú öll þessi verkfæri og tel mig heppinn ef ég slepp út án þess að kaupa einhvert.

Loki 27.1.2008 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband