Stjórlaus borg

Undanfarnar vikur hefur Reykjavíkurborg verið stjórnlaus vegna alls ruglsins hjá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni.  Hann var fljótur að finna út á sínum tíma að Þórólfur Árnason ætti að axla ábyrgð og segja af sér og lét þá stór orð falla um stjórnleysi og ábyrgð í stjórnmálum en þegar röðin kemur að honum þá er alt í lagi.  "Hann lenti bara óvart í óþægilegu máli", og axlar sína ábyrgð með því að seggja; "Sorry Stína" og þá á allt að vera í lagi.  Það hefur ekki verið haldnir neinir fundir í hinum ýmsu nefndum borgarinnar vegna þess að enginn veit lengur hver stjórnar borginni.  Að vísu er sakleysinginn Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri og situr hamingjusamur í borgarstjórastólnum og les hinn fræga lista með atriðunum 17, sem gera eiga 5.722 eða hvaða tala þetta nú var, einstaklinga í borginni ánægða.  En borginni verður ekki stjórnað með því al lesa stöðugt yfir þessi 17 atriði og heilsa Gauksklukkunni af og til.  Er þessum mönnum ómögulegt að skilja um hvað stjórnmál snúast og hvað á það að ganga lengi að stærsta sveitarfélag landsins sé stjórnlaus svo vikum skiptir.  Hvað með alla starfsmenn borgarinnar?  Hvað með rétt hins almenn íbúa í Reykjavík?  Skiptir það þessa herramenn engu máli eru það bara að hanga eins og hundar á roði sem skipti þá tvíburana Ólaf F, og Vilhjálm Þ. máli.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband