Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

West Ham

CB Holding ehf., sem er í meirihlutaeigu Straums-Burðaráss fjárfestingabanka, er að reyna að selja breska úrvalsdeildarknattspyrnufélagið West Ham. Bresku blöðin Times og Telegraph greina frá þessu á vefjum sínum í kvöld.

Þetta er nú eitt dæmið um rangar fjárfestingar, þegar sumir menn ætluðu að gleypa heiminn.  Það er nær öruggt að West Ham, verður ekki selt nema með miklu tapi, ef það selst þá yfirleitt.


mbl.is Reynt að selja West Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandari dagsins

Tveir gamlir menn frá Vestmannaeyjum fóru á handfæraveiðar á lítilli trillu, sem annar þeirra átti.  Báðir voru þeir með falskar tennur.  Fljótlega eftir að þeir hófu veiðar fékk annar þeirra mikið hóstakast, sem varð til þess að fölsku tennurnar hrukku út úr munni hans og fóru í sjóinn. 

Félagi hans og bátseigandinn ætlaði að stríða hinum og næst þegar hann dró stóran þorsk, setti hann sínar fölsku tennur upp í þorskinn og kallaði til félaga síns

"Nei sjáðu hvílík heppni, þorskurinn hefur ætlað að gleypa tennurnar þínar og þær eru hér." 

Síðan rétti hann félaga sínum tennurnar og sá setti þær upp í sig en var fljótur að taka þær úr aftur og sagði;

"Nei þetta eru ekki mínar." Síðan henti hann tönnunum í sjóinn aftur. 

Sá sem átti tennurnar sagði ekkert og luku þeir veiðiferðinni á þess að ræða neitt saman, en báðir komu tannlausir í land.


Kosningar

Talibanar hafa sagt íbúum Afganistans að hunsa fyrirhugaðar kosningar en nauðsynlegt reyndist að kjósa aftur þar sem spilling markaði fyrir kosningarnar í haust.

Vonandi verður búið að drepa alla talibana fyrir kosningarnar svo þessi viðvörun verður marklaus.  Auðvitað á fólkið að nýta sér sinn kosningarétt.


mbl.is Afgönum sagt að hunsa kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkin

Bandaríska fjármálaeftirlitið lokaði í gær sjö bönkum, þar á meðal þremur þremur litlum bönkum í Flórída. Eru þar með orðnir yfir eitthundrað bankarnir sem hrunið hafa í Bandaríkjunum af völdum fjármálakreppunnar.

Það er víðar en á Íslandi, sem bankar komast í þrot.  En sá er munurinn að hér á landi er sama fólkið og kom bönkunum í þrot sett í ábyrgðastöður hjá endurreistum bönkum, svo vitleysan geti haldið áfram óhindrað.


mbl.is Yfir 100 bankar í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talibanar

Stjórnarher Pakistans hefur heimabæ Talibanaleiðtogans Hakimullah Mehsud á valdi sínu eftir mikil átök. Er þetta önnur vikan í röð sem herinn heldur áfram sókn sinni gegn öfgasinnuðum Íslamistum.  Vonandi heldur herinn áfram þar til þessum talibönum hefur verið útrýmt með öllu svo friður komist á í Pakistan og Afganistan.  En talibanar hafa flakkað á milli þessara tveggja landa og valdið miklum skaða og drepið fjölda fólks.
mbl.is Heimabær Talibanaleiðtoga á valdi hersins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn

Átta af þeim sautján bréfum forseta Íslands sem Rannsóknarnefnd Alþingis fékk frá forsetaembættinu hafa verið birt á heimasíðu embættisins. Eru þetta bréf forsetans til manna sem látið hafa af embætti auk tveggja annarra.

Þetta er til fyrirmyndar hjá Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta.  En hvenær mun þessi rannsóknarnefnd birta eitthvað af sínum gögnum? 

Fer ekki að koma tími á það.


mbl.is Forsetinn birtir bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ASÍ

Er nú ASÍ farið að stunda lækningar?  Jóhannesi hlýtur að líða mun betur í dag og verða fljótur að ná bata eftir hjartaígræðslu, sem framkvæmd var í Svíþjóð.
mbl.is Sendu Jóhannesi góða strauma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íkveikja

Kveikt var í bíl í Njarðvíkum og lagður eldur að íþróttahúsinu þar í bæ í nótt. Eldurinn náði ekki að breiðast út en þeir sem kveiktu í eru enn ófundnir. Brotist var inn í eina verslun á höfuðborgarsvæðinu og maður rændur í miðborginni.

Það hefur bara verið mikið fjör í nótt enda aðfaranótt laugardags og flestir landsmenn fullir og dópaðir.  Mikið hlýtur þessu fólki að líða vel í dag eftir dugnað næturinnar.


mbl.is Kveikt í íþróttahúsi Njarðvíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiginhagsmunir

Forseti Zimbabve, Robert Mugabe, ásakaði forsætisráðherrann, Morgan Tsvangirai, í dag um að bregðast þjóðhagsmunum eftir að hafa dregið til baka stuðning sinn við viðkvæma stjórn landsins.

Þessi lýsing gæti vel átt við um Ísland síðast liðin 25 ár.


mbl.is Segir Tsvangirai stjórnast af eiginhagsmunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skilanefndir bankanna

Þær virðast hafa úr nægum fjármunum að spila þessar skilanefndir og virðast geta hagað sér eins of þeim sýnist.  Allir nefndarmenn í þessum nefndum hafa víst mjög há laun og svo ráða þær bara fyrirtæki á sviði endurskoðunar og fjármála til að vinna alla vinnuna.  Hvað nefndarmenn gera sjálfir, veit ég ekki og kannski veit það enginn.  Nú eru starfandi þrír sérstakir saksóknarar ásamt Evu Joly, til að rannsaka bankahrunið, einnig er sérstök rannsóknarnefnd á vegum Alþingis.  Hvaða niðurstöðu er ætlast til að þetta allt skili veit enginn og sennilega koma einhver álit um hitt og þetta.  Ég er viss um að enginn verður ákærður vegna bankahrunsins og ef svo verður þá fá viðkomandi væga dóma.  Eitt er þó víst að allt þetta kostar mörg hundruð milljónir og á meðan hafa útrásarvíkingarnir flutt sína peninga úr landi án nokkurra afskipta yfirvalda.
mbl.is Skilanefnd með 25 erlend fyrirtæki í ráðgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband