Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Svikamillan

Bandaríski kaupsýslumaðurinn Jeffry Picower, sem var ásakaður um að hafa grætt milljarða dala á fjársvikamyllu vinar síns Bernards Madoffs, fannst látinn í sundlaug við heimili sitt á Palm Beach á Flórída í gær.

Hann mun ekki njóta auðæva sinna þessi náungi, frekar en Murdoff, sem fékk dóm um 150 ára fangelsi.  Sennilega hefur Jeffry Picower drepið sig til að forðast fangelsisvist, sem mun hafa beðið hans ef mál hans hefði farið fyrir dómstóla.


mbl.is Samstarfsmaður Madoffs fannst látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandari dagsins

Á sínum tíma áttu flest hús í Garðinum sitt nafn og húsnúmer fóru ekki að koma fyrr en eftir 1960.  Þau hús, sem komin voru með síma voru tengd við símstöðina undir húsnafni en ekki númeri.  Þegar hringja átti varð að biðja símstöðina um samband við ákveðið hús.  Maður að nafni Hannes, sem var símstöðvarstjóri, og einhver hringdi á símstöðina og bað um samband við Stafnes.  Þar svaraði ung stúlka og Hannes segir;

"Stafnes mín er mamma þín heima?"

Einu sinn var hringt á símstöðina og beðið um ákveðið hús.  Hannes segir við þann, sem hringdi;

"Það svaraði einhver og sagði að enginn væri heima."


Peningaþvætti

Þeir sem vinna að rannsókn á hruninu á Íslandi rannsaka nú hvort ásakanir um að íslensku bankarnir hafi tengst peningaþvætti eigi við rök að styðjast. Þetta kemur fram á vef breska blaðsins Times. Þar er fjallað um lánveitingar bankanna til tengdra aðila og breskra kaupsýslumanna.

Auðvitað stunduðu allir íslensku bankarnir peningaþvætti og það var aðalástæðan fyrir því hve stórir þeir urðu.  Þegar Landsbanki Íslands var einkavæddur var greitt fyrir hann með peningum frá rússnesku mafíunni, sem kaupendur bankans höfðu kynnst og gert samninga við þegar þeir störfuðu í Rússlandi.


mbl.is Ásakanir um peningaþvætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gordon Brown

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hefur nú lofað því að hagvöxtur snúi aftur í Bretlandi um áramótin. Þetta eru viðbrögð hans við fréttum af því að Bretland sé enn, formlega, í samdrætti.

Ef hlutirnir væru nú svona einfaldir að það dugði loforð frá forsætisráðherra hvers lands um hagvöxt, þá væri engin kreppa til.  Staðreyndin er hins vegar sú að fylgi við Brown minnkar stöðugt og hann grípur hvert hálmstrá til að halda völdum fram að næstu kosningum en þá mun hann hrökklast frá.


mbl.is Gordon Brown lofar hagvexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstætt Skotland

Mohamed Al Fayed, eigandi Harrods í Lundúnum, segir í viðtali við Sunday Times blaðið í dag að hann vilji verða fyrsti forseti sjálfstæðs Skotlands. Al Fayen, sem er áttræður, er meðal annars þekktur fyrir að vera faðir Dodi Fayed, ástmanns Díönu prinsessu en þau létust bæði í bílslysi í París árið 1997.

Hann vandar ekki Englendingum kveðjurnar í þessu viðtali hann Al Fayed og segir þá spillta og óhæfa stjórnmálamenn.  Það yrði mikið áfall fyrir Bretland ef Skotar lýstu yfir sjálfstæði, sem þeir munu gera fyrr eða síðar.


mbl.is Al Fayed vill verða fyrsti forseti Skotlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýherji

Tap á rekstri Nýherja á þriðja ársfjórðungi nam 107 milljónum króna en var 258 milljónir árið á undan. Stjórn félagsins hefur ákveðið að hefja undirbúning að útgáfu og sölu á nýju hlutafé til að styrkja fjárhagsstöðuna.

Minna tap en í fyrra glæsilegur árangur hjá stjórnendum Nýherja og með sama áframhaldi komast þeir í hagnað fyrir næstu aldamót.  En ansi er ég svartsýnn á að þeim takist að selja mikið af hlutabréfum núna.  Þeir fjárfestar, sem stunduðu kaup og sölu á hlutabréfum eru flestir búnir að tapa sínum peningum.  Nú kaupa þeir sem enn eiga til peninga ekki hlutabréf, heldur ríkisskuldabréf.


mbl.is Dregur úr tapi hjá Nýherja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykjavík

Tveir menn voru handteknir fyrir utan skemmtistaðinn Nasa á fjórða tímanum í nótt. Höfðu þeir veist að þeim þriðja með höggum og ofbeldi. Sá missti meðvitund, rotaðist, og var fluttur á sjúkrahús. Hann er nú kominn til meðvitundar og útskrifaður af spítalanum.

Þá er ástandið í Reykjavík orðið eðlilegt á ný.  Líkamsárás og innbrot um hverja helgi er hið eðlilega ástand.  Svo á líka að fækka í lögreglunni í Reykjavík og þá fær dauðadrukkin skríllinn að láta eins og hann vill, án afskipta lögreglu.


mbl.is Líkamsárás og innbrot í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einræðisherra

Þar sem Alþingi virðist ekki ráða lengur við að stjórna landinu og leysa þau vandamál, sem þarf að leysa.  Þá tel ég að ríkisstjórnin og allir alþingismenn verði sendir í frí og við tökum upp einræði hér á landi.  Því er það mín tillaga að forsetinn Ólafur Ragnar Grímsson verði gerður að einræðisherra á Íslandi.  Hann er vanur stjórnmálamaður og mjög snjall ef á reynir og hann myndi leiða íslenska þjóð í gegnum kreppuna og koma hlutunum hér í lag.  Hann myndi auðvitað skipa nýja ríkisstjórn, sem í sætu engir sem hafa komið nálægt stjórnmálum áður.  Við legðum lýðræðið til hliðar í nokkra mánuði og tækjum það upp aftur þegar allt væri komið í lag.

Einræðisherra strax.


Jólin

Nú eru aðeins tæpir 60 dagar til jólanna og mér sem finnst að þau séu nýbúinn.  Ég er hræddur um að jólahald hjá mörgum verði haldið í skugga kreppunnar og kaupæðið verði ekki eins mikið og áður og jólagjafir í minna lagi.  En kannski er þetta rugl hjá mér og landsmenn fari á fullt með sín kreditkort og kaupi mikið og láti eins og kreppan sé ekki til.  Því það sem greitt er með kreditkortum eftir 17. desember þarf ekki að greiða fyrr en í febrúar og þá er hægt að skipta jólareikningnum niður á 6 mánuði ef ekki lengur.  Loksins þegar jólareikningarnir eru greiddir að fullu, er farið að nálgast næstu jól og sama sagan endurtekur sig.  Svona getur þetta gengið hring eftir hring og allir eru glaðir og hamingjusamir.  Ég get ekki tekið þátt í þessu þar sem ég nota ekki kreditkort, en jólin koma vonandi hjá mér eins og öðrum.  Hinsvegar væri athugandi miðað við ástandið núna að gera eins og Kastró forðum og fresta jólunum þar til betur árar.

Svínaflensan H1N1

28 manns liggja nú inni á Landspítalanum, veikir af H1N1 inflúensu. Að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis hafa átta verið lagðir inn á spítalann síðan í gær en sex útskrifast. Sjö manns eru nú þungt haldnir á gjörgæslu og hefur fjölgað um einn síðan í gær.

Hún ætlar að verða andi skæð þessi flensa og nú þegar hefur einn íslendingur látist úr henni.  Annars finnst mér forgangsröðun í bólusetningu gegn þessari flensu ansi skrýtin.  Alþingismenn voru sem dæmi, settir í forgangshóp.  En eins og umræður eru á Alþingi núna væri best að flestir þeirra væru fjarverandi vegna flensunnar, lítið gagn gera þeir á Alþingi.


mbl.is Sjö á gjörgæslu vegna H1N1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband