Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Fermingar

Guðmundur Karl Brynjarsson sóknarprestur og Guðni Már... Þrjátíu og átta fermingarbörn ganga til altaris í Lindakirkju í Kópavogi á morgun, laugardag. Athöfnin verður sérstök fyrir þær sakir að hún er sú fyrsta í hinni nýju kirkju, sem ekki er fullkláruð. Á meðal þess sem vantar eru bekkir fyrir kirkjugesti.

Þetta skiptir nú engu máli hvort kirkjan er tilbúinn eða ekki.  Flest börn fermast vegna gjafanna, en ekki vegna trúarinnar.  Þótt látið sé í það skína.


mbl.is Ferma í ókláraðri kirkjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Músiktilraunir

Hljómsveitakeppnin sívinsæla Músíktilraunir hefst í næstu viku, föstudag, í Íslensku óperunni. Í fyrsta skipti í 27 ára sögu keppninnar eru nú fleiri konur en karlar í hinni sjö manna dómnefnd keppninnar.

Er þetta ekki brot á Jafnréttislögum?  Eða það væri það ef karlarnir hefðu verið fleiri.


mbl.is Vel kvenlægar Músíktilraunir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnuskólar

Mynd 492543 Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti í gær laun unglinga í vinnuskóla bæjarins í sumar. Eru launin í öllum aldurshópum svipuð þeim launum sem unglingar fá í vinnuskóla Reykjavíkurborgar næsta sumar en þar verða launin þau sömu og síðasta sumar líkt og á Akureyri.

Auðvitað eiga launin að vera svipuð hjá þessum unglingum, ekki bara á Akureyri og Reykjavík, heldur um allt land, þar sem svona starfsemi er.


mbl.is Svipuð laun í vinnuskóla á Akureyri og í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lóan

Lóan er komin að kveða burt snjóinn...Kunnuglegur og kærkominn söngur barst mönnum til eyrna á Höfn í Hornafirði snemma í morgun og reyndist þar heiðlóan vera komin til landsins. Lóan var ein á ferð og flaug yfir Einarslund á Höfn syngjandi sitt fagra dirrindí og því greinilega komin í þeim erindagjörðum að boða komu vorsins.

Þá er vorið skammt undan og síðan kemur gott sumar og fólk getur slappað aðeins af í öllu þessu kreppukjaftæði og berið bjartsýnt.


mbl.is Lóan er komin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miklar skuldir

Mynd 191355 „Staða margra smábátasjómanna er vægast sagt mjög erfið. Þeir hafa fjárfest mikið í veiðiheimildum og tekið til þess erlend lán sem hafa hækkað gríðarlega. Margir sitja uppi með tuga milljóna skuldir og þrátt fyrir frystingar lána þá eru vaxtagreiðslurnar einar að sliga margan trillukarlinn því fiskverð hefur lækkað mjög að undanförnu,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda.

Ekki er ástandið betra hjá stóru útgerðinni.  Enda ekki nema von þegar græðgin var orðin slík að kílóið af óveiddu þorski í sjónum var selt á 3.500,- 4.000,- krónur.  Undir því stendur engin útgerð.

Eina færa leiðin í þessu er að ríkið innkalli allar veiðiheimildir og tvöfaldi magn þeirra.  Síðan leigði ríkið útgerðum veiðiheimildi fyrir 10-15% af söluverði aflans sem færi í sjóð til að greiða niður þessi erlendu lán.  Þeir sem eru núverandi handhafar kvótans myndu ekkert skaðast heldur myndi hagur þeirra batna með auknum veiðum.  Auk þess sem þeir losnuðu undan þessum miklu lánum.


mbl.is Sitja uppi með milljónatuga skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjórán

Sjóræningjar rændu í gærkvöldi gríska flutningaskipinu Titan úti fyrir ströndum Sómalíu. 24 manna áhöfn er um borð í skipinu sem skráð er á St Vincent en skipið mun ver hlaðið málmum.

Þeir eru ekki hætti þessir glæpamenn þótt fyrir stuttu hafi verið í fréttum að danskt varðskip, sem hafði handtekið nokkra sjóræningja og þeir slepptu þeim aftur eftir að sjóræningjarnir höfðu lofað að láta af þessari iðju sinni.  Nú er komið nóg og þeir sem verða handteknir héðan í frá á að skjóta á staðnum.  Hætta þessu rugli að sleppa mönnunum.


mbl.is Grísku skipi rænt við Sómalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rækjuvinnsla

Af því að ég var að skrifa um staðinn Garð áðan datt mér í hug eftirfarandi saga, sem er alveg sönn;

Eitt sinn þegar hvað mesti krafturinn var í veiðum á úthafsrækju, ákvað Halldór Ásgrímsson, sem þá var Sjávarútveggsráðherra að setja kvóta á þær rækjuverksmiðjur sem þá voru starfandi.  Þessu átti að skipta niður á fjölda rækjupillunarvéla, sem hver verksmiðja hafði.  Hann boðaði á sinn fund eigendur verksmiðjanna til að fara yfir málið og þar átti hver að gera grein fyrir hvað margar vélar væru í hverri verksmiðju.  Þeir skýrðu auðvitað rétt frá en þegar röðin kom að Hauki Helgasyni, sem rak þá rækjuverksmiðju undir nafninu Lagmetisiðjan í Garði, en var fluttur með reksturinn til Grindavíkur. 

"Hann sagði frá þeim vélum sem vor í Grindavík, en bætti svo við að hann ætti líka tvær vélar í geymslu í út í Garði.  Halldór hváði við og spurði Hauk;  Af hverju ert þú að geyma rándýr tæki úti í garði?  Áttu ekkert húsnæði til að geyma þessar vélar í ?  Við þetta fóru allir fundarmenn að skellihlæja og Halldór spurði undrandi, af hverju eru þið að hlægja, ég var bara að benda manninum að það væri betra að geyma þessar vélar inni heldur en út í garði." 

En svo leystist þessi misskilningur og þá hló Halldór manna mest.


Tvísýn sjóferð

Veturinn 1995 leigði ég einbýlishús í Garði og ég og sonur minn vorum að róa á 6 tonna trillu frá Keflavík með línu.  Einn daginn fórum við í róður í þokkalegu veðri en spáð var versnandi veðri þegar liði á daginn.  Þegar við vorum búnir að leggja línuna var farið að hvessa talsvert, fórum við því fljótlega að draga en stöðugt bætti veðrið og svo fór að línan slitnaði og var þá farið í hinn endann til að halda áfram að draga.  Okkur gekk illa að ná baujunni innfyrri og í þau fáu skipti sem við náðum henni misstum við hana alltaf fyrir borð aftur.  Í eitt skiptið þegar við náðum henni um borð lögðumst við báðir á hana til að reyna að halda henni um borð en veðrið var orðið svo slæmt að það dugði ekki til og flaug hún fyrir borð aftur.  Veðurhæðin var orðin um 10-12 vindstig og ákváðum við þá að reyna að komast í land og freista þess að ná línunni seinna.  Sonur minn fór í koju en ég tók landstímið.  Það var erfið sigling, báturinn stakkst í öldurnar og fór nánast á kafa af og til.  Ég var með stefnuna á Garðskagavita en siglingin gekk hægt.  Skömmu síðar hringir hafnarvörðurinn í Keflavík í mig og spyr hvort ekki sé allt í lagi og bætir því við að allir bátarnir séu komnir í höfn nema við.  Allt í einu í einni dýfunni sló út rafmagninu og  vegna veðursofsans treysti ég mér ekki til að fara aftur í vélarúm til að athuga hvað hafði skeð.  Hafnarvörðurinn hafði ráðlagt mér að þegar ég kæmi að Garðskaga þá skyldi ég sigla meðfram landinu því þá væri meira skjól.  Þar sem ekkert rafmagn hlóðst nú inn á rafgeymanna ákvað ég að slökkva á dýptarmælinum og radarnum, til að spara rafmagn svo við hefðum alla veganna siglingarljósin.  Ég hafði ekki siglt langt inn Stakksfjörðinn þegar báturinn tók heljar dýfu og skall harkalega niðri að aftan.  Sem betur fer voru tvær vélar í bátnum og gátum við siglt á annarri vélinni til Keflavíkur.  Daginn eftir tókum við bátinn upp og fengum aðstöðu í gamla slipphúsinu.  Þegar báturinn var kominn á land blöstu skemmdirnar við.  Önnur skrúfan var mölbrotin og öxullinn mikið beygður og brotið úr hæl bátsins.  Við vorum rúman mánuð að lagfæra þetta og komið fram í endaðan apríl þegar báturinn fór á flot aftur.  Þá fórum við vestur á Patreksfjörð og hófum róðra þaðan.  Kunnugir menn í Keflavík sögðu að sennilega hefðum við tekið niðri á gömlum gufukatli, sem mikið er af á þessu svæði.  Því þarna hafa strandað mörg skip sem ekki hefur tekist að bjarga og gufukatlarnir úr þeim væru þarna á talsverðu svæði.  Það er nokkuð öruggt að ef ekki hefðu verið tvær vélar í bátnum hefði hann farið þarna upp í stórgrýtta fjöruna og mölbrotnað og við feðgar báðir drepist.

Svo eru margir að halda því fram að ef krókaveiðar yrðu gefnar frjálsar þá færi annar hver maður að róa á trillu.  Það er ekki alltaf neitt sældarlíf.


Samfylkingin

Þá er hún Jóhanna Sigurðardóttir búinn að gefa ákveðið svar um að bjóða sig fram til formennsku í flokknum.  Ég verð því að hætta við mín áform um formannsframboð og halda mig við minn gamla flokk.  Þótt ég sé ekki sáttur við allt það sem þar fer fram.

Kannabis

 Greinilegt er á aðstæðum að menn kunnu vel til verka við... Tveir karlmenn eru enn í haldi lögreglu sem voru handteknir í gærkvöld í tengslum stærsta kannabisfund lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá upphafi. Að sögn Karls Steinars Valssonar, yfirmanns fíkniefnalögreglunnar, verður skýrslutökunum haldið áfram í dag.

Hvað er verið að nýðast á þessum aumingja mönnum.  Þeir voru einfaldlega að byggja upp stórt og mikið fyrirtæki.  Í þeirri kreppu sem nú ríkir á Íslandi er betra að rækta þetta efni hér á landi frekar en að nota takmarkaðan gjaldeyrir til þess að smygla þessu inn í landið.  Á meðan eftirspurn er eftir kannabisefnum verða alltaf til einhverjir til að fullnægja þeirri eftirspurn.  Þannig að þessi starfsemi var þjóðhagslega hagkvæm.


mbl.is Kannabisræktendur enn í haldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband