Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Bolungarvík

Bolungarvík. Fulltrúar í velferðarráði Bolungarvíkur samþykktu fyrir helgi að afsala sér launum fyrir nefndarstörf. „Það voru allir sammála um að afsala sér launum og kom tillagan að frumvæði fulltrúa minnihlutans í ráðinu,“ segir Einar Guðmundsson, formaður velferðarráðs í samtali við Bæjarins besta.

Þetta ættu margir að taka sér til fyrirmyndar sem sitja í hinum ýmsu nefndum og ráðum á vegum ríkisins og sveitarfélaga.


mbl.is Afsala sér launum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjóræningjar

Sjóræningja úti fyrir Sómalíu á siðasta áriEkki hefur enn verið gripið til harðari refsinga gegn sjóræningjum úti fyrir ströndum Sómalíu en að afvopna þá og senda þá heim. Herskip frá nokkrum löndum eru á svæðinu til að stemma stigu við sjóránum. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.

Hvers vegna er verið að sleppa þessum mönnum.  Þetta eru glæpamenn , sem á að meðhöndla sem slíka.  Ævilangt fangelsi væri lámark, en best væri þó að skjóta þá á staðnum þegar þeir eru teknir.


mbl.is Sjóræningjum sleppt við Sómalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sálræn skyndihjálp

Útgáfa klíniskra leiðbeininga um sálræna skyndihjálp, viðurkennt verklag á vettvangi, verða kynntar á blaðamannafundi í dag. Leiðbeiningarnar hafa verið þýddar og staðfærðar af Dr. Berglindi Guðmundsdóttur, sálfræðingi og Þórunni Finnsdóttur, sérfræðingi í klíniskri sálfræði.

Þetta er sjálfsagt hið besta mál, þegar nær öll þjóðin er í sjokki eftir allt hrunið að undanförnu.  En ég tel að sá sem á við geðræn vandamál að stríða gagnist lítið skyndihjálp á því sviði. 

Ég þekki þetta vel þar sem ég hef glímt við alvarlet þunglyndi í nokkur mörg ár eftir mikið áfall.


mbl.is Leiðbeiningar um sálræna skyndihjálp gefnar út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Facebook

Margt er hægt að gera sér til dægrastyttingar á Fésbókinni....Íslendingabók, ættfræðiforrit Íslenskrar erfðagreiningar, er nú komin á samskiptavefinn Facebook, eða Fésbókina eins og margir Frónbúar kalla hana. Forritið rekur ættir notenda saman við alla vini þeirra á Fésbók, sem á annað borð er að finna í gagnagrunni Íslenskrar erfðagreiningar.

Þessi vefur Feacebook virðist vera orðinn mjög vinsæll.  Ég hætti mér einu sinni þarna inn en kunni auðvitað ekkert og gat ekkert gert.  En ég ætla að reyna að læra á þennan vinsæla vef.


mbl.is Íslendingabók mætt á Fésbókina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr Háskóli

Með samkomulagi milli Blönduósbæjar og Háskólans á Hólum verður byggt upp háskólasetur á Blönduósi. Samkomulagið undirrituðu þeir Skúli Skúlason rektor á Hólum og Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri á Blönduósi nýverið.

Ég ætla ekki að gera lítið úr gildi menntunar, en mér finnst samt vera komið full mikið af öllum þessum háskólum.  Það fer varla að verða til það starf, sem ekki er krafist háskólamenntun til.  Það má engin passa lítil börn á leikskólum eða kenna í barnaskóla án háskólaprófs.  Allt er þetta á kostnað verkmenntunar í landinu sem alltof fáir sækja í.

Verður kannski næst að krafist verður háskólamenntunar til að vera öryrki


mbl.is Kvennaskólinn verður gerður að háskólasetri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framboðslisti VG

Merki VG Framboðslisti V-lista í Norðausturkjördæmi var samþykktur á kjördæmisþingi VG í Norðausturkjördæmi í gær.

Auðvitað bar Steingrímur J. Sigfússon höfuð og herðar yfir aðra frambjóðendur og skipar 1. sæti listans.  Þarna er líka mikið af góðu og hæfu fólki, sem ég ætla ekki að fara að telja upp hér.

Til hamingju Steingrímur.


mbl.is Framboðslisti VG í NA-kjördæmi birtur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lét bíða eftir sér

Skúli Helgason og Anna Lind Pétursdóttir með börnum sínum. Það er óhætt að segja að nýafstaðið prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík verði Skúla Helgasyni eftirminnilegt, en auk þess að hafna í fimmta sæti í prófkjörinu fæddist honum og eiginkonunni, Önnu Lind Pétursdóttur, sonur aðfaranótt sunnudags.

Það er ástæða til að óska Skúla Helgasyni til hamingju með soninn og góðan árangur í prófkjörinu í Reykjavík.


mbl.is Lét bíða eftir sér fram yfir prófkjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prófkjör

Þá liggja fyrir niðurstöður úr prófkjörum flokkanna í hinum ýmsu kjördæmum.  Það vekur athygli að frekar lítið er af nýju fólki í efstu sætum.  Einnig að frekar fáir tóku þátt í þessum prófkjörum.  Það hafði verið krafa hins almenna kjósanda að uppstokkun yrði á listum flokkanna.  En það varð því miður ekki.  Þetta segir okkur það að hinir svokölluðu fjórflokkar eru búnir að byggja sitt kerfi þannig upp, að nýir frambjóðendur hafa litla möguleika.  Frambjóðandi þarf nánast að hafa alist upp í viðkomandi flokki og bíða síðan í goggunarröðinni þar til að honum kemur.  Þótt vitaskuld séu undantekningar á því, en þá er um að ræða þjóðþekkta einstaklinga.

Aflaverðmæti

Mynd 179853 Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 99 milljörðum króna á árinu 2008 samanborið við 80 milljarða yfir árið 2007. Aflaverðmæti hefur því aukist um 18,8 milljarða eða 23,5% á milli ára. Aflaverðmæti í desember nam tæpum 8 milljörðum miðað við rúma 5 milljarða í desember 2007. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Þetta er að sjálfsögðu mjög gott.  En hafa ber í huga að skuldir sjávarútvegsins eru yfir 500 milljarðar og mest vegna kvótakaupa.

Ég geri mér fulla grein fyrir því að þarna er verið að birta tölur um aflaverðmæti skipa.  En miðum við að það tvöfaldist við vinnslu í landi, þá eru heildar tekjur sjávarútvegsins um 200 milljarðar á móti 500 milljörðum í skuldir.

Það hefur lengi verið þumalputtaregla að skuldir mættu ekki verða hærri en heildartekjur til að um eðlilegan rekstur væri að ræða.  Þannig að talsvert vantar upp á þá viðmiðun og mörg gjaldþrot líkleg á næstu mánuðum.

Það er margt sem hjálpast að við að gera tekjurnar ekki meiri.  Þar má nefna að sýking varð í síldinni í haust, sem örsakaði það að minna var unnið til manneldis og síðan kom engin loðna.


mbl.is Aflaverðmæti 99 milljarðar króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kröfuganga

Íbúar Nørrebro eru ekki sáttir við áhrifin sem deilur...Íbúar Nørrebro í Kaupmannahöfn mótmæltu í dag skotárásum undanfarinna vikna í hverfinu, sem kostað hafa þrjá menn lífið.

Er nema von að fólkið þarna sé búið að fá nóg af skotárásum í þessu hverfi og mótmæli.


mbl.is Kröfuganga fyrir hversdeginum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband