Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
17.3.2009 | 10:45
VG
Birtar hafa verið atkvæðatölur úr forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðvesturkjördæmi síðustu helgi þar sem sjá má hvernig atkvæði greidd einstökum frambjóðendum dreifðust á einstök sæti.
Það vekur athygli mína að tveir efstu eru karlmenn og báðir úr Búðardal. Enginn af Vestfjörðum eða Norðurlandi Vestra er líklegur til að fá þingsæti. Annar þessara manna er Grímur Atlason nýráðinn sveitarstjóri og tónlistarmaður. Nú getur hann sungið hástöfum með sinni hljómsveit;
"Er ég kem heim í Búðardal"
![]() |
Atkvæðatölur hjá VG í NV-kjördæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2009 | 10:34
HB-Grandi hf.
Verkafólk sem starfar á lægstu töxtum Starfsgreinasambandsins er knúið til að axla ábyrgð á fjármála- og bankakreppu, efnahagsástandinu, sem það ber enga ábyrgð á, til að koma til móts við atvinnurekendur, segir Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins.
Þetta er alveg í stíl við frjálshyggjuna. Fjármagnið fyrst svo kemur fólkið. Annars skil ég ekki forustumenn þessa ágæta fyrirtækis. Því með þessu er verið að draga niður orðstír fyrirtækisins, sem ég hefði haldið að ætti að skipta eigendurna mestu máli.
Þarna er verið að misnota verkalýðshreyfinguna, því hún hafði gefið það vilyrði að þau fyrirtæki sem væru illa stödd fengju frest á launahækkun 1. mars en ekki þau sem sannarlega gætu greitt. HB-Grandi hf. hagnaðist um á þriðja milljarð á síðasta ári svo hann gat auðveldlega greitt þessa hækkun, en gerði það ekki þrátt fyrir góða stöðu.
Fyrst arðurinn var svo lítill að sögn forstjóra félagsins, þá gat hann ekki skipt máli fyrir moldríka eigendur. En launahækkun uppá 13,500 krónur skiptir miklu fyrir verkafólk. Nú líta flestir neikvætt á þetta fyrirtæki og stjórnendur hafa sett á það ljótan blett, sem tekur langan tíma að hverfa.
![]() |
Sérhagsmunalið féfletti útveginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2009 | 10:19
Prófkjör
Munur á reglum um hámarks-auglýsingakostnað í prófkjörum gætu skýrt mismunandi gengi kynjanna eftir flokkum í Reykjavík. Þá er hugsanlegt að reglur um hlutfall kynja á listum gætu hafa stuðlað að breyttu hugarfari í sumum flokkanna.
Það er ánægjulegt hvað konum gekk vel í hinum ýmsu prófkjörum. Þetta er að sjálfsögðu mismunandi eftir flokkum. Að sjálfsögðu sker Sjálfstæðisflokkurinn sig talvert úr, en þar eru karlar í efstu sætum, en konum gekk líka vel þar. Þetta er örugglega vegna þess að reglur um kostnað, auglýsingar ofl. voru hertar mjög. Því sannast það enn og aftur að konur kunna betur en karlar að ráðstafa rétt, takmörkuðu fjármagni.
![]() |
Útkoma kynjanna ólík eftir flokkum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2009 | 10:10
Brýnt mál
Árni Páll Árnason, formaður allsherjarnefndar, mun á næstu dögum mæla fyrir frumvarpi til breytinga á skaðabótalögunum sem felur það í sér að hætt verði að draga frá skaðabótum framtíðargreiðslur sem tjónþolar fá frá almannatryggingum og lífeyrissjóði.
Þetta er mál sem þarf að afgreiða sem fyrst. Það er auðvitað fáránlegt að ef einhver gifttur maður deyr þá skuli dragast frá bótum ekkjunnar þær bætur frá Tryggingastofnun þær bætur sem maðurinn hefði hugsanlega fengið ef hann væri á lífi. En auðvitað fær látinn maður ekki neinar bætur. Þetta er fáránlegt.
![]() |
Breytingin getur ekki beðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2009 | 10:01
Atvinnuleysi
Alls eru 17.087 einstaklingar skráðir á atvinnuleysisskrá Vinnumálastofnunar, þar af 10.848 karlar og 6.239 konur. Á höfuðborgarsvæðinu eru 11.834 skráðir á atvinnuleysisskrá. Taka verður tillit til þess að á skránni eru allir þeir sem eru skráðir, einnig þeir sem eru í hlutastörfum og fá atvinnuleysisbætur að hluta.
Þetta eru skelfilegar tölur og þær eiga eftir að hækka. En þetta er auðvelt að laga ef farið yrði eftir mínum tillögum sem ég skrifaði um áðan.
![]() |
Ríflega 17 þúsund á atvinnuleysisskrá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2009 | 09:58
Landsbjörg
Alþjóðabjörgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar býr sig undir alþjóðlega úttekt á vegum Sameinuðu þjóðanna. Sveitin hefur fengið nýtt húsnæði fyrir starfsemi sína á Keflavíkurflugvelli.
Þarna á að útbúa framtíðar aðstöðu fyrir Landsbjörg og líka fyrir Landhelgisgæsluna sem ætti að vera staðsett þarna líka. Það er góð höfn í Helguvík og Njarðvík fyrir skip Landhelgisgæsluna þar sem þau geta legið í friði, því lítið fara þessi skip á sjó. Einnig má benda á að mesta snjóflóðahætta á landinu er á Vestfjörðum og Norðurlandi. Það er styttra í sjómílum talið frá Suðurnesjum til áðurnefndra staða en frá Reykjavík.
![]() |
Landsbjörg komin að flugvellinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2009 | 09:51
Fiskútflutningur
Stjórn Sjómannafélagsins Jötuns mótmælir harðlega allri skerðingu á útflutningi á ferskum fiski, með tilheyrandi launaskerðingu fyrir sjómenn, og minnir á ákvæði kjarasamninga um að leitast skuli við að fá hæsta verð fyrir fisk veiddan á Íslandsmiðum.
Auðvitað eigum við ekki að skerða útflutning á óunnum fiski, sem gefur mun betra verð en fæst á Íslandi. Veitir okkur nokkuð af að fá auknar tekjur og það í erlendum gjaldeyrir.
![]() |
Vilja ekki skerða ferskfisksútflutning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2009 | 09:47
Bankaráð Seðlabankans
Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt í stjórnmálafræði, hefur óskað eftir því að lögmæti skipunar bankaráðs Seðlabankans verði kannað, en hún telur það brot á jafnréttislögum. Ef Jafnréttisstofa tekur undir þetta sjónarmið óska ég eftir því að hún kanni forsendur kæru," segir í bréfi Silju Báru.
Hverskonar andskotans kjaftæði er þetta er það orðið heilagt að algert jafræði kynjanna sé á öllum sviðum. Það skrýtna við þessi lög er að þau gilda bara fyrir konur. Í sumum prófkjörum sl. helgi átti að gæta jafræðis kynjanna. En þegar það fór á þann veg að karlar ættu að færast upp fyrir konur á framboðslista þá var bara sagt að þetta ætti ekki við núna. Ef þetta bankaráð er talið ólöglegt þá hefur Alþingi verið ólöglegt í mörg ár og því allt ólöglegt sem þar hefur verið samþykkt. Þar á meðal þessi jafnréttislög. Verður kannski næst að hafa barnsfæðingar eins og í Kína þar sem stjórnvöld ákveða hvað hver fjölskylda má eiga mörg börn. Þá yrði hver fjölskylda á Íslandi að eiga jafn mörg börn af hvoru kyni.
Ég er alveg löglegur því ég á tvo syni og tvær dætur.
![]() |
Bankaráð Seðlabanka ólöglega skipað? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2009 | 09:31
Nýtt Ísland
Ég er með hugmynd að nýju Íslandi sem fælust í eftirfarandi aðgerðum;
1. Stjórnarskránni breytt þannig að forsetinn fengi aukinn völd og hann veldi síðan ríkisstjórn og væru ráðherrar utan þings. Ráðherrar verði aldrei fleiri en 7.
2. Þingmönnum verði fækkað í 33 og störf aðstoðarmanna þeirra lögð niður og einnig störf aðstoðarmanna ráðherra.
3. Öll fríðindi ráðherra yrðu tekin burt. ráðherrar yrðu að sætta sig við að aka eigin bifreið til og frá vinnu, eins og aðrir launþegar. Einnig hætti ríkið að greiða flokkunum ákveðna fjárhæð á hverju ári.
4. Hámarkslaun á Íslandi yrðu aldrei meiri en ein milljón á mánuði. Þeir sem færu yfir það yrðu skattlagðir um 95% af þeirri upphæð sem væri umfram.
5. Hætt verði að eyða peningum í rannsókn á orsökum bankahrunsins. Þetta er búið og gert og ástæðulaust að eyða stórfé til þess eins að kannski væri hægt að sakfella einhvern.
6. Hætt verði við byggingu tólistarhússins
7. Allar aflaheimildir verði innkallaðar og tvöfaldaðar og ríkið leigi þær síðan út gegn 10% af aflaverðmæti. Þetta gæti skapað hátt í 10 þúsund störf og leigutekjur ríkisins yrðu um 10 milljarðar til biðbótar þeim sköttum sem öll þessi störf myndu skila í ríkissjóð. Þar með væri atvinnuleysi útrýmt, sem sparaði ríkinu mikið fé. Þetta myndi þýða það að leigutekjur sem nú renna í vasa einkaaðila færu til ríkisins. Ekki þurfti að greiða núverandi handhöfum aflaheimilda bætur, þar sem útgerðin fengi aukin kvóta og auknar tekjur.
8. Öllum vegaframkvæmdum yrði frestað í 2-3 ár.
9. Sinfóníuhljómsveitin yrði lögð niður og rekstur RÚV skertur um 50%
10. Sendum úr landi alla erlenda fanga sem eru á Litla-Hrauni.
11. Lögleiðum hass og marijúana og spörum þannig stórfé, við tollgæslu og eftirlit.
12. Leggjum niður embætti Ríkislögreglustjóra og þau störf sem þar hafa verið unnin færist til Lögreglustjórans í Reykjavík.
13. Frestum byggingu á nýju sjúkrahúsi í Reykjavík og leyfum læknum sem starfa á ríkisspítölum að reka jafnframt eigin læknastofur, sem myndi létta verulega á spítölunum.
14. Fiskistofa skal lögð niður og verkefni hennar færð undir sjávarútvegsráðuneytið.
15. Allar eftirlitsstofnanir á vegum ríkisins verði lagðar niður og verkefni þeirra boðin út til einkaaðila.
16. Byggja strax álver í Helguvík og á Bakka við Húsavík.
17. Stórauka hvalveiðar. Veiða a.m.k. 500 hrefnur og 1.000 stórhveli.
Með þessu gætum við sparað nokkra tugi ef ekki hundruð milljarða og ríkissjóður yrði rekinn hallalaust. Með þessum aðgerðum yrðum við fljót að vinna okkur út úr kreppunni sem Ísland er nú í. Þegar ástandið lagast getum við farið að huga að framkvæmdum á ný. Nýtum öll tækifæri til að spara peninga hjá ríkinu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2009 | 11:47
Rétt eða rangt
Lið Fljótsdalshéraðs tapaði sem kunnugt er fyrir liði Kópavogs í lokaþætti Útsvars sl. föstudag. Munaði fimm stigum á liðunum. En margir velta nú fyrir sér hvort það hafi verið rétt ákvörðun hjá dómaranum að gefa rangt fyrir svar Héraðsbúa við spurningu um berserkina Halla og Leikni sem hraunið á Snæfellsnesi er kennt við.
Það skiptir engu máli hvort dómarinn gaf rétt eða rangt í keppninni. Til að svona keppni standi undir nafni verður dómarinn að hafa allsherjarvald og hans úrskurður á að gilda, hvort sem hann er réttur eða rangur. Enda hefur lið Fljótsdalshéraðs ákveðið að gera ekkert í málinu og er því þar með lokið.
![]() |
Var Víga-Styrs saga rétt svar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Arnfirðingur
- Bíldudalur
- Bolungarvík
- Bæjarins besta á Ísafirði
- Guðrún Rebekka Jakobsdóttir Edinborg
- Falið vald
- Flateyri
- Frjálslyndi flokkurinn
- Ísafjörður
- Júdit Krista Jakobsdóttir, Bíldudal
- Kristinn Ásgeirsson, Danmörku
- Kristinn H. Gunnarsson
- KVÓTASVINDLIÐ MITT
- Mats Wibe Lund
- Óvinir Ísland
- Skipamyndir Þorgeir Baldursson ljósmyndari
- Suðureyri
- Strandabyggð
- Súðavík
- Tálknafjörður
- Tíðis-fréttavefur
- Vesturbyggð
- VÍSIR.IS
SKIPAMYNDIR
- Fiskistofa Ýmsar upplýsingar
- Gísli Reyisson Aflafréttir
- Hafþór Hreiðarsson Skipamyndir
- Ragnar í Grindavík Skipamyndir
- Skip.is Ýmsar upplýsingar
- Þorgeir Baldursson SKIPAMYNDIR
- http://
Bloggvinir
-
Adda bloggar
-
Ágúst H Bjarnason
-
Albertína Friðbjörg
-
Alma Jenny Guðmundsdóttir
-
Anna
-
Anna Guðný
-
Anna Heiða Stefánsdóttir
-
Anna Pálsdóttir! :)
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Apamaðurinn
-
Arinbjörn Kúld
-
Ásgerður Jóna Flosadóttir
-
Arnlaugur Helgason
-
Arnþór Helgason
-
Ársæll Níelsson
-
Ásdís Rán
-
Ásgeir Jóhann Bragason
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásgeir Sveinsson
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Baldur Smári Einarsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Birna M
-
Bjarney Bjarnadóttir
-
Bjarni Baukur
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bjarni Kjartansson
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Bjarki Þór Guðmundsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Björgvin S. Ármannsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Björn Leví Gunnarsson
-
Björn Finnbogason
-
Bragi Sigurður Guðmundsson
-
Bragi Sigurðsson
-
Hommalega Kvennagullið
-
Bwahahaha...
-
Davíð Pálsson
-
Davíð S. Sigurðsson
-
Didda
-
Dunni
-
Edda Agnarsdóttir
-
Edda Sveinsdóttir
-
Eggert Þór Aðalsteinsson
-
Egill Jón Kristjánsson
-
egvania
-
Einar B Bragason
-
Einar Kristinn Guðfinnsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eiríkur Sjóberg
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Emil Örn Kristjánsson
-
J. Einar Valur Bjarnason Maack
-
Elín Margrét Guðmundsdóttir
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
-
FF
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Faktor
-
Fannar frá Rifi
-
Finnur Bárðarson
-
Fjarki
-
Friðrik Höskuldsson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Georg Birgisson
-
Gestur Guðjónsson
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnar Þór Ólafsson
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðjón Ó.
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Guðmundur Zebitz
-
Guðni Gíslason
-
gudni.is
-
Guðrún Hafdís Bjarnadóttir
-
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðrún Helgadóttir
-
Guðrún S Hilmisdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Sigurðsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Haffi
-
Hafrún Kristjánsdóttir
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
-
Halla Rut
-
Halldór Sigurðsson
-
Halldór Örn Egilson
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Heiður Helgadóttir
-
Helga Dóra
-
Helga Sigrún Harðardóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Himmalingur
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
hilmar jónsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjalti Sigurðarson
-
Hjartagullin mín
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Hlekkur
-
Huld S. Ringsted
-
Hólmdís Hjartardóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
hreinsamviska
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Hörður Halldórsson
-
Hörður Hilmarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Kristinsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Jens Sigurjónsson
-
Jóhannes Jónsson
-
Jóhanna Fríða Dalkvist
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jón Baldur Lorange
-
Jón Halldór Eiríksson
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Finnbogason
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Kama Sutra
-
Karl Tómasson
-
Karl V. Matthíasson
-
Katrín
-
Kjarri thaiiceland
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristinn Sigurjónsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Kristján Pétursson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Lilja Skaftadóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Lýður Árnason
-
Maddý
-
Magnús Þór Friðriksson
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Marinó Hafnfjörð Þórisson
-
Magnús H Traustason
-
Marinó Már Marinósson
-
Marzellíus Sveinbjörnsson
-
Morgunblaðið
-
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Natan Kolbeinsson
-
Níels A. Ársælsson.
-
Ólafía Margrét Guðmundsdóttir
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Tryggvason Þorsteinsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólafur Tryggvason
-
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
-
Ólöf de Bont
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Paul Nikolov
-
Páll Höskuldsson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
percy B. Stefánsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Borgþórs
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Ragnhildur Jónsdóttir
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Regína R
-
Ruth
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Rögnvaldur Þór Óskarsson
-
Samtök Fullveldissinna
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigríður Hafdís Þórðardóttir
-
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir
-
Sigurður Haukur Gíslason
-
Sigurður Jón Hreinsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Snorri Bergz
-
Sigurjón Sveinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinþór Ásgeirsson
-
Svartagall
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sólveig Aradóttir
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
TARA
-
Tiger
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valbjörn Júlíus Þorláksson
-
Valdimar Leó Friðriksson
-
Valan
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Viggó H. Viggósson
-
Vilborg Auðuns
-
Þórbergur Torfason
-
ÞJÓÐARSÁLIN
-
Þórhallur Heimisson
-
Þórhallur Pálsson
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Þórir Kjartansson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Jóhannesson
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Jón V. Þorsteinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 802076
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 24.1.2010 Jakob Kristinsson er látinn.
- 21.1.2010 Spakmæli dagsins
- 21.1.2010 Obama
- 21.1.2010 Icesave
- 21.1.2010 Mótmælendur ákærðir
- 21.1.2010 Norwegian
- 21.1.2010 Kaninn og RÚV
- 21.1.2010 Látinn laus
- 21.1.2010 Kína
- 21.1.2010 Hvað vill félagsmálaráðherra?
198 dagar til jóla
Nýjustu færslurnar
- Hlutfall landsmanna á endurhæfingarlífeyri tvöfaldast
- KANNSKI VÆRI ÞARNA KOMIÐ "BESTA VERKFÆRIÐ" Í BARÁTTUNNI VIÐ VERÐBÓLGUNA.....
- Ísrelsher kemur Gretu Tumberg og öðrum aðgeðarsinnuum til hjálpar
- Hjúkrunarfræðingarnir höfðu sigur
- Vinslit ekki af ástæðulausu
- Kristrún, Keir Starmer og vók-orðræðan
- Skírnarhátíð, uppskeruhátíð heiðin og sumarfögnuður, það eru fyrstu hugmyndirnar sem rekja má fimmtugshátíð, hvítasunnuna aftur til. Kannski Esusarblót, sem sólarguðs.
- Bæn dagsins...
- Ultimate Guide to Lookah Dab Pens
- Amerísk fasistaskyggni fyrir Grindavík?