Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Spakmæli dagsins

Fegurð er ekki dýrðardagur

Né dásemd nein er fjöldinn sér,

Því hverjum þykir sinn fugl fagur,

hve fáránlegur sem hann er.

(Egill Jónsson)


SPRON

Fulltrúar Føroya banka ræða við skilanefnd SPRON í dag.Fulltrúar frá Føroya banka munu í dag ræða við skilanefnd SPRON um hugsanleg kaup á tilteknum eignum sparisjóðsins. Samkvæmt heimildum mbl.is koma þeir til landsins til viðræðnanna í dag. Meðal eigna SPRON sem eru til sölu eru útibú. Skila á bindandi tilboðum um helgina.

Þetta lýst mér vel á og við ættum að selja Færeyingum, sem oft hafa reynst okkur vel á erfiðum tímum.


mbl.is Eignir SPRON freista Føroya banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðurkenna mistök

Landsfundargestir á fundi Sjálfstæðisflokksins. „Sjálfstæðisflokkurinn ber óhjákvæmilega mikla ábyrgð á þeim mistökum sem voru gerð í landsstjórninni,“ sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og formaður Endurreisnarnefndar Sjálfstæðisflokksins, þegar hann kynnti niðurstöður nefndarinnar á landsfundi flokksins.

Það var mikið að talsmenn flokksins viðurkenndu eigin mistök og Geir H. Haarde bað íslensku þjóðina afsökunar á þessum mistökum í setningarræðu sinni í gær.  Fram til þessa hefur ekki verið nokkur leið að fá Geir til að viðurkenna að nokkur mistök hafi verið gerð.  En Geir er nú á leið til Hollands í læknismeðferð.

Ég segi því ; Batnandi mönnum er best að lifa.


mbl.is Mistökin Sjálfstæðisflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aflaheimildir í sjálfheldu

Nú er svo komið að aflaheimildir á Íslandsmiðum og hafa verið úthlutað til útgerðarmanna er komin í sjálfheldu.  Það sem ég á við að fyrir um ári síðan var verð á óveiddu kílói af þorski verðlagt á krónur 4.000,- og leiguverð, krónur 250,- á kíló.  Bankarnir voru ósparir til að lána bæði fyrir kaupum og leigu miðað við þessi verð.  Handhafar veiðiheimildanna veðsettu þær í botn og var þá miðað við þessi verð.  Nú hefur þetta allt hrunið með bönkunum og í dag er ekkert viðmiðunarverð, þar sem enginn viðskipti hafa átt sér stað.  Nokkur viðskipti hafa þó verið á leigu markaðnum en þá hefur leiguverð á óveiddum þorski verið 160-170 krónur. á kíló.  Nú sitja margar útgerðir uppi með mikil lán vegna kvótakaupa en geta ekkert selt frá sér, því engin kaupandi er til staðar.  Ég hef frétt af einum viðskiptum og þar var kílóið af óveiddum seldur á krónur: 1.500,- og ég veit að boðið hefur verið í óveiddan þorsk krónur. 1.000,- fyrir kílóið.  En lánin sem voru tekin þegar verið var hæst liggja ógreidd í bönkunum og safna vanskilum.  Það kann svo að fara að stór hluti aflaheimilda í lögsögu Íslands verði komin í eigu bankanna og þar með ríkisins.  Útgerðin hefur vissulega orðið fyrir áföllum sem hafa gert henni ókleyft að greiða af þessum lánum, það kom upp sýking í síldinni, engin loðnuvertíð var og verð á erlendum mörkuðum lækkuðu og aukin birgðasöfnun varð hér heima, sem hefur lækkað verð á fiski til útgerðar.  Ég veit um skip sem selt var með öllum aflaheimildum milli staða hér á landi.  Söluverðið var tveir miljarðar, þessu skipi hefur gengið vel að fiska hjá hinum nýju eigendum og alltaf selt fiskin þar sem verð var hæðst á hverjum tíma.  Þ.e. á innlendum fiskmörkuðum og erlendum fiskmörkuðum.  Samt hefur heildaraflaverðmætið aldrei farið yfir 200 milljónir á ári.  Sem þýðir að allt aflaverðmæti skipsins dugar ekki fyrir vöxtum af þeim lánum sem tekin voru þegar skipið var selt.  Þá er eftir að greiða allan útgerðarkostnað, eins og laun, olíu, veiðarfæri, ofl.  Af þessu má sjá hvað þetta var orðið glórulaust á sínum tíma.

Karfakvóti

Mynd 493928 Heimilt verður að veiða rúmlega 21 þúsund lestir af úthafskarfa árið 2009, samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins. Þetta er sami kvóti og árið 2008.

Til hvers er verið að gefa út kvóta á þennan fisk, ef ég man rétt þá hefur ekki tekist að veiða kvótann að fullu undanfarin ár.


mbl.is Kvóti úthafskarfa óbreyttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DA-Samtökin

Mynd 493898DA-samtökin, Debtors Anonymous eða nafnlausir skuldarar, efna til kynningar á starfsemi samtakanna í næstu viku. DA-samtökin hafa starfað í nokkur ár en þau byggja á 12 spora kerfi líkt og AA-samtökin. Þeir sem leita aðstoðar hjá DA-samtökunum eru oft mjög djúpt sokknir í skuldafen og finnst að lifið sé orðið óviðráðanlegt.

Þetta lýst mér mjög vel á og mun örugglega hjálpa mörgum.  En það er alveg það sama með þennan vanda og ágengisvandamálin hjá mörgum að árangur næst ekki nema fullur vilji sé fyrir hendi.  Ég þekki þetta mjög vel því ég hafði farið í 4 áfengismeðferðir á jafn mörgum stöðum, sem litlu skiluðu.  En svo ákvað ég bara einn daginn að nú væri komin nóg og hætti að smakka vín.  Verða í vor komin 3 ár síðan ég hætti einn og óstuddur.  Það hefur að vísu komið fyrir 1-2 tilfelli sem ég hef fallið en þá stendur maður bara sterkari upp aftur og er enn ákveðnari.


mbl.is Gegn skuldasöfnunaráráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn

Frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins leggur til að gengið verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort ganga eigi til viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. Kristján Þór Júlíusson, formaður nefndarinnar, sagði á landsfundi flokksins að það sé tálsýn að halda að hægt verði að taka upp evru á næstunni.

Næstur í ræðustól mun hafa verið Björn Bjarnason fv. dómsmálaráðherra og lýsti hann yfir eindregni andstöðu við aðild að ESB, það sama gerðu Pétur H. Blöndal og Árni Sigfússon, sem var annar af formönnum í hinni svokallaðri Evrópunefnd flokksins en hinn formaðurinn var Kristján Þór Júlíusson.  Einn fundarmanna mun hafa lagt til að Evrópumálin yrðu tekin af dagskrá fundarins en sú tillaga var kolfelld.

Það kæmi mér ekki á óvart að annað hvort verði þessi Evrópumál lögð til hliðar eða flokkurinn klofnar, sem væri auðvitað hið besta mál. 

Þá yrði Bjarni Benediktsson formaður í þeim hlutanum sem ekki vill aðild að ESB og Kristján Þór Júlíusson yrði formaður í þeim hluta sem vildi skoða aðild að ESB.

Það er auðvitað augljóst að þetta mál er mikið vandræðabarn hjá Sjálfstæðisflokknum og verður það allt landsþingið.


mbl.is Evra ekki í sjónmáli næstu ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný skoðanakönnun

Nú hefur verið birt ný skoðanakönnun um fylgi stjórnmálaflokkanna.  Það sem vekur athygli er að enn mælist Samfylkingin stærsti flokkurinn með yfir 30%.  Næst koa svo VG með um 27% og Sjálfstæðisflokkurinn, sem alltaf hefur verið stærstur er nú í 3. sæti með um 26%.  og Framsók er svo með um 7%.   Þetta hlýtur að valda fulltrúum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins miklum áhyggjum.  Það skyldi nú ekki vera að stefnan í Evrópumálunum ráði þarna einhverju?

ESB

Bjarni Benediktsson Bjarni Benediktsson alþingismaður sem hefur lýst yfir framboði til formanns Sjálfstæðisflokksins sagði í umræðum um ályktun um Evrópumál að Samfylkingin hefði einangrað sig í Evrópumálum. 

Má þá ekki alveg eins segja að Sjálfstæðisflokkurinn hefði einangrað sig í andstöðu við aðild að ESB.  Það er nokkuð ljóst að mikið verður tekist á um skýrsluna um ESB, sem var lögð fyrir þingið.  Ragnheiður Ríkharðsdóttir hefur sagt að leyfa ætti þjóðinni að kjósa um hvort ætti að fara í viðræður um aðild. 

Ég er hræddur um að frá þessum landsfundi komi einhver málamynda moðsuga um Evrópumálin og svo loðin að hana muni ekkert venjulegt fólk mun skilja.  Það hlýtur að vera krafa kjósenda að fá á hreint í eitt skipti fyrir öll, hver er stefna Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum.  Það er lýðræðisleg krafa um að kjósendur í þessu landi fái að kjósa um þetta mál.  Meira að segja VG, sem hafa verið harðir í andstöðu sinni við aðild að ESB hafa samþykkt að þjóðin ætti að fá að kjósa um þetta mál.


mbl.is Bjarni Ben: Við viljum vera fyrir utan ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsfundur

Nú stendur yfir landsfundur Sjálfstðisflokksins undir kjörorðinu "Göngum hreint til verks" en fyrir skömmu síðan var VG með sinn landsfund undir kjörorðinu:  "Vegur til framtíðar".  Nú er ég að velta því fyrir mér hvort Sjálfstæðisflokkurinn ætli að nota veg VG á sinni göngu, eða ganga fram af fólki.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband