Innflytjendur

Tónlistarmaðurinn Noel Gallagher hefur áhyggjur af ástandinu í heimalandinu og bresku þjóðinni. Segir hann að „Skíthælar vopnaðir hnífum séu að taka yfir Bretland."

Svo er verð að ráðast á Frjálslynda flokkinn og kalla menn þar rasista þegar talsmenn flokksins hafa verið að benda á að við yrðu að fara varlega hverjum við hleyptum inn í okkar land.  Nú hefur sjálfur ríkislögreglustjóri bent á þá hættu sem komin er hingað þ. e. innflutningur á glæpamönnum og hann fullyrðir að í undirheimunum séu íslenskir glæpamenn gengnir til liðs við hina erlendu og talar um aukna hörku í afbrotum hér á landi.  Þetta ástand sem tónlistarmaðurinn er að tala um er líka til staðar á Norðurlöndunum.


mbl.is Gallagher: Skíthælar að yfirtaka Bretland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki alltaf slæmt að vera öryrki

Nú er nokkuð ljóst að góðærið sem verið hefur hér í mörg ár er búið og framundan eru gjaldþrot fyrirtækja og sameiningar, sem þýða uppsagnir á fólki.  Allt launaskrið er úr sögunni í bili og jafnvel atvinnuleysi hjá fjölda fólks.  Þeir sem, áður áttu auðvelt með að fá milljón á mánuði verða nú að sætta sig við að vinna eftir umsömdum launatöxtum.  Milljónin eða ein kúla eins og talað er um í dag í laun á mánuði verður kannski að 200-300 þúsund, og í haust má búast við að talsvert margir verði komnir á atvinnuleysisbætur en þær eru í dag kr. 136.023,- á mánuði fyrir hvern einstakling og svo er greitt kr. 7.550,- fyrir hvert barn sem viðkomandi hefur á framfæri.  Þannig að hjón með tvö börn gætu fengið í heildina kr. 287.146,- á mánuði og síðan er tekinn af þessu skattur 35,72% = kr. 103.568,- og 4% í lífeyrissjóð kr:11.485,- er því útborgað kr: 172.083,-.  Ég er hræddur um að margir eigi erfitt með að aðlaga sig að þessu og lífið verði erfitt hjá mörgum og fólki finnist það ekki geta veitt sér eitt eða neitt.  Sem sagt hörmungarlíf og Visareikningar munu hrúgast upp ógreiddir og yfirdráttarlán verða óviðráðanleg.  Því miður er þetta sú framtíð sem blasir við mörgum í haust og næsta vetur.

Það er annað mál með okkur öryrkjana, við erum vön svona lífi að hafa ekki efni á einu né neinu og í byrjun hvers mánaðar verður að gera fjárhagsáætlun og velta hverri krónu vel fyrir sér áður en henni er eytt.  Ég t.d. hef ekki getað keypt mér ný föt, skó eða annað síðan ég varð öryrki eða farið út að borða.  Að ég talin nú ekki um ferðalög eða einhverjar skemmtanir, sem kostar peninga.  Allt verður að skera niður en það er þó huggun harmi gegn að þetta venst en tekur samt þó nokkur tíma.  Ég var svo heppinn (ef heppni má kalla) að lenda í slysi út á sjó, sem gerði mig að öryrkja og fékk því talsverðar slysabætur og gat keypt mér íbúð og bíl og átti talsverðan varasjóð eftir, en þar sem ég var vanur góðum tekjum sem vélstjóri á fiskiskipum tók það mig næstum heilt ár að venjast þessu nýja lífi þ.e. sem öryrki svo varasjóðurinn var fljótur að fara.  En nú er ég orðinn nokkuð sjóaður í þessu og lifi þokkalegu lífi.  Það er svo margt sem breytist, nú hirði ég t.d. tóma kókdós eða gosflösku, sem einhver hefur kastað frá sér en hér áður datt mér það ekki í hug heldur kastaði slíku í ruslið.  En hver dós er 10,- króna virði í endurvinnslu.  Þótt ég tali um að ég lifi þokkalegu lífi er ekki þar með sagt að ég sé ánægður með það eða sáttur við mitt hlutskipti í lífinu í dag.  En ég get bara akkúrat ekkert gert til að breyta því og því sem maður getu ekki breytt verður ma'ður einfaldlega að sætta sig við.

Nú má enginn taka þessi skrif mín þannig að ég sé ánægður yfir því að fólk skuli missa vinnuna eða lækka í launum, þvert á móti er ég bara að benda á staðreyndir sem blasa við. Atvinnulaust fólk hefur þó það fram yfir okkur öryrkjana að það hefur það sem er dýrmætast af öllu, sem er góð heilsa.


Mótmæli

Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar Tveir karlmenn hlupu út á flugbrautina við Flugstöð Leifs Eiríkssonar í morgun. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum óskuðu öryggisverðir eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja mennina. Lögregla segir brotið alvarlegt og að refsing geti varðað allt að sex ára fangelsi.

Voru mennirnir ekki bara að mótmæla meðferðinni á flóttamanninum frá Kenía, sem var rekinn úr landi í morgun.


mbl.is Hlupu út á flugbrautina á Keflavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísbjarnarmálið

Ísbjörninn að HrauniLöng grein birtist í franska dagblaðinu Le Monde í dag um ísbjarnamálið hérlendis í júní. Talað er við sérfræðinga á ýmsum sviðum, til dæmis danska yfirdýralækninn sem kom vegna seinni ísbjarnarins, Carsten Grondahl, umhverfisráðuneytið og Þór Jakobsson á Veðurstofu Íslands.

 Þeir ætla að vera lífseigir á síðum blaða víða um heim þessir tveir ísbirnir sem hér birtust öllum að óvörum.  Mér finnst komið nóg af þessu kjaftæði, það er búið að skjóta báða þessa birni og þeir liggja steindauðir einhverstaðar í frystiklefa.  Þannig að ég sé ekkert fréttnæmt við þetta mál lengur og ef fleiri birnir koma á bara að skjóta þá strax, því þetta eru stórhættuleg rándýr, sem hika ekki við að éta einn og einn mann ef þeir eru svangir.


mbl.is Ísbjarnarmálið í Le Monde
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sígaunar

Ítölsk yfirvöld eru byrjuð að taka fingraför af tugþúsundum sígauna sem búa í tjaldbúðum á víð og dreif um landið. Skiptir engu máli hvort um er að ræða fullorðna eða börn. Láta yfirvöldin ásakanir mannréttindasamtaka um kynþáttafordóma sem vind um eyru þjóta. Um 700 tjaldbúðir hafa verið reistar á Ítalíu, flestar í kringum Róm, Mílanó og Napólí.

Hvað hefur þetta aumingja fólk til saka unnið annað en að en að vera sígaunar.  Og hvert á þetta fólk að fara, það á hvergi heima og ekkert föðurland.  Hversvegna var talið sjálfsagt á sínum tíma að reka Palestínumenn úr sínu eigin landi því Gyðingum vantaði land en Sígaunar eru reknir úr einu landinu í annað m.a. frá Íslandi, þótt þeir hefðu komið hingað sem ferðamenn.  Það er eins og þeir séu allstaðar fyrir. 

En hvað hafa þeir gert til að verðskulda svona meðferð.  Ég bara skil þetta ekki því miður.


mbl.is Vilja reka sígauna úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin

Nú hefur Samfylkingin náð því að verð með jafn mikið fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn á landsvísu eða um 30% hvor flokkur.  Hinsvegar styðja núna ekki nema 52% ríkisstjórnina en voru um 80% í byrjun.  Jóhanna Sigurðardóttir er langvinsælasti ráðherrann og þess vegna væri það brjálæði af forustumönnum Samfylkingar að láta sér detta í hug að láta hana hætta sem ráðherra þegar kemur að því að Samfylkingin á að fá stól forseta Alþingis, en það á að ske á miðju kjörtímabilinu samkvæmt stjórnarsáttmálanum.  Flokkurinn hlýtur að eiga góðan þingmann til að setjast í þann stól.  Hvað veldur þessari miklu fylgisaukning Samfylkingar er ekki auðvelt að útskýra en hitt er deginum ljósara að fylgið getur verið fljótt að fara við minnstu misstök.  Þess vegna verða forustumenn flokksins að fara varlega í störfum sínum.  Umhverfisráðherrann er orðin umdeildur og nær væri að setja hana í forsetastól Alþingis frekar en Jóhönnu.  Ef Jóhanna fer úr ríkisstjórninni er fylgið farið í fyrra horf ef ekki neðar.

Ekki sama hver er

Nú eru íslensk stjórnvöld búinn að senda flóttamanninn frá Kenia úr landi og var umsókn hans um dvalarleyfi hafnað og hann sendur til Ítalíu og verður örugglega sendur þaðan heim til sín, þar sem fangelsi bíður hans ef ekki líflát.  Manngreyið hafði ekkert brotið af sér nema það eitt að taka átt í stjórnmálum í sínu heimalandi sem eru auðvitað sjálfsögð mannréttindi. 

Það skrýtna við þetta mál er að hann á eiginkonu hér á landi og nýfæddan son og ekkert tillit er tekið til þess, við að aðskilja þessa fjölskyldu.  Svo erum við íslendingar að taka á móti hátt í 100 flóttamönnum á næstu tveimur árum.  Hvað er það sem gerir þá flóttamenn hæfari til að verða íslenskir ríkisborgarar umfram þennan mann.  Hann á þó talsverð tengsl við landið og hefur unnið með Íslendingum í þróunarstarfi í Afríku og sinnt því vel.

Þessi brottvísun er íslenskum stjórnvöldum til skammar og í ljósi þessa finnst mér ekki koma til greina að taka á móti öðrum flóttamönnum.  Það átti að bjóða þennan mann velkomin til landsins og síðan verður að fara að leysa vandamál þess fólks sem dvelur í flóttamannabúðunum Njarðvík á vegum Rauða-krossins.  Þá fyrst getum við farið að hugsa um að taka á móti öðrum flóttamönnum, fyrr ekki.

Hver ber ábyrgð á þessari andskotans vitleysu?  Er ástæðan ef til vill sú að íslenskum stjórnvöldum er alveg sama um mannréttindi br. kvótakerfið?


Fyrsta vígslan hjá samkynhneigðum

Katrín Þóra Víðisdóttir og Erla Björk Pálmadóttir við...Kærustuparið Katrín Þóra Víðisdóttir og Erla Björk Pálmadóttir verður fyrsta parið sem vígt verður í staðfesta samvist í íslenskri kirkju eftir að ný lög sem heimila slíkt tóku gildi 27. júní sl. Athöfnin verður í Melstaðarkirkju í Miðfirði í dag.

Það er ástæða til að óska samkynhneigðum til hamingju  og ekki síst þessu pari, sem hér ríður á vaðið.  Nokkuð vís er að fleiri muni fylgja í kjölfarið.

Við verðum að hætta að líta á samkynjað fólk sem eitthvað 2. flokks fólk en það hefur íslenska kirkjan gert alltof lengi því miður.  Ég hef heyrt marga og þá sérstaklega eldri karlmenn, sem telja að samkynhneigð sé einhver tískubóla.  En staðreyndin er bara sú að fólkið fæðist svona.  Alveg eins og sumir eru fæddir ljótir en aðrir fallegir og sumir eru litlir en aðrir stórir.  Svona er bara lögmál náttúrunnar og því breytir enginn.


mbl.is Fyrsta samkynhneigða parið giftist í kirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt í innflutningi

Nú eru fluttir inn í stórum stíl glæpamenn frá fyrrum austurtjaldslöndunum og hreiðra um sig hér.  Margir af þeim Eistum og Lettum, sem hafa verið handteknir fyrir innflutning á eiturlyfjum eru yfir sig hamingjusamir ef þeir verða handteknir og vistaðir á Litla-Hrauni.  Ég frétti af mönnum þar sem voru mjög ánægðir.  Þeir fengju frítt húsnæði og fæði.  Einnig gætu þeir unnið og safnað saman einhverjum peningum til að senda heim.  Þetta gæti ekki verið betra.

Nú vaknar sú spurning hvers vegna íslenskir skattgreiðendur þurfi að greiða fyrir þessa glæpamenn og af hverju er þeim ekki vísað úr landi og sendi heim til sín.  Höfum við ekki nóg með okkar íslensku glæpamenn.  Fyrir þessa erlendu aðila er áhættan engin þótt þeir taki að sér að smygla hingað eiturlyfjum.  Þeim finnst bara betra ef þeir eru handteknir.

Svo er fólk undrandi á að eiturlyf flæði inn í landið.  Nein burt með þetta lið úr landinu sem allra fyrst.  Því fyrr,  því betra.


Aumingja krónan


Krónan veiktist í dag um 0,7%. Gengisvísitala krónunnar var 159,40 í morgun en er nú 160,50. Velta á millibankamarkaði var 38,1 milljarðar. Gengi Bandaríkjadollars er 79,42 krónur, gengi breska pundsins 158,30 krónur og gengi evru er 125,34 krónur.

Ég er farinn að vorkenna aumingja krónunni, hún er alltaf að veikjast meir og meir. Bara spurning hvenær andlátið kemur og útförin.


mbl.is Krónan veiktist í dag um 0,7%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband