Femínistar

Erkibiskupinn af París var valinn karlremba ársins. Hópur franskra femínista verðlaunaði í dag erkibiskupinn af París sem „Karlrembu ársins“ fyrir þau ummæli sín að það væri ekki nóg fyrir konur að vera í pilsi, heldur þyrftu þær líka „eitthvað á milli eyrnanna.“

Gott hjá þeim , því þessi ummæli eru auðvitað fyrir neðan allar hellur. 


mbl.is Franskur biskup hlýtur karlrembuverðlaun ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinaþjóðir

Kolbrún Halldórsdóttir. Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra, situr nú fund samstarfsráðherra Norðurlanda. Í morgun var samþykkt að veita Íslendingum 11 milljóna danskra króna styrk, jafnvirði um 200 milljóna íslenskra króna. Styrkurinn kemur til með að nýtast íslenskum stúdentum við norræna háskóla.

Norðurlöndin ætla að reynast okkur vel og vera sannir vinir þegar á reynir.  Nú eru Danir t.d. komnir til Keflavíkurflugvallar og ætla að annast loftferðaeftirlit fyrir okkur og greiða meira að segja hluta af kostnaðinum.

Svo var Ólafur Ragnar Grímsson að skamma sendiherra þessara landa eins og frægt var.  Hann taldi þessar þjóðir ekki vinaþjóðir lengur og við þyrftum að leita að nýjum vinum.


mbl.is Norrænu þjóðirnar styrkja íslenska stúdenta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Staurblönk

Lily Allen Breska söngkonan Lily Allen segist vera staurblönk þrátt fyrir að hafa selt milljónir hljómplatna í gegnum tíðina. Er svo illa komið fyrir Allen fjárhagslega að hún sér fram á að neyðast til þess að selja BMW bifreið sína sem metin er á 35 þúsund pund, 5,6 milljónir króna.

Aumingja konan að þurfa að selja bílinn sinn á aðeins 5,6 milljónir.  Ætli verði ekki bara að hrinda af stað söfnun fyrir hana svo hún getti keypt sér bíl og eigi fyrir mat.  Ég hef virkilega samúð með svona fólki.


mbl.is Segist vera staurblönk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atvinnulausir

 Fulltrúar frá Ísafjarðarbæ, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga, Félagi opinberra starfsmanna á Vestfjörðum og Félagi járniðnaðarmanna á Ísafirði undirrituðu í dag samkomulag sem auðveldar atvinnulausum aðgang að líkamsrækt í sveitarfélaginu. Samkomulagið felur í sér að stéttarfélögin greiða 50% af kostnaði við sundkort/líkamsræktarkort á móti Ísafjarðarbæ sem á móti gefur 50% af kostnaði við kortið. Samningurinn gildir úr árið.

Hverskonar andskotans bull er þetta?  Má ekki bara segja að allir atvinnulausir fái frítt í líkamsrækt og sund., frekar en að vera með svona langlokum um hver greiðir hvað.


mbl.is Atvinnulausum boðið í ræktina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vændi

Mynd 428972 Sextán samtök skora á stjórnvöld að leggja bann við kaupum á vændi. Segir í áskorun þeirra að því bera að fagna að enn einu sinni er komið fram á Alþingi frumvarp um að banna kaup á vændi.

Þetta mál er dæmigert fyrir mikinn flýtir á afgreiðslu mála á Alþingi og þingmenn hafa ekki nennt að kynna sér vel.  Það stóð til á sínum tíma að banna vændi á Íslandi og var lagt fram frumvarp þess efnis.  En frumvarpið var nú ekki betur unnið en svo að í stað þess að banna vændi var það gert löglegt.

Ég ætla að vona að það takist betur til núna, því auðvitað á að banna vændi á Íslandi.


mbl.is Skora á stjórnvöld að leggja bann við vændiskaupum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menntamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun frumvarp til laga um úthlutun listamannalauna. Miðar frumvarpið að því að fjölga þeim mánuðum sem listamönnum standa til boða, úr 1.200 í 1.600, á þremur árum. Hins vegar verði launin ekki hækkuð.

Hún Katrín Jakobsdóttir er að ger góða hluti í Menntamálaráðuneytinu.  Greinilega rétt kona á réttum stað.  Svo er hún líka að vinna að breytingum á Lánasjóði Íslenskra námsmanna sem verða til mikilla bóta.

Vonandi að hún haldi þessu embætti eftir kosningar.


mbl.is Leggur til breytingar á listamannalaunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aukin störf

Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi. Ríkisstjórnin hefur samþykkt viðtækar tillögur í atvinnumálum, sem ætlað er að skapa ríflega 4000 ársverk á næstu misserum. Um er m.a að ræða störf í byggingariðnaði, við byggingu snjóflóðavarnagarða og gróðursetningu og grisjum.

Ætlar svo einhver að halda því fram að Jóhanna Sigurðardóttir standi sig ekki vel sem forsætisráðherra.


mbl.is Ætla að skapa 4000 ársverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur J. Sigfússon

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra styður ekki fjárfestingarsamning iðnaðarráðherra við Norðurál í Helguvík og segir hann arf frá fyrri ríkisstjórn. Hann á ekki von á því að neinn þingmaður VG greiði atkvæði með samningnum en vill ekki svara því hvort þeir greiði atkvæði gegn honum. 

Þetta viðhorf Steingríms á eftir að breytast að loknum kosningum og líka aðild að ESB, þegar ný vinstri stjórn verður mynduð.  Stjórnmálamenn tala alltaf öðruvísi fyrir kosningar en eftir.  Það segir sagan okkur.


mbl.is Steingrímur á móti Helguvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin

 

 Mynd 492245Fylgi Samfylkingar eykst og mælist 30,5% samkvæmt könnun, sem MMR hefur gert á fylgi stjórnmálaflokkanna. Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist 29,3% og fylgi VG 22,7%. Rétt yfir helmingur svarenda segist styðja ríkistjórnina.

 

Nú verður Samfylkingin að spila rétt úr sínum málum og lýsa yfir að sömu flokkar og nú mynda ríkisstjórn muni gera það áfram eftir kosningar.  Það verður að sjá til þess að hér verði mynduð vinstri stjórn.  Sjálfstæðisflokkurinn hefur bara gott af því að vera í stjórnarandstöðu.  Hann er búinn að vera alltof lengi í ríkisstjórn og þingmenn flokksins hafa orðið værukærir og talið sjálfsagt að flokkurinn væri alltaf í ríkisstjórn.

         Nýja vinstri stjórn eftir kosningar, takk.


mbl.is Fylgi Samfylkingar eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arðrán hvala

Nú hefur Hafrannsóknarstofnun birt niðurstöður úr vísindaveiðum á hrefnu á árunum 2006 og 2007Þar kemur fram að hrefnan étur árlega um 300 þúsund tonn af þorski og ýsu.  En útgefnar aflaheimildir í þessum sömu tegundum eru samanlagt 250 þúsund tonn.  Í það heila er áætlað að hrefnan éti um milljón tonn af hinum ýmsu fisktegundum hér við land.  Þá er ótalið allt það sem hvalurinn étur.  Nú finnst engin loðna og ætli skýringin sé ekki sú að þessar skepnur eru búnar að éta hana upp.  Hvað ætlum við að berja lengi höfðinu í steininn og neita að viðurkenna staðreyndir?  Það er ljóst að á meðan þetta ástand er þá byggjast ekki upp neinir fiskistofnar hér við land.  Ætlum við virkilega að láta þessar skepðnur éta upp allar fisktegundir, sem mun þýða að fiskveiðar við Ísland munu heyrasögunni til.  Nei það verður að bregðast við þessu með því að stórauka veiðar á þessum skepnum.  Við höfum hreinlega ekki efni á að hafa þessar skepnur bara til að sýna ferðamönnum.  Auknar veiðar á þessum dýrum munu skapa mikla vinnu og gjaldeyristekjur, því það mun vera góður markaður fyrir hvalafurðir í Japan.

Eins og staðan er í dag skipta okkar veiðar engu máli.  Við náum ekki að veiða bara það sem hrefnan étur.

Hingað og ekki lengra það er komið nóg af þessu hvalarugli.


Bloggfærslur 6. mars 2009

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband