Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Kjarasamningar

Samningafundur vinnuveitenda Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins hefur verið boðaður hjá sáttasemjara í dag. Fundað var um helgina og eru samningamenn að sögn morgunfrétta RÚV bjartsýnir á að skriður fari að komast á viðræðurnar og að jafnvel verði skrifað undir nýjan kjarasamning í þessari viku.

Það væri óskandi að samningar næðust í vikunni og verður þá ástæða til að hrósa samningsaðilum beggja vegna borðsins.  Því ekki gerði ríkið eitt né neitt.


mbl.is Bjartsýnir samningamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein í viðbót af Hreppstjóranum

Eitt sinn var Hreppstjórinn að landa fiski úr nokkrum bátum og var á lyftara of auðvitað að flýta sér og allt í botni.  Hann tók fiskikörin við bryggjukantinn og færði þau til hliðar á bryggjunni áður en farið yrði með þau á hafnarvogina. Hafnarvörðurinn sem einnig var vigtarmaður var þarna staddur til að fylgjast með.  Hann talaði við skipverjana á einum bátnum og bað þá að gefa sér nokkrar ýsur í matinn og var það sjálfsagt.  Það var nýbúið að hífa upp þrjú fiskikör og hafnarvörðurinn fór á milli þeirra og bryggjukantsins til að ná í ýsuna, Þá kemur Hreppstjórinn á fullri ferð á lyftaranum til að taka fiskikörin en ferðin var svo mikil að körin runnu áfram og varð hafnarvörðurinn á milli karanna og bryggjukantsins með annan fótinn sem mölbrotnaði.  Eftir þetta þá varð hann að ganga með hækjur og með fótinn í gifsi í nokkra mánuði.  Nokkru síðar var Hreppstjórinn staddur á skrifstofunni hjá mér en þaðan sást vel yfir allt hafnarsvæðið og sáum við hafnarvörðinn koma höktandi á hækjunum og í gifsinu.  Ég spurði þá Hreppstjórann hvort honum þætti ekki leiðinlegt að hafa farið svona með manninn.  Það stóð ekki á svarinu; "Nei það er ekkert að honum, bara tóm uppgerð og ég get sagt þér það að það eru alltaf eintóm vandræði með þennan mann".  Þar með var málið afgreitt af hálfu Hreppstjórans.

Landsbankinn

Höfuðstöðvar Landsbankans.Smáey ehf., eignarhaldsfélag í eigu Magnúsar Kristinssonar, hefur bæst í hóp stærstu hluthafa Landsbankans. Samkvæmt lista yfir tuttugu stærstu hluthafa bankans í lok janúar er Smáey orðin 12. stærsti hluthafinn með 1,75% hlut.

Hann er ekki blankur þyrlueigandinn í Eyjum og útgerðarmaður, nýbúinn að tapa nokkrum milljörðum á fjárfestingafélagi sínu Gnúp sem hann átti með Kristni Björnssyni fv. forstjóra Skeljungs, en þetta félag stofnuðu þeir eftir að Björgvin Thor náði yfirráðum í Straumi-Burðarás, þá kom Hannes Smárason þáverandi forstjóri FL-Croup og keypti öll bréf þeirra Magnúsar og Kristins og greiddi fyrir með hlutabréfum í FL-Croup sem ekki eru mikils virði í dag.  Það virðist vera mikil samtrygging hjá þeim aðilum sem eru að braska með hlutabréf á Íslandi, því þegar FL-Croup lenti í sínum vandræðum kom Jón Ásgeir hjá Baugi þeim til bjargar.  Mér finnst skrýtið að þessir menn skuli ekki vera búnir að stofna hagsmunasamtök braskara.  Hjá þessum mönnum er einn milljarður litinn sömu augum og almenningur lítur á hundraðkall.


mbl.is Smáey meðal stærstu hluthafa Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styður ekki Guðna

Það hefur varla farið framhjá mörgum að Guðni Ágústsson formaður Framsóknar styður ekki lengur kvótakerfið í fiskveiðum.  Hann hefur sagt að landsbyggðin sé eins og sviðin jörð vegna þessa kerfis.  Í Silfri Egils í gær var mætt ásamt fleirum Valgerður Sverrisdóttir, varaormaður flokksins og þegar Egill bar þessi ummæli Guðna undir Valgerði svaraði hún því til að hún gæti ekki tekið undir þau.  Hún hefði frá upphafi stutt þetta kerfi og sú afstað hefði ekkert breyst og hún styddi það áfram.  Hvað er að ske í Framsóknarflokknum, er Valgerður að undirbúa sig undir að bjóða sig fram sem formann á næsta flokksþingi, sem mun verða í mars 2009 ef einhverjir verða þá eftir í flokknum til að sækja slíkt þing.  Hvað er Valgerður eiginlega að meina, getur ekki verið friður og sama stefnan í þingflokki Framsóknar, þar sem aðeins eru 5 þingmenn.  Mér dettur í hug smá saga sem ég ætla að láta fljóta hér með.

Í einum Alþingiskosningunum fyrir mörgum árum var Ómar Ragnarsson á ferð og flugi um allt land til að fylgjast með kosningunum fyrir Ríkissjónvarpið og tók fólk víða tali þegar það kom út af kjörstað.  Meðal þeirra staða, sem hann heimsótti var Bíldudalur og þar var kosið í barnaskólanum.  Ómar ræddi við fólkið um hvað það hefði kosið og vildi að það spáði í úrslitin.  Meðal þeirra sem hann náði tali af var gamall bóndi sem var nýfluttur úr sveitinni til Bíldudals.  Ómar spurði gamla manninn hvað hann hefði kosið og svarað'i hann stoltur "Nú auðvitað Framsóknarflokkinn".  Þá spurði Ómar manninn hvort hann teldi að hans flokkur myndi auka við sig fylgi og þá svaraði hinn "Nei hann tapar fylgi", þá spurði Ómar af hverju hann væri svona svartsýnn og svarið kom um leið; "Jú sjáðu til það eru svo margir dánir sem hafa kosið Framsóknarflokkinn." Ekki virtist þessi gamli bóndi hafa trú á að nýir ljósendur kæmu í stað hinna látnu.  Ég held að orð þessa manns séu í fullu gildi í dag hvað varðar Framsóknarflokkinn.


Nýr forstjóri

 Stjórn Icelandic Group hefur ráðið Finnboga Baldvinsson sem forstjóra félagsins. Þarna voru þeir heppnir með mann.  Þetta er reynslubolti úr sjávarútvegi bæði hér heima og erlendis og bróðir Þorsteins Más Baldvinssonar forstjóra Samherja hf.  Það ein sem ég hef út á þessa ráðningu að setja er það að Finnbogi ætlar ekki að flytja til Íslands, heldur búa áfram erlendis eins og hann hefur lengi gert.  En sennilega skiptir það ekki máli því mikill hluti af starfsemi þessa fyrirtækis fer fram erlendis.  Það sparast þá ein einkaþotan á Reykjavíkurflugvelli.

mbl.is Finnbogi Baldvinsson ráðinn forstjóri Icelandic Group
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugrökk kona

Mynd 451857Urður Gunnarsdóttir hefur starfað á stríðs- og átakasvæðum í sunnan- og austanverðri Evrópu, jafnt við friðargæslu sem kosningaeftirlit á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. (ÖSE). Um áramótin tók hún við starfi sem fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins.

Þetta er greinilega kona sem ekki er alltaf að hræðast hina ýmsu hluti.  Heldur kona með kjark


mbl.is Af vígvöllum ástar og haturs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira um Hreppstjórann

Ég skrifaði fyrir nokkrum dögum grein um Hreppstjórann, sem var lengi útgerðarstjóri hjá mér hann hafði ákveðið orðatiltæki sem hann notaði í sífellu en það var; "Ja það er gaman að þessu" og allir voru orðnir þessu vanir.  En stundum verður að passa sig á þessu.  Eitt sinn var jarðarför frá Bíldudalskirkju og að henni lokinni, var að gömlum og góðum sið boðið til erfidrykkju í félagsheimili staðarins og var þar fjölmennt.  Eins og oft vill verða við slíkar aðstæður er frekar fátt um umræðuefni.  Hreppstjórinn mætti að sjálfsögðu og settist við borð hjá nokkrum hóp af fólki og þar var verið að ræða um þann látna og alla þá sorg sem þessu fylgdi.  Hreppstjórinn var alltaf jafn hress og þegar hann sest við borðið og blandar sér í umræðuna en eftir smá stund fjarar umræðan út og til að koma einhverju af stað aftur segir Hreppstjórinn allhátt "Ja það er gaman að þessu".  Allir í salnum þögnuðu og störðu á manninn og hefði mátt heyra saumnál detta.  Hreppstjórinn lét ekki slá sig út af laginu heldur bætti við "Ja þetta er nú allt í góðu"

Aumingja Villi

Það liggur við að ég sé farinn að vorkenna Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni í öllum hans vandræðum við að reyna að hreinsa sig af öllu REI-klúðrinu.  Fyrst mundi hann aldrei neitt en þegar minnið fór að koma og í ljós kom að hann hafði ekkert umboð til að skrifa undir alla þessa REI-pappíra, þá fullyrti hann að hann hefði ráðfært sig við borgarlögmann, sem hefði sagt sér að hann hefði fullt umboð og bætti við að aldrei hefði sér dottið í hug að leita lögfræðiálits lögmanns út í bæ.  Þegar borgarlögmaður kannaðist ekki við málið þá birti Vilhjálmur leiðréttingu og sagði að það hefði verið fyrrverandi borgarlögmaður og þegar sá kannaðist ekki heldur við málið, þá loksins kom í ljós að þetta hafði verið Hjörleifur Kvaran sem var borgarlögmaður fyrir rúmum 10 árum og nú orðinn forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.  Þar sem Hjörleifur Kvaran er löngu hættur sem borgarlögmaður telst hann vera eins og hver annar lögfræðingur út í bæ.  Viðhjálmur fékk sem sagt umboð frá Hjörleifi Kvaran forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur til að mæta á fund hjá Hjörleifi Kvaran og skrifa undir allt sem hann var beðinn um m.a. kaupréttarsamning við Hjörleif Kvaran og 20 ára einkaréttarsamning við REI.  Hann segist ætla að taka fulla ábyrgð á sínum misstökum og segist hafa beðist afsökunar á þeim og þegar borgarfulltrúar sjálfstæðismanna eru spurðir um stöðu Vilhjálms í dag eru þeir allir sammála að hann njóti fulls trausts.  En hvaða traust hefur Vilhjálmur í dag, ekki borgarbúa heldur aðeins sex borgarfulltrúa sjálfstæðisflokks.  Ef Vilhjálmur ætlar að taka fulla ábyrgð á öllum sínum misstökum er ekki nóg að segja bara fyrirgefið mér, hann ætti að segja af sér og þá færi hann úr stjórnmálum borgarinnar með reisn.  En ef hann ætlar að halda þessu leikriti áfram þá kemur í ljós að hann hrökklast úr stjórnmálunum með skömm.  Því við skulum ætla að fylgi sjálfstæðismanna sé meira en atkvæði 6 borgarfulltrúá í Reykjavík.

Ógeðsegt

Bæjarstarfsmenn í Bristol á Englandi fundu rotnandi lík í sófa í íbúð í borginni eftir að nágrannar kvörtuðu til yfirvalda vegna vondrar lyktar sem kæmi frá íbúðinni. Talið er að líkið hafi legið á sófanum í allt að átta ár, og allan tímann bjó annar leigjandi í íbúðinni.

Hvernig í ósköpunum getur einhver búið í íbúð í 8 ár með lík í stofusófanum.  Lyktin hefur verið orðin viðbjóðsleg svo ekki sé meira sagt.


mbl.is Lík meðleigjandans rotnandi í sófanum í átta ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvótakerfið

Nú er skákmeistarinn Helgi Áss Grétarsson, sem ber titilinn sérfræðingur í sjávarútvegi við Lagadeild Háskóla Íslands, farinn að birta framhaldssögu í Fréttablaðinu um álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna varðandi íslenska kvótakerfið.  Skákmeistarinn tekur í einu og öllu undir það sem Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ, hefur sagt um þetta álit nefndarinnar.  Það er að við séum ekkert bundnir af þessu áliti og í nefndinni sitji fólk sem hafi ekki hundsvit á sjávarútvegi og ekkert að marka það sem þessi nefnd sendir frá sér.  Þetta er ekki í fyrsta sinn sem skákmeistarinn ræðst fram á ritvöllinn til að verja hagsmuni LÍÚ, enda er staða hans kostuð af LÍÚ.  Hann var svo óheppin að grein sem hann skrifaði sl. föstudag í Fréttablaðinu, birtist sama dag og hans grein.  Önnur grein eftir Þorvaldar Gylfasonar, prófessors og fer Þorvaldur vel yfir málið og fullyrðir að kvótakerfið hafi í raun verið ólöglegt frá upphafi og við getum á engan hátt hunsað þetta nefndarálit.  Ólíkt tek ég nú meira mark á orðum Þorvaldar Gylfasonar en skákmeistarans.  Því Þorvaldur á engra persónulegra hagsmuna að gæta ólíkt skákmeistaranum, sem verður að túlka skoðanir LÍÚ, því annars væri hans staða í hættu.  Skákmeistarinn vill meina að það sama gildi um nýtingarrétt og eignarétt og hvort tveggja sé varið á sama hátt í stjórnarskrá Íslands og þessu hafi fulltrúar frá Íslandi ekki komi nægjanlega vel til skila í málflutningi sínum fyrir Mannréttindanefndinni.  Þótt ég sé ekki löglærður maður þá kann ég þó skil á þessu tvennu.  Ætlar skákmeistari LÍÚ virkilega að halda því fram að ef einhver hefur fengið ókeypis aðgang að eign þá sé um leið kominn stjórnarskrárvarinn réttur til að nýta eignina eins lengi og viðkomandi vill.  Það er alveg sama hvað þessar greinar skákmeistarans verða margar það mun engu breyta varðandi það að við verðum að breyta núverandi kvótakerfi eins og Þorvaldur Gylfason bendir á.  Skákmeistarinn er að verða eins og Meistari Megas sagði forðum; "Eins og hurð á berjamó", með þessum heimskulegu skrifum sínum.  Ekki veit ég til þess að þessi skákmeistari hafi á nokkurn hátt komið nálægt útgerð eða fiskvinnslu og efast jafnvel um að hann sé löglærður, það er ekki að sjá af hans skrifum.  Háskóli Íslands ætti hinsvegar að gæta þess að hagsmunasamtök eins og LÍÚ geti ekki nýtt sér Háskólann í áróðursskyni eins og nú er verið að gera með þessum greinarskrifum Helga Áss Grétarssonar í nafni Háskóla Íslands.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband