Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Spakmæli dagsins

Jafnaðarstefnan er aðalbrautin.

Framsóknarflokkurinn hefur aldrei verið

annað en afleggjari.

(Jón Thoroddsen, yngri)


Sádi-Arabar

Ríkisstjórn Sádi-Arabíu vinnur nú að nýjum reglum um lámarksaldur til að geta gengið í hjónaband.  Þetta er gert til að sporna við að ung börn gangi í það heilaga.

Gott mál hjá þeim.  Það hefur því miður verið alltof mikið um að ung börn sé neydd í hjónabönd.


mbl.is Sádi-Arabar sporna við hjónavígslum barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftaka

Yfir þúsund manns fylgdust með þegar sómalskir hermenn grýttu til bana karlmann sem sakfelldur var fyrir að nauðga og myrða 18 ára stúlku.

Þótt margt sé hægt að gagnrýna í þessum heimshluta, þá er réttarfarið hjá þeim í lagi.  Þeir t.d. höggva hendur af þjófum.


mbl.is Fjöldi fylgdist með opinberri aftöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íran

Íranski erkiklerkurinn Al Khamenei sakar leiðtoga Vesturlanda um að við hafa heimskuleg ummæli um Íran í kjölfar umdeildra forsetakosninga þar í landi um miðjan mánuðinn.

Þetta er alveg rétt hjá Khamenei, því Vesturlöndum kemur það ekkert við hvernig þeir í Íran hafa sínum málum.  Þetta er sjálfstætt og fullvaldandi ríki, sem á að ráð sínum málum sjálft án afskipta Vesturlanda.  Hafa Vesturlönd ekki fengið nóg af öllum sínum afskiptum í Írak, þótt þeir bæti ekki fleiri löndum á þann lista sem þau telja að þurfi að laga til hjá.


mbl.is Heimskuleg ummæli Vesturlanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blóm

Blómasýningin "Blóm í bæ" hefur staðið yfir í Hveragerði alla helgina og er allur miðbærinn skreyttur blómum.  A sýningarsvæðinu er meðal annars blómadreki sem er 142 metrar og 20 sentímetrar að lengd.

Þetta er frábært framtak hjá þeim í Hveragerði.


mbl.is 142,2 metra blómaormur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki á hliðina vegna Icesave

Fulltrúi Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins hér á landi segir að samningurinn um Icesave, setji þjóðarbúið ekki á hliðina.  Hann segir jafnframt að þessi samningur sé ekki vegna kröfu Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins.  Hins vegar segir hann ekki þora að spá í afleiðingar þess ef samningurinn verði felldur á Alþingi.
mbl.is Þjóðarbúið ekki á hliðina vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarskóli með NASA

Á morgun fer af stað alþjóðlegur sumarskóli í stjörnulíffræði á vegum NASA, Nord Fjord, Háskólans á Hawaii og Háskóla Íslands.  Við skólann sem ber heitið "Vatn,ís og uppruni lífs í alheimi." kenna ýmsir af fremstu vísindamönnum heims á þessu sviði. 

Höfum við Íslendingar efni á þátttöku í þessu verkefni, á meðan fjöldi námsmanna á framhaldskólastigi fær ekki skólavist á næsta ári vegna fjárskorts.


mbl.is Sumarskóli með NASA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn í útrás

Nú hefur Bónus opnað nýja verslun í Færeyjum og er þetta fimmta verslunin í Færeyjum.  Þannig að þeir eru enn í útrás Bónusfeðgar.
mbl.is Ný Bónus-verslun í Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sterling

Því hefur verið haldið fram að allar sölurnar á flugfélaginu Sterling, hafi verið gerðar til þess að auka verðmæti þess á pappírum.  Nú hefur komið í ljós að FL-Group, töpuðu 7,1 milljarði við síðustu sölu sína til Norten Travel Holding (NTH) móðurfélagi Sterling.  Þá tapaði félagið við upphaflegu sölu Sterling til NTH um 5 milljörðum.
mbl.is Minnisblað um milljarðatap FL Group vegna Sterling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icesave

Mög skiptar skoðanir eru á því hvort Ísland eigi að greiða Icesave-reikninganna.  Bæði hag- og lögfræðingar eru ekki sammála.  Núverandi ríkisstjórn átti ekki neina aðra möguleika en að semja um þetta mál.  Því í október hafði þáverandi fjármálaráðherra, Árni Matthissen undirritað samning við Holland og þá var ekki aftur snúið.  Hvort að sá samningur sem nú liggur fyrir á Alþingi er góður eða slæmur get ég ekki dæmt um. 

Enda skiptir það ekki máli, því við erum tilneydd að semja, hvort okkur líkar betur eða vel.  Það var Sjálfstæðisflokkurinn sem tók á sínum tíma um að fara skyldi samningaleiðina, en nú ætlar flokkurinn að hlaupa frá eigin gerðum eins og hundur frá spýju.  Nú reynir þessi flokkur allt sem hann getur að fá þennan samning felldan á Alþingi.

Margir hafa rætt að það eigi að fara dómstólaleiðina.  Ef það er fyrir Alþjóðadómstólnum, þá þurfa deiluaðilar báðir að samþykkja það.  Þetta ákvæði nýtti Ísland sér í öllum okkar þorskastríðum við önnur lönd.  Heldur fólk virkilega að Ísland gæti dregið Breta og Hollendinga fyrir þennan dómstól ef þeir myndu neita því.

Þetta er vissulega þungur baggi að bera en það eru ákvæði í samningnum um að ef of erfitt verði fyrir Ísland þá verður hann endurskoðaður með tilliti til þess.  Bæði Bretar og Hollendingar hafa engan áhuga á að koma Íslandi í greiðsluþrot.  Það væri líka andstætt þeirra hagsmunum.

Fari svo að samningurinn verði felldur á Alþingi stendur Ísland frami fyrir hrikalegri stöðu.  Ríkisstjórnin fellur, Samningar við Alþjóða Gjaldeyrissjóðin verða í uppnámi og ekkert verður úr lánveitingum Norðurlandanna til Íslands.  Við verðum verr stödd en við vorum í byrjun.  Allar okkar eignir erlendis verða frystar, flugvélar og skip verða kyrrsett.  Við verðum algerlega einangruð þjóð og eins og Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra sagði;

Við verðum Kúpa norðursins.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband