Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Framsókn

Halldór Ásgrímsson. Ekki var rétt af Guðjóni Ólafi Jónssyni að fara fram með þeim hætti sem hann hefur gert, að mati Halldórs Ásgrímssonar, fyrrverandi formanns Framsóknarflokksins, og segir hann framgöngu Guðjóns gegn Birni Inga Hrafnssyni ómaklega.

Það virðist allt vera gert til að reyna að hressa upp á Framsókn og nú er meira að segja gamli formaðurinn farinn að blanda sér í umræðuna.  Ég skil ekki hvernig menn þora yfirleitt að ræða um þessi mál innan Framsóknar þegar heilu hnífasettin eru að fljúga í bakið á mönnum og ekki bara eitt heldur mörg á lofti í einu. 


mbl.is Ómakleg framganga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handbolti

Ég var að skrifa í gær um landsleiki Íslands í handbolta, sem ég reyndar hef ekki hundsvit á og setti þar fram ákveðna kenningu um að íslenska landsliðið tapaði alltaf þegar það spilaði í rauðu búningunum en sigraði þegar þeir væru í bláu búningunum.  Eftirfarandi er staðreynd í fyrsta leiknum á móti Svíþjóð var liðið í rauðum búningum og niðurstaða leiksins tap.  Í næsta leik á móti Slóvaníju var liðið í bláu búningunum og niður staðan sigur.  Í gær á móti Frakklandi mætti liðið aftur í rauðu búningunum og niðurstaðan var tap.  Þeir sem eru að horfa á þessa keppni geta alveg vitað úrslit leiksins strax og það sést hvaða litur er á búningi landsliðsins.  Blátt = sigur, Rautt = tap.  Nú er bara að bíða eftir næsta leik og vita hvort þessi kenning mín stenst ekki.

100 ára gamall þorskur

Hinir miklu spekingar hjá Hafró sem kallast fiskifræðingar hafa fullyrt að ein af þeim hættum sem sé fyrir hendi varðandi okkar þorskstofn, sé það að allur stóri þorskurinn sé horfinn og það æitla sem sé til af honum sé svo illa haldinn að í dag sé þyngd 10-15 ár þorsk ekki nema 6-10 kg.  En það er einmitt þessi stóri þorskur sem skila bestri nýliðun í stofninum.  Nú koma þær frétti að sjómenn við Grímsey, Vestfirði og Breiðafjörð eru að fá þorsk sem er að stórum hluta 15-20 kg. að þyngd og eins og einn sjómaðurinn komst að orði; "Ef fræði Hafró eru með öllu rétt þá hlýtur þessi fiskur sem við erum að veiða nánast í hvaða veiðarfæri sem er og er að meðaltali 15-20 kg. að vera orðinn a.m.k. 100 ára gamall auk þess á hann ekki að vera til"  Nú vita flestir að enginn þorskur verður eldri en 15-25 ára.  Ætli skýringi sé ekki fyrst og fremst að leita á því að netaveiðar eru nánast hættar hér við land og auk þess er búið að minnka möskvastærð í netunum í 8 tommur en í slík net festist engin stórþorskur.  Þessi stóri þorskur sem nú er að veiðast víða um land mun vera vel haldinn.  Þannig að ekki hefur hann skort fæðu en samt tekur þessi fiskur grimmt beituna á línu, enda ekkert skrýtið því svona stórfiskur þarf talsvert magn að éta á hverjum tíma.  Getur ekki verið að þetta komi af einhverju leiti til af því að nú hafa loðnuveiðar verið bannaðar yfir sumarið.  Einnig hefur í sumar mikið magn af síld verið á miðunum og mælingar sem voru gerðar á Grundarfirði sýndu að bara það í þessum eina firði mældust 600 þúsund tonn af síld.  Það hefur mikið verið rætt og ritað um skaðsemi flottroll við loðnuveiðar og fyrir stuttu var ég að lesa viðtal við skipstjóra á loðnuskipi, sem var á veiðum fyrir austan land og var hann spurður út í notkun flottrolls við loðnu- og síldveiðar og hann sagði;  "Ég tel að það ætti alfarið að banna flottrollsveiðar, þetta gekk svo miklu betur þegar aðeins var notuð nót."  Þá var hann spurður um hvaða veiðarfæri hann væri að nota núna og svarið var;  "Ég er núna að nota flottrollið, því auðvitað verð ég að fylgja hinum eftir."  Þetta svar hjá þessum ágæta skipstjóra er ósköp eðlilegt, þótt sumir skipstjórar séu á móti notkun flottrolls við þessar veiðar, hefur það enginn áhrif þótt einn eða tveir hætti að nota það, því það er ekki hlutverk skipstjóra þessara skipa að ákveða hvaða veiðarfæri eru notuð í íslenskri fiskveiðilögsögu.  Það vald er hjá sjávarútvegsráðherra og tel ég að hann ætti að hlusta meira á skoðanir þeirra sem eru að starfa við þessar veiðar.  En hvað varðar stóra þorskinn sem núna virðist vera út um allt.  Þá vaknar sú spurning hvað myndi ske með þorskstofninn ef við bönnuðum loðnuveiðar alfarið t.d. í eitt ár?  Ekki þarf að hafa miklar áhyggjur af þeim skipum sem stunda loðnuveiðar, þau hafa næg verkefni við veiðar á síld og kolmuna og til að bæta þeim skaðann af loðnuveiðibanni mætti auka hjá þeim veiðiheimildir í síld sem virðist vera nóg til af.  Væri þetta ekki tilraunarinnar virði?

Mörg hnífasett

Guðjón Ólafur Jónsson. 

Guðjón Ólafur Jónsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, sagði í Silfri Egils í dag, að hann væri með mörg hnífasett í bakinu eftir Björn Inga Hrafnsson, borgarfulltrúa flokksins. Sagði Guðjón Ólafur m.a., að Björn Ingi hefði unnið gegn sér fyrir kosningarnar 2003 og 2007.

Nú vaknar bar sú spurning hvort Björn Ingi Hrafnsson hafi borgað sjálfur öll þessi hnífasett eða hvort þau hafi verið greidd úr sjóðum Framsóknar eins og fötin sem Guðjón Ólafur ræðir um í trúnaðarbréfi sínu til framsóknarmanna.  Mikið hlýtur þessi aumingja maður að vera hraustur að hafa lifað þetta af og hvað gerði hann svo við alla hnífana þegar þeir voru teknir úr bakinu á honum.  Notaði hann kannski þá sjálfur til að reka í bakið á öðrum í sínu framapoti.  Það verður að kallast undarlegt trúnaðarbréf til flokksmanna, sem er ætlað að kveða niður gróusögur um ýmsa flokksmenn og bæta svo einni sögunni við sjálfur um Björn Inga og viðurkenna um leið að hann hafi ekki minnstu hugmynd hvort hún sé sönn eða ósönn.  Svo mikill trúnaðarbréf var nú þetta hjá Guðjóni Ólafi að hann sendi fjölmiðlum afrit af því.  Og allt þetta gerir hann með hagsmuni Framsóknar að leiðarljósi.  Annaðhvort er maðurinn svona heimskur eða bilaður á geði, nema að hvorttveggja sé.  Ég held að Guðjón Ólafur ætti að leita sér aðstoðar hjá læknum á sínum vandamálum.


mbl.is Með mörg hnífasett í bakinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handbolti

Ég er ekki mjög upptekin við að fylgjast með íþróttum, en hef samt gaman af að horfa á leiki þegar íslenska landsliðið er að keppa.  Bæði í hand- og fótbolta.  Ég veit ekki hvort það sé einhver ímyndun hjá mér en mér finnst sérstaklega í handboltanum að okkar liði gangi alltaf betur þegar það spilar í bláu búningunum en þeim rauðu.  Þegar ég horfði á leikinn við Svía og sá íslenska liðið í rauðu búningunum hugsaði ég með mér þetta er vonlaust og öruggt tap hjá okkar mönnum.  Í gær mætti íslenska liðið í sínum bláu búningum gegn Slóvökum og öruggur sigur var í höfn þrátt fyrir að besti maður liðsins Ólafur Stefánsson væri ekki með vegna meiðsla.  Nú bíð ég spenntur eftir leiknum í dag og takið nú vel eftir ef þeir verða í rauðum búningum er tap næsta öruggt en ef þeir verða í þeim bláu er sigur vís.  Nú þekki ég ekki þær reglur sem gilda um í hvaða búningum liðið á að spila hverju sinni og væri fróðlegt ef einhver gæti frætt mig um það.

Ólögleg fiskvinnsla

Nú hefur Jón Þórðarson, útgerðarmaður á Bíldudal verið kærður fyrir ólöglega fiskvinnslu á Bíldudal.  Eftir því sem mér skilst er hann kærður fyrir að flaka nokkrar ýsur í kjallara á verslunarhúsi sínu, en þar var áður kjötvinnsla.  Þetta hefur verið í mjög smáum stíl og flökin hefur Jón ýmist gefið fólki á Bíldudal eða selt í mjög snyrtilegum umbúðum fyrir mjög hóflegt verð.  Nú hefur einhver á Bíldudal séð ástæðu til að kæra Jón fyrir þessa starfsemi af ástæðum sem mér eru með öllu óskiljanlegar.

Þótt ég hafi oft á tíðum ekki alltaf verið sammála því sem Jón hefur verið að gera í gegnum árin og gagnrýnt hann fyrir margt, þá verður nú hver að eiga það sem hann á.  Á Bíldudal er nú nánast algjört atvinnuleysi og engin verslun er á staðnum og hefði ég því haldið að fólk væri ánægt með þessa starfsemi Jóns en svo virðist ekki vera.  Jón Þórðarson hefur í gegnum tíðina alltaf haldið við þeirri gömlu venju að gefa fólki fisk í soðið af skipi sínu Höfrungi BA-60 og ég man oft eftir á meðan ég bjó á Bíldudal að hann skildi oft eftir fiskikar á bryggjunni, þar sem fólk gat valið sér fisk í matinn án greiðslu, bæði ýsu, þorsk, smálúðu ofl.  Einnig skildi hann oft eftir kassa með hrognum og lifur í sama tilgangi.  En nú á að stoppa þetta og allt bendir til að kæra hafi komið frá einhverjum íbúa á Bíldudal. Þótt þetta hafi verið í litlum mæli hjá Jóni skapaði það þó 2-3 störf.  Þótt Jón hafi selt einhver kíló af þessum flökum, tel ég mig vita að ekki hefur hann hagnast persónulega á því.  Þetta hefur frekar mátt flokkast undir hugsjónastarf hjá honum því megnið af flökunum var gefið fólki sem er illa statt.

Ég spyr nú bara í hvernig þjóðfélagi búum við eiginlega orðið?  Verður kannski ekki óhætt lengur að bjóða fólki í kaffi nema gera grein fyrir því til yfirvalda og greiða virðisaukaskatt af kaffibollanum?  Má ekki lengur gera náunganum greiða án þess að eiga yfir höfði sér ákæru? Jón segir á heimasíðu sinni að sér hafi alltaf þótt gaman af því að gefa fólki í soðið en nú verði hann að hætta því þar sem slíkt teljist vera lögbrot.

Það hefur í gegnum aldirnar verið nokkuð rík hefð í hinum fjölmörgu sjávarþorpum á landinu að fólk hefur komið á bryggjuna þegar bátarnir hafa verið að landa og fengið gefins fisk í soðið og ekkert þótt athugavert við það.  En núna er svo komið að þetta kvótakerfisrugl veldur því að Fiskistofa hefur heimild til að stoppa slíkt og er því þessi gamli siður nánast að leggjast af og um leið rofna tengslin á milli fólksins í landi og þeirra sem sjóinn stunda og er það af hinu slæma enda er svo komið að stór hluti þjóðarinnar veit varla lengur hvernig fiskiskip lítur út eða hvað hver fiskur heitir og sumir vita hreinlega ekki hvað fiskur er.

Við þann Bílddæling sem kærði Jón Þórðarson núna vil ég bara segja þetta;  "Þú ættir að skammast þín"


Framsókn

Stjórn Kjördæmasambands Framsóknarflokksins í Reykjavík segir í yfirlýsingu, að trúnaðarbréf, sem Guðjón Ólafur Jónsson, fyrrverandi alþingismaður sendi framsóknarmönnum í Reykjavík í pósti, hafi verið vanhugsað og alls ekki flokknum og starfinu í Reykjavík til framdráttar.

Mikið ætlar lífið að verða framsóknarmönnum erfitt þessa daganna.  Guðjón Ólafur Jónsson skrifar bréf til flokksmanna og þykist vera að efla flokkinn.  Eitthvað hefur nú Guðjón Ólafur hugsað þetta rangt, því að í bréfinu er hann að rægja einn af forustumönnum flokksins Björn Inga Hrafnsson og lætur að því liggja að Björn Ingi hafi notað sjóði flokksins til fatakaupa á sig ofl. fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar.  Ef Guðjón Ólafur heldur virkilega að svona skrif séu til þess fallinn að styrkja Framsókn, þá er greinilega eitthvað að manninum.  Það eina sem hugsanlega hefðist upp úr svona bréfasendingum væri það að Björn Ingi segði sig úr flokknum.  Er það kannski tilgangur Guðjóns Ólafs með þessu bréfi?  Ég er helst á þeirri skoðun að þessi skrif stafi af öfund vegna þess að Guðjón Ólafur datt út af þingi í síðustu kosningum.  Ef Guðjón Ólafur heldur virkilega að vandi framsóknar sé aðallega sá að hann er ekki lengur þingmaður þá er ofmat hans á sitt eigið ágæti mikið.  Ég sé ekkert eftir Guðjóni Ólafi sem þingmanni, því mér fannst hann alltaf með leiðinlegustu ræðumönnum á þingi meðan hann var þar og get ósköp vel skilið að fólk hafi ekki viljað hann þangað aftur.  En að senda út svona bréf uppfullt af rógi um Björn Inga ofl. er fyrir neðan virðingu hvers manns, jafnvel þótt viðkomandi sé framsóknarmaður. 


mbl.is Segja bréf til framsóknarmanna vanhugsað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjörmenn

Þótt Hillary Clinton hafi fengið fleiri atkvæði en Barack Obama í forkosningum Demókrataflokksins í Nevada í gær kann Obama að hafa fengið fleiri kjörmenn í ríkinu og hver kjörmaður getur skipt máli þegar flokkurinn velur forsetaefni sitt á flokksþingi síðar á árinu.

Alltaf verður maður meira og meira undrandi á þessu kosningakerfi í USA, nú dugar víst ekki að fá fleiri atkvæði heldu fleiri kjörmenn sem munu seinna á flokksþingi mæta og velja þar forsetaframbjóðenda.  Ég hélt að Bandaríkin væru lýðræðisríki en eins og flestir vita þá er ein af undirstöðum undir lýðræðinu sá að meirihlutinn ræður þ.e. meirihluti atkvæða, en í USA getur einhver orðið forseti kjörinn á löglegan hátt þótt hann hafi ekki meirihluta atkvæða á bak við sig.  Þannig komst t.d. George W. Bush til valda.  Svo er þetta ríki að taka að sér að fylgjast með kosningum út um allan heim til að tryggja að kosið sé eftir lýðræðislegum reglum.  En þeir geta ekki einu sinni tryggt lýðræði í eigin landi.  Ég held að þeir verði að fara að breyta þessu hjá sér ef telja á, að USA sé lýðræðisríki.


mbl.is Obama með fleiri kjörmenn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsfróun

Danskur sálfræðingur ætlar í maí að standa fyrir fyrsta Danmerkurmótinu í sjálfsfróun. Markmiðið er að afla fjár til að auka fræðslu um kynferðismál.

Allur andskotinn er nú til og hver ætli verði nú verðlaunin hjá þeim sem sigrar í þessu móti og hvaða titil ætli hann/hún fái.  Gat manninum ekki dottið einhver önnur skynsamlegri leið til að afla fjár til kynfræðslu.  Nú er bara spurningin sú hvort við íslendingar sendum fulltrúa okkar í þessa keppni eða höldum bara okkar eigin keppni og fáum Íslandmeistara í sjálfsfróun.


mbl.is Danmerkurmót í sjálfsfróun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landssamband smábátaútgerða

Nú stefnir allt í klofning hjá Landssambandi smábátaútgerða og í sjónvarpsviðtali í gær viðurkenndi formaður samtakanna Arthur Bollason að einhverjir útgerðamenn væru að hugsa um að stofna ný samtök en taldi jafnframt að slíkt gæti ekki skeð og ekki hefði hann orðið var við neina óánægju meðal félagsmanna og ef af þessu yrði gæti það leitt til að öll smábátaútgerð leggist niður.  Ég spyr nú bara er ekki allt í lagi með manninn.  Á síðasta aðalfundi voru miklar deilur um hin ýmsu mál t.d. hvort leyfa ætti stækkun krókabáta úr 15 tonnum í 30 tonn ofl.  Við allri gagnrýni brást Arthur Bogason hinn versti við og sagði við hvert atriði sem gagnrýnt var að það ætti ekki heima á dagskrá aðalfundarins, en hvar eiga félagsmenn að koma sinni gagnrýni ef það er ekki á hverjum aðalfundi sem haldinn er?.  Ég er ekki félagsmaður í þessum samtökum lengur enda mörg ár síðan ég hætti að gera út krókabát, en sem áhorfandi og áhugamaður um útgerð finnst mér þessi samtök komin langt út fyrir það hlutverk sem þau voru stofnuð til að gegna.  Þetta er farið að líkjast LÍÚ í einu og öllu.  Í gegnum svokallaða greiðslumiðlun fá þessi samtök beint til sín 5% af öllu heildaraflavermæti allra smábáta á landinu auk þess taka þau til geymslu tæp 5% af sömu upphæð til að greiða tryggingariðgjöld fyrir sína félagsmenn.  Er hér um að ræða gífurlegar upphæðir og þar sem samningar við tryggingarfélög er á þann hátt að ekki er greitt til þeirra nema fjórum sinnum á ári og eru því þeir peningar sem koma inn í tryggingarsjóðinn ávaxtaðir á bankabókum hjá LS og fá þannig samtökunum miklar vaxtatekjur á hverju ári.  Auk þess greiðir hver smábátaeigandi félagsgjald til LS.  Þetta er alveg hliðstætt og gert er hjá LÍÚ og gert þau samtök ein auðugustu hagsmunasamtök í landinu.  Með þessu fyrirkomulagi hefur LS breyst úr því að vera hagsmunasamtök í moldríkt fjármálafélag.  Menn geta bara rétt ímyndað sér hvað hér er um að ræða mikla fjármuni sem komið hafa í kassann hjá LS í þau rúmu 20 ár sem samtökin hafa starfað enda engu til sparað í rekstri þeirra, flottar skrifstofur og ég hef heyrt að bæði formaður og framkvæmdastjóri fá mjög rífleg laun eða um 10 milljónir hvor á ári auk mikils ferða- og risnukostnaðar bæði hér innanlands og erlendis.  Þetta er orðið bákn sem hugsar fyrst og fremst um að verja sinn tilverurétt og hagsmunir hinna einstöku félagsmanna skipta litlu máli.  Á meðan hinn venjulegi trillukarl er að berjast fyrir rétti sínum og að halda sínum rekstri gangandi velta forustu menn LS sér upp úr milljónum og þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur.  Nú nýlega gerði LS kjarasamninga fyrir félagsmenn sína og ekki var nú vandað betur til þeirra en svo að þau félög sem starfa á landsbyggðinni og hafa verið að fjalla um þessa samninga hafa kolfellt þá.  Er því nokkuð skrýtið að hinir venjulegu trillukörlum sé farið að ofbjóða og íhugi að stofna önnur samtök til að gæta sinna hagsmuna.  Ekki hef ég orðið var við að forustumenn LS hafi gagnrýnt álit, sem kom frá Mannréttindanefnd Sameinuðu Þjóðanna um íslenska kvótakerfið.   Þar dansa þeir vangadans við LÍÚ og sennilega verður það niðurstaðan að LS fari í eina sæng með LÍÚ, enda sama hugsun hjá forustumönnum beggja þessara samtaka.  Í sjónvarpsviðtalinu sem ég vitnaði í nafngreindi Arthur Bogason einn mann og ásakaði hann um að standa fyrir því að stofna ný samtök smábátaeigenda, þar fannst mér Arthur leggjast ansi lágt því ekki hafði viðkomandi maður tök á að svara fyrir sig.  Þetta viðtal við Arthur Bogason er sennilega lýsandi dæmi um viðhorf forustumanna LS til hins almenna félagsmanns.  Þeim er nefnilega andskotans sama hvaða skoðun hinn almenni félagsmaður hefur.  Vilja bara veltast um í hinum miklu fjármunum sem LS hefur safnað í sína sjóði í gegnum árin og lifa eins og aðalsmenn.  Því má segja að það eru forustumenn LS og þeirra framkoma sem eru að verða þess valdandi að sennilega verða stofnuð ný samtök og Arthur Bogason ætti að líta aðeins í eigin barm áður en hann kemur í sjónvarpsviðtal og ásakar aðra.  Þetta er ekkert nema spilling og aftur spilling og má segja að hér sannist máltækið; "Margur verður af aurum api."


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband