Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Bankar sameinast

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital.„Það er engin nauð sem rekur okkur í sameiningarviðræður. Bæði fyrirtækin standa ágætlega og saman getum við myndað öflugri heild,“ segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson bankastjóri Saga Capital um hugsanlega sameiningu Saga og VBS fjárfestingarbanka. „Eiginfjárhlutfall sameinaðs félags yrði hátt sem ætti að gera okkur að enn betri lántakanda sem nyti betri kjara á lánamörkuðum. Þetta yrði jákvætt skref við núverandi aðstæður.“

Það er gott þegar fjármálastofnanir sameinast og gera ætti meira af því að sameina sparisjóðina í landinu.  Þeir ættu ekki að vera fleiri en 2-3 og þá yrðu til öflugar fjármálastofnanir til mótvægis við hina 3 stóru banka.


mbl.is Sameinaður banki með 16,5 milljarða í eigið fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brúðuleikhús

Mynd 477829 Brúðuleikhússýning þar sem brúður tala um kynferðislegt ofbeldi virðist hafa þau áhrif að börn tali frekar um ofbeldi sem þau hafa verið beitt. Eftir sýningu úti á landi komu átta tilkynningar til barnaverndarnefndar.

Er þetta ekki bara af hinu góða ef börnin fara að segja frá ef þau hafa verið beitt kynferðislegu ofbeldi.  Þetta starf er stutt af samtökunum Blátt áfram, en þau samtök hafa unnið mjög gott starf á þessu sviði.


mbl.is Börnin bíða eftir tækifæri til að tala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menntamálaráðherra

Frá setningu ólympíumóts fatlaðra um helgina. Íþróttasamband fatlaðra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar í DV í gær þar sem gagnrýnt var að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, skyldi ekki sækja ólympíumót fatlaðra í Peking í ljós þess að hún hefði farið tvívegis á ólympíuleikana þar í ágúst. Segist íþróttasambandið hafa boðið Jóhönnu Sigurðardóttur, til leikanna og hún þekkst boðið.

Þarna er greinilega villa því í fréttinni segir að menntamálaráðherra hafi verið boðið og það er auðvitað Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir en ekki Jóhanna Sigurðardóttir.  Annars finnst mér að þessi gagnrýni á Þorgerði Katrínu ekki vera sanngjörn þótt ferðin hafi kostað 1,8 milljónir.  Þetta er eins og dropi í hafið þegar maður skoðar allan þann ferðakostnað sem ríkið greiðir bæði fyrir ráðherra og starfsmenn ríkisins.  Þorgerður Katrín er nú einu sinni æðsti yfirmaður íþróttamála landsins og hún hefði ekki verið minna gagnrýnd ef hún hefði ekki farið á Ólimpíuleikana.


mbl.is Einum ráðherra var boðið til Peking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísað á brott

Útlendingastofnun hefur á þessu ári vísað 22 ríkisborgurum EES-landa frá Íslandi. Þetta er gríðarmikil fjölgun miðað við síðasta ár en þá kvað Útlendingastofnun upp fimm brottvísunarúrskurði yfir borgurum EES-ríkja.

Þarna er útlendingastofnun að standa sig vel, því auðvitað á ekki að hleypa inn í landið fólki með afbrotaferil á bakinu.  Það er komið meira en nóg af erlendum glæpalýð hingað til lands og við sitjum uppi með.


mbl.is 22 EES-borgurum vísað á brott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skuggahverfið

Blokkirnar í fyrsta áfanga Skuggahverfisins verða endurklæddar. Nokkrar flísar hafa fallið af þeim á undanförnum árum og í kjölfarið voru um 200 flísar fjarlægðar sem varrúðarráðstöfun.

Þetta getur nú varla talist eðlilegt að það þurfi að klæða nýbyggð hús.  Fyrstu íbúarnir nýfluttir inn og þá er komið að viðhaldi á húsunum.


mbl.is Lúxusblokkir verða endurklæddar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabankinn

„Við erum að fara eftir stöðu sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setur. Það er ekki langt síðan að gerð var úttekt á þessum málum hjá okkur og hún kom vel út,“ segir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri upplýsingasviðs Seðlabankans.  Hann segir gagnrýni á uppgjöri á stöðu þjóðarbúsins, sem forsvarsmenn greiningardeildar bankanna hafa sagt hafa veikt krónuna, ekki á rökum reista. Í uppgjörinu kom fram að skuldir umfram eignir þjóðarbúsins næmu um 2.100 milljörðum króna. Einnig kom fram að skekkjan væri um 180 milljarðar.

Þegar skuldir umfram eignir eru orðnar svona miklar þá skiptir engu máli  hvort skekkjan er 180 milljarðar eð einhver önnur tala.  Það sem skiptir máli er að stað þjóðarbúsins er orðin skuggalega slæm.  Samkvæmt lögum um hlutafélögum ber að lýsa þau gjaldþrota þegar eignir duga ekki fyrir skuldum.  Þess vegna hagræða mörg fyrirtæki í sínu bókhaldi til að fara framjá þessu ákvæði í lögunum.  Það er alþekkt að verðleggja birgðir hærra og færa sem eign viðskiptavild (goodwill) og fyrirtæki í sjávarútvegi færa óveiddan fisk í sjónum sem eign, þótt í lögum standi að þær auðlyndir séu sameign íslensku þjóðarinnar og afnotaréttur geti aldrei skapað eign.  Svona uppgjörum eru viðskiptabankarnir vanir.  En Seðlabankinn verður að fara eftir stöðlum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og þess vegna fær hann allt aðra útkomu en bankarnir.  Ég tel tölur frá Seðlabankanum vera réttar, því þótt ótrúlegt sé, þá eru að vinna í bankanum menn með fullu viti.

 
mbl.is Vísar gagnrýni á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örfirirsey

Uppbygging í Örfirisey mun ekki fara af stað fyrr en að lokinni hugmyndasamkeppni um heildarmynd hafnarsvæðisins allt frá tónlistar- og ráðstefnuhúsinu. Júlíus Vífill Ingvarsson, stjórnarformaður Faxaflóahafna, er formaður undirbúningshópsins og að hans mati er mikilvægt að fara að fá niðurstöðu varðandi framtíðarskipulag svæðisins. „Ég lagði fram þessa tillögu um að farið yrði fram í þessa hugmyndasamkeppni og stjórn Faxaflóahafna samþykkti þá hugmynd. Við bindum vonir við að það takist að klára þessa hugmyndavinnu fyrri hluta næsta árs. Uppbygging á þessu svæði mun taka alllangan tíma, það er verið að horfa til framtíðar og þess vegna er mikilvægt að framtíð svæðisins fari að skýrast.“ Fjárfesting vel á fjórða milljarð Fjárfestingarfélögin Lindberg og Gómur hafa á undanförnum árum keypt upp eignir úti í Örfirisey fyrir vel á fjórða milljarð króna. Félögin hafa fyrst og fremst keypt upp eignir við Fiskislóð, Hólmaslóð og Eyjaslóð. Samtals má áætla að lóðir í eigu félaganna séu hartnær fjórir hektarar. Ólafur Garðarsson hæstaréttarlögmaður sem er einn eigenda beggja félaganna segir að þar á bæ séu menn alveg rólegir þó að enn sé óljóst með hvaða hætti uppbyggingu á svæðinu verður háttað. „Við gerðum okkur grein fyrir því að þessi uppbygging myndi ekki skella á einn, tveir og þrír. Örfirisey þarf að skipuleggja sem heild, það verður bara gert einu sinni og það þarf að vanda til verka.“ Á nú endanlega að afmá allt í Reykjavík sem tengist fiskveiðum og fiskvinnslu. Er virkilega orðinn svona mikill skortur á landsvæði í Reykjavík að nauðsynlegt er að taka nær alla Örfirisey undir íbúðabyggð. Víða um borgina má sjá heilu hverfin með hálfbyggðum húsum og þau sem eru búinn seljast ekki og stendur því nokkur þúsund íbúðir auðar í Reykjavík og nágrenni. Ég hélt að Örfirisey væri fullbyggð af atvinnuhúsnæði og ætla menn bara að rífa öll þau hús, sem mörg eru nýlegt, til að geta byggt íbúðarblokkir.  Þetta er rugl og vitleysa og sóun á fjármunum.  Því er spáð að með hlýnun jarðar muni árið 2020 vatnsborð í Reykjavík hafa hækkað um tvo metra.  Þá yrði stór hluti af Örfyrirey komin undir sjó og væntanlegar bygginga umflotnar af sjó.  Þetta á kannski að vera Feneyjar norðursins.
mbl.is Vonast eftir stórfelldri uppbyggingu í Örfirisey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varðhald

Í gærkvöldi voru 19 í gæsluvarðhaldi hjá Fangelsismálastofnun, þar af níu í lausagæslu en tíu í einangrunarvist. Hins vegar eru einungis átta sérhannaðir klefar til fyrir gæsluvarðhaldsfanga í einangrunarvist.

Það er orðið slæmt ástandi ef verðandi fangar þurfa að vera á biðlista hjá fangelsum landsins.  Á Litla Hrauni eru margir erlendir fangar, sem ætti auðvitað að senda til síns heimalands.  Mér var sagt af þingmanni sem fór í heimsókn að Litla Hrauni og ræddi við fangana.  Hann sagðist hafa orðið mjög hissa þegar hann ræddi við hina erlendu fanga, sem flestir sátu inni fyrir smygl á fíkniefnum.  Þeir sögðu að þeirra áhætta væri enginn, þeir fengju greitt fyrir að fara með sendinguna til Íslands og vonuðu að þeir yrðu teknir í tollinum á Keflavíkurflugvelli.  Þá var aðeins að viðurkenna brotið og fara í varðhald á Litla Hraun og þar biði þeirra lúxuslíf.  Fangelsið væri líkt og mörg hótel í þeirra heimalöndum.  Þeir fengju frítt húsnæði og fæði og svo væri hægt að stunda þarna vinnu og fá greitt fyrir.  Þeir sem væru sparsamir gætu alltaf sent peninga til sinnar fjölskyldu um hver mánaðarmót.  Þetta væri miklu betra líf heldur en að koma til Íslands og ætla að stunda vinnu.  Þess vegna ítreka ég að erlendir fangar eigi ekki að dvelja á Litla Hrauni heldur senda þá til baka og láta þá afplána sinn dóm í sínu heimalandi.


mbl.is Oftar fullskipað í varðhaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skuldsettu yfirtökurnar

Nú eru margir sem keyptu fyrirtæki með skuldsettri yfirtöku, komnir í alvarleg vandræði.  Það er verið að selja Skeljung, sem fyrri eigendur keypt með skuldsettri yfirtöku.  eigendur Húsasmiðjunnar eru í miklum vandræðum.  Það eru miklir erfiðleikar hjá N1.  Nokkur bílaumboð eru að fara á hausinn.  Hið gamalgróna fyrirtæki Ræsir er hætt allri starfsemi.

Ég er orðinn virkilega hræddur um að einhver banki verði gjaldþrota og þá hrynur viðskiptalífið eins og spilaborg.  Ríkisstjórnin gerir ekkert og ætlar sér að gera ekkert, heldur neitar að horfast í augu við staðreyndir og fullyrðir að þetta séu bara smá erfiðleikar.

Ef svo illa færi að einhver banki færi á hausinn bitnaði það ekki aðeins á íslensku viðskiptalífi.  Heldur yrði það slíkur álitshnekkir að erlendar þjóðir myndu alveg hætta að lána Íslandi fé og Ísland gæti orðið gjaldþrota.  Það hefur skeð áður að þjóð hefur orðið gjaldþrota og má þar nefna Nýfundnaland, sem nú er hluti af Kanada.  Á þetta horfir ríkisstjórnin aðgerðarlaus og þjóðarbúið rekur undan vindi eins og bilað skip.  Nú er spurningin þessi hvar rekur þetta bilað skip að landi?


Eimskip

Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson ætla að losa Eimskip undan ábyrgð á láni uppá 207 milljón dollara falli hún á félagið. Þeir munu þá leiða hóp fjárfesta sem lánar Eimskip þessa upphæð, kaupir kröfuna sem jafngildir um 18 milljörðum króna, og frestar gjalddaga.

Ætli að ástæðan sé ekki sú að aðaleigandi Eimskips er Magnús Þorsteinsson, fyrrum viðskiptafélagi þeirra feðga.  Magnús á líka stóran hlut í Samson ehf, sem er eigandi Landsbankans.


mbl.is Björgólfsfeðgar tilbúnir að bjarga Eimskip
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband