Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Bernskuminningar

Ég var sex ára þegar Rússar réðust inn í Ungverjaland og auðvitað stóð ég með Ungverjum, en ekki var minn heimur stærri á þessum tíma en svo að ég fór að leita að samanburði á Bíldudal og komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri álíka og 90% íbúa Bíldudals réðust á hin 10% og sá strax að það yrði ansi ójafn leikur.  En svo fast sat þetta í barnssálinni að síðan hef ég aldrei geta litið Rússa réttum augum og hef ég átt þó nokkur viðskipti við þá og kynnst því að í raun eru þetta hinir bestu menn.  Ég fór að rifja þetta upp þegar ég las frétt um að hópur af unglingum og börnum væru búnir að setja upp heimasíðu til áróðurs gegn Pólverjum á Íslandi.  Ég tek heilshugar undir með Bubba Morthens um að svona lagað á ekki að líða og verður að stoppa strax.  Við verðum að gæta okkar á því að vera ekki að ala á fordómum í garð ákveðinna þjóðfélagshópa sem hér eru búsettir.  Þá gæti farið eins fyrir mörgum og mér forðum.  Í dag er Ísland alveg eins og smáþorpið Bíldudalur ef við lítum yfir heiminn.  Hvað hafa svo Pólverjar gert okkur?  Þeir eru að stórum hluta að vinna störf sem Íslendingar vilja ekki  eða nenna ekki að vinna.  Sem betur fer mun nú vera búið að loka þessari síðu, en allir þeir sem að henni stóðu ættu að skammast sín.

Fjársvik

Fartölvur og símar freistuðu þjófanna. Fjármunabrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur unnið að rannsókn stórfelldra fjársvika gagnvart nokkrum rafvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Upphæðin nam samtals um 12,5 milljónum. Fjórir sátu um tíma í gæsluvarðhaldi vegna málsins en hefur nú verið sleppt enda liggur játning fyrir.

Er nú farið að telja 12,5 milljónir stórfelld fjársvik á sama tíma og Hannes Smárason fv. forstjóri FLGroup, fær greiddar 90 milljónir frá félagi þar sem honum tókst að tapa 70 milljörðum á einu ári.  Einhverjir hafa þurft að greiða þá milljarða með því að vera svikinn um greiðslur.


mbl.is Stórfelld fjársvik upplýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heppni

Víðir Freyr Guðmundsson. „Ég er kallaður Víðir heppni hérna á deildinni, því ég er ótrúlega heppinn að vera enn á lífi og hafa ekki lamast alvarlega,“ segir Víðir Freyr Guðmundsson, 27 ára Ölfusingur, sem hálsbrotnaði í sundlauginni á Flúðum á laugardagskvöldið. Víðir liggur á æðaskurðdeild Landspítalans í Fossvogi.

Hann er sannarlega heppinn drengurinn að hafa sloppið við lömun og yfir höfuð að vera á lífi miðað við það sem hann hefur lent í um daganna.


mbl.is Heyrði hálsinn brotna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Megrun

Manuel Uribe þegar hann hélt upp á að hafa misst 180 kíló.Þyngsti maður heims var 570 kíló þegar hann komst í heimsmetabók Guinness árið 2006. Mexíkaninn Manuel Uribe Smidt hefur nú lést um 230 kíló,en hann var rúmfastur í fimm ár og komst ekki af án aðstoðar fjölskyldumeðlima.

Þetta er rosalegt og þótt hann hafi létts um 230 kíló eru nú samt 340 kíló eftir og er það þó nokkuð mikið.


mbl.is Þyngsti maður heims léttist um 230 kíló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverkamaður

Imad Mughniyeh, einn af leiðtogum Hizbollah samtakanna sem ráðinn var af dögum í sprengjutilræði í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, í morgun, var efsti maður á lista Ísraela yfir eftirlýsta hryðjuverkamenn. Hann hafði farið hulu höfði árum saman og gengist undir nokkrar skurðaðgerðir til að breyta ásjónu sinni.

Svona á að fara með þessa fugla, bara drepa þá hvar sem til þeirra næst.  Svona menn stofna öllum þjóðum í hættu.


mbl.is Einn illræmdasti hryðjuverkamaður heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórlaus borg

Undanfarnar vikur hefur Reykjavíkurborg verið stjórnlaus vegna alls ruglsins hjá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni.  Hann var fljótur að finna út á sínum tíma að Þórólfur Árnason ætti að axla ábyrgð og segja af sér og lét þá stór orð falla um stjórnleysi og ábyrgð í stjórnmálum en þegar röðin kemur að honum þá er alt í lagi.  "Hann lenti bara óvart í óþægilegu máli", og axlar sína ábyrgð með því að seggja; "Sorry Stína" og þá á allt að vera í lagi.  Það hefur ekki verið haldnir neinir fundir í hinum ýmsu nefndum borgarinnar vegna þess að enginn veit lengur hver stjórnar borginni.  Að vísu er sakleysinginn Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri og situr hamingjusamur í borgarstjórastólnum og les hinn fræga lista með atriðunum 17, sem gera eiga 5.722 eða hvaða tala þetta nú var, einstaklinga í borginni ánægða.  En borginni verður ekki stjórnað með því al lesa stöðugt yfir þessi 17 atriði og heilsa Gauksklukkunni af og til.  Er þessum mönnum ómögulegt að skilja um hvað stjórnmál snúast og hvað á það að ganga lengi að stærsta sveitarfélag landsins sé stjórnlaus svo vikum skiptir.  Hvað með alla starfsmenn borgarinnar?  Hvað með rétt hins almenn íbúa í Reykjavík?  Skiptir það þessa herramenn engu máli eru það bara að hanga eins og hundar á roði sem skipti þá tvíburana Ólaf F, og Vilhjálm Þ. máli.

Laufás

Þórarinn Ingi Pétursson í Laufási hefur jörðina til 15. nóvember samkvæmt ákvörðun stjórnar prestssetra. Í samtali við Morgunblaðið sagði Þórarinn of snemmt að ákveða hvort hann myndi bregða búi en hann er með 600 fjár.

Þetta er kirkjunni til skammar og að bjóða manninum að búa áfram á jörðinni með því skilyrði að hann yrði að fjarlægja íbúðarhús sitt er óskiljanlegt.  Hvernig átti hann að geta stundað búskap á jörðinni ef hann hafði ekkert íbúðarhús.  Átti fjölskyldan að búa í tjaldi?  Þórarinn er búinn á undanförnum árum að byggja upp myndarlegan búskap á þessari jörð og er svo hrakinn í burtu af kirkjunni. Hvar er nú allur kærleikurinn?  Þetta mál angar af spillingu og klíkuskap, svo er ekkert víst að nýr prestur í Laufási kæri sig um neinn búskap.  Þjóðkirkjuna setur mikið niður í mínum huga vegna þessa máls.  Þetta eru hræsnarar og ekkert annað sem kalla sig síðan þjóna Guðs.


mbl.is Þórarinn flytur úr Laufási
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leit

Leitarmenn við störf inni í TF-SÝN.Leit að bandarísku Cessnu 330 flugvélinni sem brotlenti um 50 mílur vestur af Keflavík í gær hófst í birtingu í morgun er dönsk Challenger herþota fór á leitarsvæðið. Unnið er út frá nýrri leitaráætlun sem reiknuð hefur verið út frá reki og áætluðum brotlendingarstað.

Þetta er tilgangslaus, líkið finnst aldrei, hefur örugglega sokkið með vélinni og þótt flugmaðurinn hafi komist út hefur hann ekki lifað lengi í ísköldum sjónum.


mbl.is Leit við erfiðar aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný innheimtuaðferð

Fulltrúar fógetans í Arkhangelsk í Rússlandi beittu nýjum reglum er þeir lögðu hald á bifreið manns sem hafði ekki greitt skuldirnar sínar. Maðurinn var í ökuferð þegar lögreglan stöðvaði hann og tók bifreiðina í sína vörslu, en létu manninn eiga sig.

Nú finnst mér þeir í Rússlandi farnir að ganga full langt, þegar yfirvöld eru komin með leyfi fyrir að hirða eignir fólks hvar sem er jafnvel inn á heimilum þess, þótt viðkomandi skuldi einhverjum peninga.


mbl.is Bíllinn hirtur fyrirvaralaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merki Símans

 Merki Sutor.  Síminn mun ásamt hönnuði einkennismerkis Símans óska skýringa hjá kínversku stálfyrirtæki að nafni Sutor, en merki kínverska félagsins er afar líkt merki Símans.

Er þarna ekki kominn næg ástæða til að senda hóp af fólki frá Símanum í ferð til Kína til að gera ekki neitt.


mbl.is Merki kínversks félags líkt merki Símans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband